Esta, esta.....

Ég er með hálsbólgu.....og það er ekki gaman! Alltaf þegar ég fæ hálsbólgu, verð ég eins og úlfurinn í ævintýrinu um kiðlingana sjö sem borðaði krít og blekkti kiðlingana til að halda að hann væri Geitamamma......... Ég fæ þessa líka  ofurblíðu rödd! Bíð eftir að verða boðin vinna sem "sögustúlka" á 900 línunum!! Gæti leikið góðu konuna...... Tounge Svona getur maður nú villt á sér heimildir án þess að borða krít - enda örugglega ferlega vont að kyngja henni Pinch Drekk Sítrónute Indíanahöfðingjans í massavís - sem minnir mig á það ég verð að fara og kaupa meira hunang......

Einu sinni var ég í Spánarferð. Ég fór með krakkana og vinkonu minni. Við vorum ekki búin að vera lengi úti þegar sá fyrsti veiktist - af því sem síðan hefur verið kallað "Spænska veikin" í minni sveit, síðan veiktust ferðafélagarnir koll af kolli með tilheyrandi hósta, hita og slappleika. Ég var á þönum  eina nóttina að búa til Sítrónute Indiánahöfðingjans handa dóttur minni og eitthvað hefur vinkonan rumskað. Næsta dag var þungt í henni og hún sagði að hún hefði hrópað og kallað - "Esta, esta......" - á Spáni tölum við spænsku, sjáiði til, sérstaklega þegar við liggjum þungt haldin af veikindum Tounge - og viljað fá te líka - en ég hefði bara lokað hurðinni inn til hennar......... W00t 

Mórall sögunnar? Farið aldrei með veika vini í sumarfrí. Þeir fá óráð!

Við erum ennþá vinkonur InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 8.3.2008 kl. 13:44

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Vonandi  lagast þú af hálsbólgunni sem fyrst kær kveðja

Kristín Katla Árnadóttir, 8.3.2008 kl. 13:48

3 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Góðan bata. Point taken með vinina veiku.

Markús frá Djúpalæk, 8.3.2008 kl. 13:57

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehehe flott ertu Hrönn mín.  Og vonandi batnar þér sem fyrst af hálsbólgunni.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2008 kl. 14:18

5 Smámynd: Unnur R. H.

Unnur R. H., 8.3.2008 kl. 16:42

6 Smámynd: www.zordis.com

Elsku kjéddlingin .... hálsbólga er ekki góð, þó bót í máli að vera þýð í máli!

Soðið vatn sítróna og 1000 blómahunang er það besta!

Agalegt að vera í fríi með sjúklingum en svona getur heilsan hrekkt okkur án fyrirvara!

Kyss á báttið

www.zordis.com, 8.3.2008 kl. 17:09

7 Smámynd: Dísa Dóra

Hallgerður ertu að meina engiferrót??

Góðan bata Hrönnslan mín og vonandi þarftu ekki að borða krít

Dísa Dóra, 8.3.2008 kl. 18:04

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þú leist nú ótrúlega vel út í dag þegar ég hitti þig, vona að þú sért búin að hvíla þig vel síðan, knús á Ljónshjartað hann er bara dulla með snuðið sitt.  St. Patty's Day Kick 

Ásdís Sigurðardóttir, 8.3.2008 kl. 19:59

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Snúllan mín farðu bara ekki út að labba með hundinn í þessum kulda þó þið takið ykkur vel út

:etta er helvítis óþverrapest.

Gn..ástin

Solla Guðjóns, 8.3.2008 kl. 23:05

10 Smámynd: Ragnheiður

 enn vinkonur já....

Ragnheiður , 8.3.2008 kl. 23:40

11 Smámynd: Brynja skordal

Hálsbólga er vond en þessi engiferrót er sögð virka(Eða seyðið) passaðu þig bara á kuldabola góðan bata hafðu ljúfan sunnudag Góða nótt

Brynja skordal, 8.3.2008 kl. 23:45

12 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Rifin engiferrót í sjóðandi vatn og ögn af hunangi...... svínvirkar á svona kvílla ....og svo er þetta svo skratti vatnslosandi....... maður verður allveg draumur í laginu við að drekka þennan eðaldrykk......... farðu vel með þig ljósið mitt.....

Fanney Björg Karlsdóttir, 9.3.2008 kl. 00:04

13 Smámynd: Rebbý

Hola!! auðvitað talið þið bara spænsku á Spáni - hvað annað
Farðu vel með þig .... mæli með sterkum thai mat, það svínvirkar fyrir mig á svona pestir.

Rebbý, 9.3.2008 kl. 13:43

14 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Ég kannast við svona pestir. Missi röddina að jafnaði einu sinni á tveggja ára fresti og þá fagna maðurinn minn og krakkarnir.

Steingerður Steinarsdóttir, 9.3.2008 kl. 13:48

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Láttu þér batna, silkirödd.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.3.2008 kl. 14:22

16 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

vonandi batnar þér svo fljótt kæra hrönn !!1

Blessi þig á sunnudagskvöldi.

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 9.3.2008 kl. 16:58

17 identicon

Esta, esta  þú ert ekkert að segja frá því að þú og litli mömmusinnarsnúlli og frændi góður konuar borðuð kjúklinga tvo sem keyptir voru á markaðinum og áttu að duga fyrir ALLA ferðafélagana...........nei nei þegar prinsesurnar lágu fárveikar þá sátuð þið út á svölum og kláruðuð TVO HEILA KJÚKLINGA og fylgdust með Carlos og fjölskyldu  esta esta, injálanhöfðingar verða ALDREI veikir er mér sagt.

Góða konan (IP-tala skráð) 9.3.2008 kl. 17:51

18 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hehehehehe nei góða kona - það átti að koma í Esta esta II!! Þú veist að allar góðar sögur eiga sér framhaldssögur....

Hrönn Sigurðardóttir, 9.3.2008 kl. 18:07

19 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Góðan bata Hrönn

Marta B Helgadóttir, 13.3.2008 kl. 19:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.