..... og einu sinni var ég stödd í Kaupmannahöfn. Við vorum sex saman, ég og vinkonur mínar tvær með samtals börnin okkar þrjú. Árið var 2000. Ég var nýskilin, svona til þess að gera - og þetta var í fyrsta skipti sem ég hélt upp á það.......
Það var nýbúið að opna brúna yfir Eyrarsund. Brúarhlaupið yfir Eyrarsund var haldið, eins og gefur að skilja, í fyrsta sinn. EM í fótbolta var í fullum sving. Við horfðum á nokkra leiki á Ráðhústorginu í gríðarlegri stemmningu. Man eftir að við sáum bl. a. Danmörk - Holland á risaskjá. Torgið var yfirfullt af fólki og veðrið var frábært!
Við vorum búin að fara í Zoologiske haven, skoða Vaxmyndasafnið, Heimsmetabók Guinnes safnið, ferðast með lestum og skoða Hovedbanegården, Strikið og sjá varðmennina hafa vaktaskipti við höllina þegar við ákváðum að fara sightseeing túr með strætó. Þetta var svona týpískur ferðamannaböss með opnu efra rými og heyrnartækjum við hvert sæti þar sem hægt var að hlusta á túrinn á ensku, ítölsku og þýzku ef ég man rétt. Það var hægt að hoppa í og úr á flestum stoppistöðvum. Vagninn var naumlega fullur.
Með í för var ítali og kona hans fremur lúpuleg, við nánari íhugun minnti hún dálítið á Dorit okkar allra en það er nú önnur saga...... en aftur að ítalanum. Heyrnartækin við hans sæti virkuðu ekki og gerðist nú ítalinn fremur ófriðlegur. Það var eins og það væru samantekin ráð annarra farþega að hunsa hann og bílstjórinn lét sem hann heyrði ekki. Svo þegar fólk fór úr vagninum sætti sá ítalski lagi og skipti um sæti. Var hann nú til friðs nokkrar stoppistöðvar.
Þá komum við að Litlu Hafmeyjunni - hápunkti ferðarinnar. Tilkynnt var að þarna yrði stoppað í 15 mínútur og allir fóru úr vagninum. Margar myndir voru teknar m.a. af ítalanum.....
Þegar snúið var aftur til vagns vildi ekki betur til en svo að í sæti þess ítalska var sestur rússi. Eina lausa plássið var sætið sem Ítalía hafði flúið úr fyrr í ferðinni. Ítalinn átti fyrst ekki orð yfir ósvífni rússneska heimsveldisins en lét svo orðaflauminn dynja á veslings rússanum sem var nýr inn í vagninn á Hafmeyjustoppistöðinni.
Upphófust nú miklar milliríkjadeilur. Rússinn skildi greinilega ekki orð af því sem ítalinn sagði og tautaði öðru hverju eitthvað á rússnesku...
Á þessu gekk vel og lengi þegar rússinn sagði allt í einu sagði hátt og snjallt á afar rússneskuskotinni ensku: Votttt is jorr proooobblem?
Enn í dag get ég tuldrað þessi orð í barminn og flissað með sjálfri mér.
Enn í dag vekur þessi minning fögnuð í brjósti mínu
pís
Athugasemdir
Rosalega hefur þú skannað Köben á no time in a tutch honey. LOL
Jenný Anna Baldursdóttir, 23.7.2007 kl. 23:50
En fyndið þú lendir í svo miklum í skemmtilegum ævintýrum.
Kristín Katla Árnadóttir, 24.7.2007 kl. 00:05
Góð saga og góð ferð
Gunnar Páll Gunnarsson, 24.7.2007 kl. 08:29
skemmtileg frásögn, að vanda.
hafðu fallegan dag með ljónshjartanu !
Alheimsljós héðan
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 24.7.2007 kl. 09:54
Hehehe ... Ítalakjáni. Ég þekkti einu sinni Ítala sem hét Boris. Hélt alltaf að Boris væri rússneskt nafn. Þannig var nú það.
Hugarfluga, 24.7.2007 kl. 18:40
SigrúnSveitó, 24.7.2007 kl. 21:22
Jóna Á. Gísladóttir, 24.7.2007 kl. 22:36
Góð saga og vel skrifuð Já, er ekki bara gaman að vera túsisti í Köben? Eiginlega hef ég aldrei prufað það, bara verið að vinna, verið í heimsókn hjá familíunni and so on. Kannski að maður prufi þetta einn daginn.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 24.7.2007 kl. 23:33
Ohhh, það að vera dama með neglur og skrifa á lyklaborð fer sko ekki saman: þetta átti náttúrulega að vera túristi en ekki túsisti! Hvað er annars túsisti?
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 24.7.2007 kl. 23:34
Góð saga og sjóðandi húmor
Marta B Helgadóttir, 25.7.2007 kl. 00:51
Jamm...maður gæti nú notað þetta sem staðlað komment á sumum bloggunum hérna. Votts jor prroblem. Frábær saga.
Jón Steinar Ragnarsson, 25.7.2007 kl. 02:36
takk öll sömul
Og Guðný Anna það er svakalega erfitt að vera túsisti í Köben - ég hef prófað það líka.... Maður er svo eitthvað ósofinn á eftir
Hrönn Sigurðardóttir, 25.7.2007 kl. 08:18
Takk fyrir góða sögu Hrönn það er nú alltaf yndislegt að vera í Köben. Sé fyrir mér Ítalskan pizzudreng og Rússneskan björn kljást í strætónum viss um að þetta hefur verið gaman
Róbert Tómasson, 25.7.2007 kl. 17:40
Rétt er það Róbert! Danmark er altid dejlig....
Hrönn Sigurðardóttir, 25.7.2007 kl. 22:06
Hæ frábær saga. Er að fara til köben í enda ágúst. Gott veganesti fyrir mig. kveðja
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 26.7.2007 kl. 22:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.