Sigg á sálina?

Það er viðurstyggilega kalt úti og ég er notalega þreytt eftir daginn sem byrjaði á vatnsfimi hjá Brjáluðu Betu ;)

Ég gekk með hundana upp með á eftir hádegi og tárin sem féllu - vegna kulda - að sjálfsögðu, ég græt ekki, nema af frekju....... þau frusu jafnóðum og þau féllu. Ekki var það nú til að hlýja mér......

Hundarnir voru hinsvegar algjörlega í essinu sínu og létu eins og þau tækju ekki eftir því að það voru -9 gráður á mælinum og rok að auki. Þau hlupu á eftir Krumma fram og til baka.......... ég hefði hugsanlega átt að gera það líka. Kannski mér hefði þá ekki orðið svona kalt........? Tounge

Ég var að spá og spekúlera þar sem ég gekk, gólandi á hundana í dag, í eina spurningu sem ég fékk í vísindarannsókninni um daginn - og já, ég var líka spurð um kynferðislega áreitni - aftur :Þ en þessi spurning hljóðaði svona: Ef þú gætir á dularfullan hátt fjarlægt allar sársaukafullar upplifanir í lífi þínu. Mundir þú þá gera það?

Mér finnst þetta svolítið vera spurning um að koma sér upp siggi á sálina...... Hverju hefðir þú svarað?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég held að ég myndi segja nei. Ef hluti af lífsreynslu manns er tekinn burt er maður ekki lengur maður sjálfur. Kannski væri maður mikla betra eintak. Þetta er vandasöm spurning.

Helga Magnúsdóttir, 5.2.2009 kl. 20:38

2 Smámynd: Vilma Kristín

Fjarlægja allar sársaukafullar upplifanir? Hvað stæði þá eftir? Er það ekki að hluta til það sem mótar mann?

Vilma Kristín , 5.2.2009 kl. 20:40

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þegar upp er staðið og eftir á að hyggja.......nei.  Hvernig gæti maður skilgreint góða upplifun ef ekki væri slæm upplifun í farteskinu.

Sigrún Jónsdóttir, 5.2.2009 kl. 20:40

4 Smámynd: www.zordis.com

Á meðan á þessari stundu stendur þá myndi ég bakka út úr henni en eins og kvenndin hér að ofan segja að þá myndi kona eflaust kaupa sér siggtætara og syngja tryllt eftir fótanudd og raspa svo af ....

Sálin er í slípun og öll reynsla gerir okkur að þeim frábæru einstaklingum sem við erum.

Ég myndi halda litlum tárakertum í frysti og setja þau á flösku þvííííí þegar þú ferð í maraþonið þá er ekkert eins gott eins og að drekka köld tár!

lövjú girl!

www.zordis.com, 5.2.2009 kl. 21:46

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Í dag segi ég hiklaust nei, vildi ekki fjarlægja það sem ég hef upplifað.  En frá og með deginum í dag segi ég já... vil vera hamingjusöm til æviloka af því mér finnst ég alveg nógu þroskuð.    Kommon... maður þarf nú ekki að vera ofþroskaður.

Ef ég gæti á einhvern dularfullan hátt fjarlægt allar sársaukafullar upplifanir hjá öðrum,  þá segi ég já, það myndi ég gjarnan vilja. 

Anna Einarsdóttir, 5.2.2009 kl. 21:57

6 Smámynd: Einar Indriðason

Ef ég gæti ráðið og tekið burtu sársaukafullar minningar?  Tja... það eru nokkrar sársaukafullar minningar sem ég gæti hugsað mér að fjarlægja.  En, þá er maður ekki lengur akkúrat sá sem maður er.

Ég held því að þó það hljómi freistandi... þá held ég segi nei, samt sem áður.

Einar Indriðason, 5.2.2009 kl. 21:58

7 Smámynd: Steingrímur Helgason

"There are things that you dont need to learn..."

En að ylja sér um tærnar á hundum er gott...

Steingrímur Helgason, 5.2.2009 kl. 23:10

8 Smámynd: Auður Proppé

Mitt svar væri alveg örugglega JÁ, sumar sársaukafullar minningar geta skemmt manneskju fyrir lífstíð

Auður Proppé, 5.2.2009 kl. 23:19

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég hefði sagt já, að þær væru nokkrar sem ég hefði getað verið án, alveg örugglega sko.

Sumar fengju að hanga inni.

Sigg á sál?  Ekki hjá mér, er með lungamjúka og hreina sál eins og Ésú.  Hehemm.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.2.2009 kl. 23:53

10 identicon

Siggi á sálinni  ég mislas þetta eitthvað .Já ég get alveg verið án nokkurra áfalla sem komu  ókeypis.En er það ekki einmitt lífsreynslan sem gerir okkur að þeim manneskjum sem við erum í dag?Rosalega er ég djúp svona um miðja andvökunótt

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 01:34

11 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Já sálin er flókið fyrirbæri og á ekki einfalt svar við þessu svo ég strends ekki prófið.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 6.2.2009 kl. 11:26

12 Smámynd: Dísa Dóra

Nei veistu að ég held að ég vildi barasta ekkert vera án erfiðu reynslunnar/reynslnanna þrátt fyrir allt.  Segi nú oft til dæmis um mitt ofbeldissamband að í dag er ég þakklát fyrir þá reynslu því hún styrkti mig og gerði mig að þeirri sem ég er.  Vissulega hefði hún svosem mátt endast í færri ár samt

Dísa Dóra, 6.2.2009 kl. 15:31

13 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Það hvernig við eyðum deginum er í raun smækkun á hvernig við eyðum ævinni.    

Marinó Már Marinósson, 6.2.2009 kl. 16:27

14 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég segi hiklaust nei.Þanþolið er að vísu mismikið hjá mannfólkinu en sólin heldur alltaf áfram að skína og loks tekur maðir eftir henni.

Hins vegar væri ég að ljúga ef ég segði að mig langaði ekki að tugta einn og eina til........

Solla Guðjóns, 6.2.2009 kl. 16:45

15 identicon

Bara að kvitta fyrir innlitið - svona til að minnka frænkueineltið sem ég á í vændum ef ég geri það ekki...

:-)

Inga frænka (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 19:27

16 Smámynd: Rebbý

ég myndi ekki vilja þurrka þær út ... eins og hinir hafa sagt þá mótar erfiðu stundirnar jafnt og þær góðu okkur sem einstaklinga
ég er æðisleg og því vil ég ekki breyta  þú ert æði líka ... ekki breytast

Rebbý, 7.2.2009 kl. 05:14

17 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Góða helgi.

Kristín Katla Árnadóttir, 7.2.2009 kl. 11:51

18 identicon

Fyrst það er spurning um allar eða enga, ja þá er ég ekki viss.  Margar sársaukafullar upplifanir snerta vissulega svo marga aðra en mig og víst mættu þær fjúka fjandans til.

En...  Hér er ég og eins og alltaf snýst þetta um sorg og gleði, kulda og hita, hlátur og grát.  Það var yndislegt veður í dag, gaman að anda að sér Elliðaárdalnum eins og hann lagði sig og fylla hjartað af þessari óumræðilegu vetrarfegurð.  Það er líka gaman að renna sér á rassinum í góðri brekku, spá og spekúlera.

Knús á þig elsku Hrönn.

Unnur Sólrún (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 16:05

19 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Sem betur fer á ég ekki margar sársaukafullar minningar. Ég myndi hins vegar klárlega svara þessu neitandi þar sem ég hef þá trú að ef maður hefur ekki upplifað sorgina þá getur maður ekki vitað hvað gleði er. Og ef maður lifir heilt líf án þess að finna til sársauka þá kann maður ekki að meta lífið sitt,

Hamingjan felst í því að þekkja báðar hliðarnar...ljósið og skuggann...ekki satt????

Bergljót Hreinsdóttir, 8.2.2009 kl. 03:48

20 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Anna Ragna Alexandersdóttir, 8.2.2009 kl. 21:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband