Mér var boðið í bíltúr í dag....

er hann kannski að hringja í 112?...og þáði það vitaskuld. Það er ekki á hverjum degi sem mér er boðið í bíltúr, þótt þeim fari að vísu fjölgandi.

Við ókum sem leið lá í austurátt. Ég skoðaði gamla bæinn að Keldum sem var búið í frá því um aldamótin 1200 til ársins 1946. Þar voru mér sýnd göng sem voru útbúin sem flóttaleið á sínum tíma... Já... fólk hefur ekki alltaf sofið rótt..... Ég fékk líka að kíkja inn í kirkjuna að Keldum og fékk sem áhugamanneskja um altaristöflur fyrirlestur um altaristöfluna þar. Virkilega fróðlegt og falleg tafla. Altaristaflan að Keldum

Stefnan var síðan sett á Hamragarðaheiði og var ætlunin að skoða námuna sem grjótið í Landeyjahöfn er tekið úr. Á miðri leið blossaði upp svartur reykur í fararskjótanum, eðalskoda..... þannig að við snérum við. En eins og ég sagði ferðafélaganum; Þegar ég segi þessa sögu á elliheimilinu þá skíðlogaði bílfjandinn og þú rétt ræður hvort þín saga verður ekki samhljóða. Ég meina það er assgoti hart ef maður þarf að vera að samræma sögur á elliheimili þar sem enginn man nokkurn skapaðan hlut hvort eð er.....Tounge

Við fórum síðan í Landeyjarfjöru - ég eeeeelska þennan svarta sand..... þennan úfna sjó... en ég veit ekki hvort ég þori nokkurn tíma þarna yfir.... Af hverju er ekki bara byggð brú? Só vott þótt skip þurfi að taka á sig "smá"krók? ToungeLandeyjahöfn

Til vara legg ég til að Landgræðslan verð lögð niður Cool


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hahahaha    Til vara leggur þú til að Landgræðslan verði lögð niður.

Hugmyndum þínum eru engin takmörk sett. 

Anna Einarsdóttir, 20.11.2009 kl. 23:35

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.11.2009 kl. 00:45

3 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 21.11.2009 kl. 10:40

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Alveg óþolandi að þurfa að standa í að samræma sögurnar á elliheimilinu Hrönn mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.11.2009 kl. 13:36

5 Smámynd: Ragnheiður

ég hef heilmikinn áhuga á kirkjum og hafði ætlað mér í áföngum að skoða þær flestar nánar en svo sá ég Sveppa, Audda og Gillz í gær. Teknar myndir af þeim á sprellanum við ýmsar kirkjur...

förinni er a.m.k frestað

Ragnheiður , 21.11.2009 kl. 20:53

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Blessuð vertu ekki að láta þá vitleysinga eyðileggja fyrir þér áhugamálið!

Hrönn Sigurðardóttir, 22.11.2009 kl. 09:10

7 Smámynd: Garún

Nákvæmlega!  Ég hef yfirleitt betur í sögufrásögnum og hef þróað með mér tækni þegar samsögumaður ætlar að leiðrétta mig!  Þá segi ég yfirleitt "þú varst í sjokki".  Það yfirleitt þaggar niðrí þeim.   "það skíðlogaði í faraskjótanum og í sömu mund gaus hver rétt við húddið".  Where there is smoke there is fire!  

Garún, 22.11.2009 kl. 12:01

8 Smámynd: www.zordis.com

Auðvitað skelltir þú þér í bíltúrinn .... Svo hef ég heyrt af fólki sem hljóp nakið eftir sandinum akkúrat þennan sama dag .....

Ertu áhugamanneskja um brimbretta töflur lika? Gætum sörfað saman næsta sumar.

www.zordis.com, 22.11.2009 kl. 19:23

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahhahaha Zordís! Það hefur ábyggilega verið áður en ég kom.....

Garún! pant vera á sama elliheimili og þú!

Hrönn Sigurðardóttir, 22.11.2009 kl. 20:20

10 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Já merkilegt!  Mér er svo sama þó ég sjái ekki sjó í marga mánuði jafnvel ár en alltaf þegar ég fer austur fell ég í stafi, hvað sem það nú þýðir að falla í stafi.  Ég elska þennan biksvarta sand!

Ía Jóhannsdóttir, 22.11.2009 kl. 21:21

11 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

"...og þáði það vitaskuld. Það er ekki á hverjum degi sem mér er boðið í bíltúr, þótt þeim fari að vísu fjölgandi."

Dögunum eða bíltúrunum? Skiptir í sjálfu sér ekki máli, en mikið lifandis ósköp og skelfing er alltaf gaman að lesa færslurnar þínar. Sagt það áður og segi það enn...ef maður vill eiga góðan dag, með bros á vör og hæfilega beygðan vinkil á daginn, tilveruna, ástandið og allt hitt......lestu Hrönnsluna

Halldór Egill Guðnason, 27.11.2009 kl. 02:25

12 identicon

Elsku Zordís. Ég kann ekki skýringu á fjarvist minni hér, en eitt er víst að það er gott að koma aftur ,,heim". Þú kitlar hláturtaugarnar að venju og svo rennur textinn niður eins og ljúfasti aðalréttur.

Unnur Sólrún (IP-tala skráð) 27.11.2009 kl. 10:54

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Gott að ég næ að beygla daginn þinn Halldór - alltaf gaman að fá þig í heimsókn  ;)

Sólrún mín. Mikið lifandis ósköp er ég búin að sakna þín.

Hrönn Sigurðardóttir, 27.11.2009 kl. 16:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.