Það er kreppa....

...þannig að mér datt í hug að allur væri varinn góður. Ég er að æfa fyrir Reykjavíkurmaraþon - vildi bara láta ykkur vita í tima svo þið getið farið að safna fyrir áheitum!!

Í húsinu fyrir aftan mig hefur Hvítasunnusöfnuðurinn opnað kaffihús! Svo sem ekkert nema gott um það að segja og þessa góðviðrisdaga sem verið hafa undanfarið eru borð og stólar settir út á stétt og ég fíla mig soldið svona 801.... eða þannig W00t

Ég vildi að kaffihúsið yrði látið heita kaffi Amen en það var ekkert hlustað á það frekar en annað gáfulegt sem út úr mér dettur. Áðan hringdi svo síminn hjá mér og í símanum var maður sem spurði mig hvort þetta væri á kaffihúsinu. Ég blessaði hann í bak og fyrir og þverþrætti fyrir að reka kaffihús. "Nú" sagði maðurinn, "er þetta ekki Austurvegur bla bla? Jú, jú flissaði ég og sagðist alveg geta hellt uppá kaffi ef hann langaði svona rosalega í það!

Hann hafði engan húmor fyrir því Sideways


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Sumir hafa bara hreint engan húmor. Eða við hverju býstu af manni sem hringir í kaffihús Hvítasunnusafnaðarins?

Helga Magnúsdóttir, 16.7.2009 kl. 18:08

2 Smámynd: Vilma Kristín

Ég er viss um að maðurinn er með nagandi eftirsjá eftir að hafa ekki þegið þetta frábæra boð!

Vilma Kristín , 16.7.2009 kl. 18:52

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Kaffi Amen í 801 ....miklu betra en Kaffi París í 101

Sigrún Jónsdóttir, 16.7.2009 kl. 20:01

4 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Eru þeir búnir að koma sér upp kaffihúsi? Þarna sat maður stilltur og prúður í sparifötunum marga sunnudagsmorgna og gaf ekki frá sér hljóð, fór svo heim með fallegar myndir af lömbum og ljónum í leik. Þangað til að við komumst að því að það væri miklu meira gaman í sunnudagaskólanum í kirkjunni, þar var sko hlaupið út um allt í leikjum og rosa stuð. Það var helmingi lengra að labba þangað en það var ekki nokkur spurning um hvað maður átti að velja

Margrét Birna Auðunsdóttir, 16.7.2009 kl. 20:37

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Segðu Helga.....

Ég er ekki jafnviss Vilma ;)

Já Sigrún - svo miklu miklu betra :Þ

Birna! Ég var þarna líka... svo fékk maður epli á jólunum og ég á þessar jésúmyndir enn :Þ

Hrönn Sigurðardóttir, 16.7.2009 kl. 21:07

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Æi þú drepur mig kona.

En heyrðu, værir þú til í að kíkja í skilaboðin þín.  Til hvers heldurðu eiginlega að þessi fídus sé í stjórnborðinu þínu?

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.7.2009 kl. 00:19

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 17.7.2009 kl. 01:12

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

já.... ég var að því ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 17.7.2009 kl. 08:10

9 identicon

Kaffi Amen 801 snilldar nafn.Hann hefur kanski verið giftur kallinn

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 17.7.2009 kl. 11:30

10 Smámynd: www.zordis.com

Snillingur mæ darling!

Kaffi Amen er snilldarnafn og í 801 bara flott!!!

www.zordis.com, 17.7.2009 kl. 17:27

11 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ef hægt væri að fá 'ekta' kaffi kúmen í kaffi amen þá væri ég drekka þar-men.

Steingrímur Helgason, 17.7.2009 kl. 22:11

12 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Anna Ragna Alexandersdóttir, 18.7.2009 kl. 11:18

13 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Hrönn hehe kaffi amen frábært.

Kristín Katla Árnadóttir, 18.7.2009 kl. 12:16

14 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

átt þú góðan dag

Anna Ragna Alexandersdóttir, 30.7.2009 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband