Í fréttum er þetta helst......

Það er búið að vera HRIKALEGA mikið að gera hjá mér. Ég er alveg búin að sjá það út að það fer mér vel að vera atvinnulaus, engar áhyggjur af bunkum sem bíða mín eftir "frí"....... Fór út að skokka í gær í fyrsta sinn í langan tíma - alltof langan tíma. Fannst ég hafa endalaust úthald og hljóp og hljóp - enda að drepast úr harðsperrum í dag. Stubbaling fannst samt voða gaman, enda fjórhjóladrifinn!! Skil ekkert í mér að vera ekki lööööngu búin að láta reka mig W00t

Minn nýji atvinnurekandi hringdi í mig í dag og vildi fara að kýla á ýmis mál. Ég sagði honum að þessi lífsstíll hentaði mér bara svo vel............ Vakna snemma, fara út að hlaupa eða í leikfimi, koma svo heim og lesa blöðin á meðan ég fæ mér morgunmat í rólegheitum. Geyspa svo yfir síðustu blaðsíðunum á heimshörmungunum og leggja mig aðeins aftur...... Mér fannst hann ekki sýna mér aaaaalveg nógu mikinn skilning. Dreif samt í ýmsum málum í dag - keypti mér bæði nýjan sundbol og hlaupaskó................ Tounge

Ljónshjartað er afar hamingjusamur að hafa mig svona heima - alltaf - allan daginn. Hann fær aldrei nóg af mér................

Fór í sextugsafmæli til Lólar frænku í dag, át á mig gat af kökum og kruðeríi. Ætli ég verði ekki að hlaupa extra langan hring í myrkrinu í fyrramálið til að jafna þetta út? Vona bara að myrkrið endist............

lov&pís InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þú verður þá bara að fara fyrr út að hlaupa sem myrkrið endist.  Góð lýsing á deginum hjá þér, nýji finnuveitandinn verður bara að byrja á því að setja þig í frí á launum.  Spaz 

Ásdís Sigurðardóttir, 9.10.2007 kl. 22:15

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Góð hugmynd!!

Hrönn Sigurðardóttir, 9.10.2007 kl. 22:18

3 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

bíddu við var ég að missa af einhverju....... ertu búin að fá vinnu ???..... Og ég sem hélt að við ætluðum að slæpast með prjónana þegar og ef ég næ heilsu

knús á þig stelpa....

Fanney Björg Karlsdóttir, 9.10.2007 kl. 23:27

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mér finnst þú alltaf svo dugleg að hlaupa ,gangi þér vel í nýju vinnunni knús

Kristín Katla Árnadóttir, 10.10.2007 kl. 08:27

5 Smámynd: Dísa Dóra

Þú ert ekkert smá dugleg að fara út að hlaupa.  Verður svo bara að vera atvinnulaus reglulega

Dísa Dóra, 10.10.2007 kl. 08:56

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hrönn !! ég frussaði kaffinu út um allt, fjórhjóladrifinn, hehehehe góð.

En ég óska þér alls góðs í nýju vinnunni.  Þú verður örugglega betur metinn og gott að komast í burtu frá svona vinnuveitanda, ég er ennþá að hugsa um hve litlir karlar sumt fólk af báðum kynjum getur verið. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.10.2007 kl. 09:15

7 identicon

Ohhhh.... ertu komin með vinnu?? Ég sem var að vonast til að þú myndir slæpast með okkur systrum í Árósum í atvinnuleysinu!!

Til hamingju með nýju vinnuna elskan... við systur bíðum bara þolinmæðar eftir að móðan okkar komi í heimsókn.

Ég er aaaaaalveg að fara að taka þig til fyrirmyndar og fara út að hlaupa ... aaaalveg rétt bráðum ...

knús

erla sín.

Erla Björg (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 10:46

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

HA hahaha..mér finnst að það ætti bara einhver að ráða þig til að bloggga svona heilsublogg..Hláturinn lengir lífið og léttir lundina og er þar með Heilsuhvetjandi. Þú mátt svo hlaupa í myrkrinu eins og þú vilt..ég læt mér nægja heilsuskokk á þessari litríku og hláturhvetjandi bloggsíðu þinni.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 10.10.2007 kl. 11:38

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Að hlaupa eftir ofát á ullabjökkum hefur fengið nýtt nafn.  Sukkjöfnun.  Þú sukkjafnar bara í hlaupinu með stubbaling.  Auðvitað fékkstu ekki að vera í lausagöngu lengi Hrönnsla mín, þú ert svo flottur starfsmaður.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.10.2007 kl. 12:39

10 Smámynd: Rebbý

til lukku með nýja starfið  og duglegust að hlaupa
75dagar til jóla, hverjum datt í hug að fara að telja niður á netinu ... fer að finna fyrir jólaundirbúningspressu

Rebbý, 10.10.2007 kl. 18:14

11 Smámynd: Hugarfluga

Dáist að fítonskraftinum og jákvæðninni í þér. Þú ert BARA flott, Hrönn! 

Hugarfluga, 10.10.2007 kl. 19:19

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Takk stelpur mínar, þið eruð ágætar

.....og Erla! Ég kem, lofa því, það styttist með hverjum deginum..... Knúsaðu alla frá mér

Hrönn Sigurðardóttir, 10.10.2007 kl. 19:36

13 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Mikið er langt síðan ég hef kíkt á þig, hef bara ekki haft tíma til að blogga, og þó er ég ekki atvinnulaus. Hvar ertu búin að fá vinnu? Þetta tók ekki langan tíma. ´

Allra bestu kveðjur og góða nótt.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 11.10.2007 kl. 22:18

14 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Þú stendur þig vel.

Marta B Helgadóttir, 12.10.2007 kl. 01:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband