Vúhú...

Það var skvísuskóveður í dag!

Loksins fékk ég tækifæri til að spígspora í nýju stígvélunum mínum. Sem eru náttúrulega alls ekki ný lengur - en fremur lítið notuð......Tounge Þau hafa allavega fengið nægan tíma til að kynnast hinum skónum í hillunni. Sem er kostur! Ég fór á þeim út á Sýsluskrifstofu og í bankann. Jaðraði við að vera ofuskutla Wink

Ég hef aðeins verið að rannsaka nöfn á bílum. Hér er mikið af einyrkjum og tvíyrkjum sem merkja bílana sína í bak og fyrir! Yfirleitt merkja menn bílana með nafninu sínu og setja svo iðnina aftan við.... Eikasmíði - Nonnapíp..... og fleira í þeim dúr Tounge Ég fór að velta þessu fyrir mér vegna þess að um helgina sinnti ég léttu viðhaldi á mínu heimili. Negldi nokkra nagla - skrúfaði nokkrar skrúfur og fór í framhaldinu að velta því fyrir mér hvað ég myndi láta standa á mínum bíl - ef ég fengi mér einn! Ég komst að þeirri niðurstöðu að Dúlla dyttari mundi líklega komast næst því að lýsa því sem ég geri!

Var að kíkja á Jónasarvefinn og fann þetta:

Og vofan við stýrið segir

við hina við hlið sér „Veistu

mér finnst við alls ekki einar

síðan við fórum hjá Stapa!“  

InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Dúlla dyttari  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.3.2008 kl. 19:26

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Passar þér mjög vel ef þú ferð út í atvinnurekstur

Hefur ekki verið "stígvélaveður" í þessu rokrassgati sem þú býrð í kona, í allan vetur?

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.3.2008 kl. 19:44

3 Smámynd: www.zordis.com

Dúllu titillinn er yndislegur ....

Ég myndi sennilega setja "ðe hamsterlady"  svo á ég líka pæjustígvél sem hafa ferðast lítið!

www.zordis.com, 5.3.2008 kl. 19:45

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég er að segja það Jenný!! Fjallgönguskór með stáltá og broddum er það eina sem ég hef getað farið í síðan í nóvember. Og bílífjúmí - það er EKKI smart og ég svona eleganz......

Hrönn Sigurðardóttir, 5.3.2008 kl. 19:49

5 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

hvurslags eiginlega er þetta..... allveg hef ég spígsporað um í mínum ofurskutlustígvelum í allan vetur þarna á 800 svæðinu......ég hef að vísu gengið um eins og spastísk ofurgella í hálkunni.... en samt.... the main gella in town jú nó...

Fanney Björg Karlsdóttir, 5.3.2008 kl. 20:01

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

huh Fanney! Kannski milli húss og bíls..........

Hrönn Sigurðardóttir, 5.3.2008 kl. 20:15

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Flott að þú hafðir tækifæri að nota svo til  nýju stígvélunum Hrönn mín

Ég er með nafnanúmer á bílnum mínum.

Kristín Katla Árnadóttir, 5.3.2008 kl. 20:16

8 Smámynd: Huld S. Ringsted

Iss ég geng í mínum ofurskutlustígvélum hvernig sem viðrar og fæ líka oft að heyra það frá mínum manni þegar ég tipla hænufetið í fljugandi hálku!!  

Dúlla dyttari er flott    (P.S. Katla er með hrikalega flott númer)

Huld S. Ringsted, 5.3.2008 kl. 20:44

9 identicon

 

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 21:00

10 Smámynd: Rebbý

aldrei skilið þessa áráttu að sérmerkja bílana, en Dúlla dútlari er samt bara töff

Rebbý, 5.3.2008 kl. 21:14

11 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Dúlla dútlari,  yesss það passar rosalega vel!

Marta B Helgadóttir, 5.3.2008 kl. 21:24

12 Smámynd: Marta B Helgadóttir

....mamma mín verður 93 ára eftir viku og hefur verið kölluð Dúlla u þ b jafn lengi. Þú ert ekki lík henni Hrönnslan, en nafnið hæfir ykkur báðum samt vel, bara góðar konur geta kallast Dúllur. 

Marta B Helgadóttir, 5.3.2008 kl. 21:28

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Marta

Hrönn Sigurðardóttir, 5.3.2008 kl. 21:53

14 Smámynd: Heiða  Þórðar

Einfaldlega yndislegust.

Heiða Þórðar, 5.3.2008 kl. 22:17

15 Smámynd: Dísa Dóra

Dúlla Dyttari er flott og ég segi nú barasta að þú þarft sko enga ofurskutluskó til að vera ofurskutla - þú ert það nú alveg án þeirra

Dísa Dóra, 5.3.2008 kl. 22:44

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Takk Dísa mín

og Heiða.....

Hrönn Sigurðardóttir, 5.3.2008 kl. 22:51

17 Smámynd: SigrúnSveitó

Tek undir með öðrum, Dúlla Dyttari er cool. Ertu búin að ath hvort lénið www.dulladyttari.is sé laust?

SigrúnSveitó, 5.3.2008 kl. 23:10

18 Smámynd: Brynja skordal

já hef nánast í allan vetur verið í mínum skvísu stígvélum og reyndar á ég það til að smeygja mér oft í Burberry strigaskóna mína Elska þá En Dúlla Dyttari er bara æði okkar vinnubíll er merktur Nybygg að utan sko ekki númerið

Brynja skordal, 6.3.2008 kl. 00:02

19 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Góð vísa Hrönn. Eftir hvern er þetta?

Steingerður Steinarsdóttir, 6.3.2008 kl. 09:25

20 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þetta er eftir Ísak Harðarson úr Ljóðinu: Hjartað langar og flýgur

96% skor er gott skor Hallgerður - til hamingju með það

Nei Flórens - ég ætti að drífa í því að festa það  

Hrönn Sigurðardóttir, 6.3.2008 kl. 09:45

21 Smámynd: Solla Guðjóns

Ofurskuttlan Dúlla Dyttari gerist ekki betra

Solla Guðjóns, 6.3.2008 kl. 11:39

22 Smámynd: Hugarfluga

Pæjan þín! Hér eru það bomsurnar sem blíva þangað til ég kemst í sandalana!

Hugarfluga, 6.3.2008 kl. 16:02

23 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ja há, mín bara búin að spígspora eins og megaskvísa um bæinn á flottum stígvélum.  Við þurfum að fara að fá blíðu og fara svo saman á stígvélum, getum gönguprófað Skjálfta í leiðinni .  Dúlla Dyttari og Dísa dormari, finnst svo gott að kúra.  Sjáumst skvís.

Ásdís Sigurðardóttir, 7.3.2008 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.