ó mæ dog

Sá stafsetningarvillu í blogginu hér að neðan. Spurning hvort ég næ að sofa í nótt......

bonusFór í búðina áðan hitti þar frænku mína með fjölskyldu sína, hér í sveitinni er Bónus nokkursskonar félagsmiðstöð þar sem fólk hittist með kerrurnar sínar og spjallar saman um daginn og veginn og teppir alla umferð um búðina í leiðinni Tounge ég er engin undantekning, stend með mína innkaupakerru og spjalla við fólk sem ég hitti. Þessi frænka mín var þreytt á ungum syni sínum sem vildi stjórna fullmiklu að hennar mati. Hún spurði hann hvort ég mætti eiga hann!!!! Minnug skelfingar minnar í æsku þegar þessari sömu spurningu var skellt á mig, reyndi ég að fullvissa drenginn um að ég vildi eeeeekkkkkkert eiga hann, ég hefði ekki einu sinni gaman af börnum. Hitti þau svo á kassanum aftur og þegar ég kvaddi þau, sagði stubburinn til að fullvissa sig: "ég fer ekkert heim með þér?"born

Jamm þarna var sáð fræjum skelfingar.....

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nei Dúa Wonder..... ég kann mig

Hrönn Sigurðardóttir, 28.4.2007 kl. 23:22

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æ þetta má ekki gera við þessi litlu skinn.  Jafnvel þó manneskjan sé yndæl og lofið góðu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2007 kl. 10:24

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú veist að þú getur lagað villur í pistlunum þínum.  Þú ferð bara aftur í stjórnborð og opnar innslagið leiðréttir villuna og vistar svo aftur ekkert mál.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2007 kl. 10:27

4 Smámynd: SigrúnSveitó

Hvaða sveit er það?  Svona er þetta líka í minni sveit...(sko ekki þar sem ég bý núna...og þó..en amk í hinni sveitinni minni...ok, þegja núna...bleeeeeeeeeee)

SigrúnSveitó, 29.4.2007 kl. 11:00

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

 Já Cecil ég veit - ákvað bara að láta reyna á hvað ég héldi þetta lengi út....

Bý á Selfossi Sigrún sveitamær - þar sem gresjan glóir og smjörið drýpur af hverju strái

Hrönn Sigurðardóttir, 29.4.2007 kl. 11:23

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehehe góð.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2007 kl. 14:09

7 Smámynd: SigrúnSveitó

Ok, sama sveit og systir mín (ein af fjórum) býr.  Og ég bjó líka á Selfossi þegar ég var 2ja og 3ja ára...man reyndar MJÖG takmarkað eftir því...man þó eftir þyrlunni sem lenti við löggustöðina...sem var í næstu götu við okkar hús...já, svona poppa upp minningarnar...

SigrúnSveitó, 29.4.2007 kl. 18:58

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hver er systir þín? Ætli ég þekki hana?

Spennandi.....

Hrönn Sigurðardóttir, 29.4.2007 kl. 19:06

9 Smámynd: SigrúnSveitó

systir mín heitir Elín Eir, hún er gift Selfyssingi sem heitir Brynjar Áskelsson...

SigrúnSveitó, 29.4.2007 kl. 19:49

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Án gamans þá finnst mér þetta með mömmuna og barnið hreint skelfilegt.  Hvernig dettur fólki annað eins í hug til að hræða barn (ekki að þú sért svona skelfileg)þ

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.4.2007 kl. 19:58

11 Smámynd: SigrúnSveitó

sammála þér Jenný, þetta er skelfilegt.

SigrúnSveitó, 29.4.2007 kl. 20:04

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Held ég þekki þau ekki Sigrún. Þó veit maður aldrei. Ég er afskaplega ómannglögg og man aldrei nöfn.....

Hrönn Sigurðardóttir, 29.4.2007 kl. 21:12

13 Smámynd: SigrúnSveitó

þekki það...svona er ég líka...!!

SigrúnSveitó, 29.4.2007 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband