14.11.2009
Flokkum og skilum.
Ég vaknaði hrikalega snemma.
Ákvað að nú væri góður tími fyrir göngutúr með dýragarðinn. Allar fyllibyttur örugglega farnar heim og hinir ekki komnir á stjá. Heyra í mér - það eru fyllibytturnar og hinir....... Lífið er svo einfalt þegar maður er búin að skipa fólki í flokka
Ég sumsé klæddi mig í kuldagallann, nánast yfir náttkjólinn og henti kettinum út fyrir á meðan ég reimdi skóna mína því það er sko ekkert grín að reima skó með kátan kettling á svæðinu..... Lagði svo af stað, hvorki þó með nesti né nýja skó. Þegar ég hafði gengið smáspöl áttaði ég mig á því að það var eitthvað aukahljóð í umhverfinu. Það var þá kattarósóminn sem hafði ákveðið að skella sér með okkur.... Hrekkjusvínið reyndi nokkrum sinnum að snúa honum til baka með akkúrat engum árangri þannig að hann skokkaði sæll og glaður með okkur hringinn.
Hlín hrekkjusvín snéri sér þá hikstalaust að því að hræða gamlar konur - sem greinilega höfðu ákveðið að taka daginn snemma.... nema þær séu fyllibyttur og ekki komnar lengra.....? - og blaðburðarfólk. Ég náttúrulega var búin að steingleyma því að fólk kaupir ennþá moggann. Allavega sumt fólk Nú get ég flokkað fólk í fyllibyttur, moggakaupendur og hina.....
Ljónshjartað og Hrekkjusvínið liggja nú og sofa en litli Ósóminn er enn úti í garði að veiða laufblöð. Svona líka himinglaður að hafa loksins fengið að koma með okkur.
Helgin og einskær hamingja framundan.
Flokkur: Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:09 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Eldri færslur
2021
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Spurt er
Tenglar
Uppskriftir
- Bollur eða brauðlengjur
- Kærleiksbollur
- Gróft brauð
- Bananabrauð
- Kryddbrauðið hennar Jónínu
- Kryddbrauð
- Lífsins brauð
- Fyllt brauð
- Gömlu góðu kanelsnúðarnir hennar mömmu
- Hafrakex
- Skinkumyrjuhorn og pizzasnúðar
- Ostaskonsur
- Muffins
- Eplakaka Mörtu Smörtu ;)
- Rabbarbarapæ
- Epla og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka mótmælanda efnahagsástandsins ;)
- Vatnsdeigsbollurnar hennar ömmu
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Biluð hollusta Hjónabandssæla
- All bran kökur
- Brynhildur Delisíus
- Gillaður humar
- Salat númer eitt
- Gulrótarsalat með dassi af fortíðarþráhyggju
- Gúllassúpa
- skólastjórasúpa
- Grænmetissúpa Zordísar
- Fylltar kjúklingabringur Uppskrift að góðu kvöldi
- Fljúgandi Jakob með stílbragði
- Kjúklingaréttur Thai Pride
- Ungnauta - innra læri
- Fiskréttur í ofni
- Grænmeti í ofni
- Ratatoullie a la maison
Vefsíður
Færsluflokkar
- Afmæli og stórhátíðir
- allt annað
- amatörar
- Bloggar
- Bækur
- Draugasögur
- Dútl heima við
- Dægurmál
- fagmennska
- Ferðalög
- Fordómar og spéhræðsla
- Galdrar og töfrar
- Glæpamál
- Grill
- Grobb
- Gæludýr
- gæludýr og dýrafát
- hausti fagnað
- hugsanleg húsbönd
- Iðnaðarvinna og verkir
- Íþróttir
- íþróttir og útivist
- Kvikmyndir
- Launráð og fyrirsát
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- málningarvinna
- Menning og listir
- menn og málleysingjar
- mótorhjól og akstursíþróttir
- Óbyggðir Vestfjarða
- Sjónvarp
- Skordýr
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- svefn og síþreyta
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Veikindi
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- öfugir fordómar
- Ölæði og ólæti
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Marta B Helgadóttir
- www.zordis.com
- Anna Einarsdóttir
- Ragnheiður
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- SigrúnSveitó
- Guðný Anna Arnþórsdóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Solla Guðjóns
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Brattur
- Garún
- Sigrún Jónsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Halldór Egill Guðnason
- Þröstur Unnar
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Dúa
- Hagbarður
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Bullukolla
- Einar Indriðason
- Steingerður Steinarsdóttir
- Rebbý
- Vilma Kristín
- Dísa Dóra
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Ía Jóhannsdóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Hugarfluga
- Bergljót Hreinsdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Bjarni Harðarson
- Marinó Már Marinósson
- Sigurður Ingi Jóhannsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Steingrímur Helgason
- Þórbergur Torfason
- Ólöf Anna
- Brúðurin
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Víðir Ragnarsson
- Laufey Ólafsdóttir
- Róbert Tómasson
- Ólafur fannberg
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Gulli litli
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Linda litla
- Ágúst H Bjarnason
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Svala Erlendsdóttir
- Tína
- Markús frá Djúpalæk
- Gudrún Hauksdótttir
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
Athugasemdir
Þú ert frábær Hrönn mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.11.2009 kl. 13:05
Algjörlega nauðsynlegt að flokka
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 14.11.2009 kl. 17:19
Flokkum og hendum ?
Anna Einarsdóttir, 14.11.2009 kl. 20:22
Þegar ég fer í göngutúra með hundinn minn eru iðulega tvær kisur sem fylgja okkur. Ég þarf að fara að læra að henda, ég er allt of fastheldin á það sem ég hef einhverveginn eignast.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 14.11.2009 kl. 23:56
Hvert skilaðirðu fyllibyttunum ?
Þú varst bara búin að flokka í sögunni...
Knús á þig mín kæra
Ragnheiður , 15.11.2009 kl. 13:52
Takk Cesil
Skralli! Algjörlega.....
Anna! Jú... spurning.....
Jóna Kolbrún! Já það eru ábyggilega margir sem þurfa að læra að henda ;)
Ragga! Ég er löngu búin að skila minni fyllibyttu
Hrönn Sigurðardóttir, 15.11.2009 kl. 17:16
Auðvitað á kötturinn að fara með ! Hvað annað?
Vilma Kristín , 16.11.2009 kl. 20:31
Segðu Vilma! Það finnst honum allavega ;)
Hrönn Sigurðardóttir, 16.11.2009 kl. 21:02
Gurrímalla ert þú ein af þeim sem fer með ketti í göngutúra dísussss..... well all the same I like u.
Ía Jóhannsdóttir, 18.11.2009 kl. 21:15
hahhaha Ía! Kattarósóminn elskar mig bara svo mikið. Hann heimtar að koma með þegar ég fer út með hundinn ;)
Hrönn Sigurðardóttir, 18.11.2009 kl. 21:28
haha gamli kisi fer stundum með en litli kisi hefur ekki prufað það ennþá
Ragnheiður , 19.11.2009 kl. 01:47
Það er ótrúlega fyndið að fara út að ganga með kött ;)
Hrönn Sigurðardóttir, 19.11.2009 kl. 15:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.