Ég hef alltaf verið veik fyrir tenórum.....

Ég hef verið að dást að því - mest svona með sjálfri mér, sem betur fer - hvað Kisuskottið mitt er gáfað kvekendi.....

Ég hef líka fundið ýmsar skýringar á því en sú sem hefur vegið hvað þyngst er vitaskuld sú að gæludýr líkjast eigendum sínum Tounge 

Kattarskömmin reynir að opna dyr og beitir ýmsum brögðum, hann opnar skáphurðir, skrúfar frá ofnum ef honum finnst ekki nógu hlýtt og síðast en ekki síst elskar hann mig og það, gott fólk, er ekki öllum gefið Halo Hann kemur með okkur Ljónshjartanu í göngutúra á morgnana og felur sig þegar annað fólk nálgast sem mér hefur fundist agalega krúttlegt og talið það honum til tekna að vera svona tortrygginn. 

Mér var svo bent á það um daginn að ástæðan fyrir því að hann felur sig væri sú að hann væri svona vandur að virðingu sinni. Hann skammast sín fyrir að láta sjá sig úti með hundi og kjéddlingu. Ætli það sé ekki tóm lýgi líka þetta með gáfurnar.....? Tounge

Og þá að allt öðru...... Ég fór á jólahlaðborð í gærkvöldi með uppáhaldsiðnaðarmönnunum mínum. Ég veitti verðlaun fyrir bestu mynd úr hraðamyndavélum og ávítti þá sem eiga eftir að láta taka af sér mynd..... Ríkissjóði veitir ekkert af peningum þessa dagana....

Ég laumaði því að vinningshafanum að vélin væri stillt á myndatöku á 99 km. og bað hann endilega ef hann mögulega gæti að brosa um leið og hann brunar hjá þeim. Það léttir mína vinnu umtalsvert og gerir það um leið svo miklu meira spennandi að opna póstinn frá lögreglunni í Stykkishólmi Tounge Hann tók nokkuð vel í það.....

Annars er ég að hugsa um að kaupa mér svona myndavél. Þetta er örugg fjárfesting sem borgar sig hratt upp!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Kattarskömminni veitti nú ekki af smá meiri félagsskap Hrönn og þá meina ég félagsskap einhvers sem mjálmar. 

Eru ekki líka veitt skammarverðlaun fyrir verstu mynd úr hraðamyndavélum ?  Þar ætti ég séns og spurning hvort ekki mætti taka upp grettukeppni ?

Þú ert frábær.   

Anna Einarsdóttir, 28.11.2009 kl. 14:32

2 identicon

Kötturinn er að sjálfsögðu að fela sig svo ekki komist upp um hversu gáfaður hann er -  hann vill ekki vekja öfund hjá hinum kattaeigendunum sem fá sínar kisur aldrei með sér í gönguferð.

Ég keyri svo hratt að ég næst ekki á mynd eða þá bara að ég er svo skynsöm að ég passa mig eða þá að ég hef verið ótrúlega heppin hingað til

Ég skal spyrja fjölskyldumeðlimi innan lögreglunnar hvar maður kaupir svona myndavél - hrikalega sniðug tæki - heldur þú að þú getir fengið fólkið í Stykkishólmi til að framkalla fyrir þig??

Valgerður Ósk Einarsdóttir (IP-tala skráð) 28.11.2009 kl. 20:47

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahhaha Anna..... Ég skal spyrja Ósómann

Valgerður Ósk! Framköllun...... ég sé að ég hef ekki hugsað þetta alla leið Þekkirðu einhvern í Stykkishólmi?

Hrönn Sigurðardóttir, 28.11.2009 kl. 22:24

4 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Kettir...eru klárir...og ekki öllum gefið að skilja þá. Þú ert greinilega ein af þeim sem getur lesið ketti...það get ég ekki....

En ég skil hundinn minn....

Þú ert snillingur

Bergljót Hreinsdóttir, 28.11.2009 kl. 22:53

5 identicon

Ég bjó á Snæfellsnesi í 4 ár svo ég kannast við 1 eða 2 þar held að síminn hjá þeim sem framkalla sé 112 - gæti samt alveg haft rangt fyrir mér því ég er pínu talnablind og er þess vegna ekki stærðfræðikennari

Valgerður Ósk (IP-tala skráð) 29.11.2009 kl. 00:24

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Framköllunarþjónustan í Borgarnesi framkallar fyrir Hólmara.  Það endar með því að ég framkalla allar þínar myndir Hrönn og get þá líka tekið sæti í dómnefndinni ef þú óskar sérstaklega eftir því. 

Anna Einarsdóttir, 29.11.2009 kl. 00:30

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Frábær hugmynd að fjárfesta í svona hraðamyndavél.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.11.2009 kl. 01:04

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já Jóna Kolbrún og alltaf að verða betri og betri

Hrönn Sigurðardóttir, 29.11.2009 kl. 07:42

9 identicon

 maður (köttur)heilsar nú ekki hverjum sem er .Góður,amma barnanna minna bjó ó sveit .Þar ver ein kú.Konan fór í hagann og rak kusu heim 2 á dag til að mjólka.Kusan var fremst svo tengdó,svo snatinn ,heimalningurinn og kötturinn kom síðast.Mig minnir að mjólkin hafi rétt dugað í skepnurnar Ég brosi ávallt þegar hraðamyndavél tekur myndir af mér.Þú ert yndisleg

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 29.11.2009 kl. 11:50

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Allir vita að það er langt fyrir neðan virðingu katta að láta sjá sig í göngutúr með hundi og kjeddlingu.  Hraðamyndavélaverðlaun, það sem þér dettur í hug Hrönn mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.11.2009 kl. 13:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband