Björn Bjarnason

Ég baka svo gott brauð að ég íhuga að opna skyndibitastað í samkeppni við Sub-way! Minn staður kemur til með að heita No-way ;)

Sjálfstæðisflokkurinn á Selfossi eða Suðurlandi eða Guðmávitahvað - eins og mér sé ekki sama - á fundasal í húsinu við hliðina á mér! Ég bý við ca. 50 bíla bílastæði en alltaf skal einhver þeirra nappa mínu bílastæði! Ég hef margfarið þarna upp í þennan sal þeirra og rekið viðkomandi út með harðri hendi að færa bílinn sinn - en sjálfstæðismenn á Suðurlandi eru líklega annað af tvennu, latir eða heimskir - nema hvorutveggja sé - því þeir halda alltaf áfram að stela stæðinu mínu.

Þeir eru búnir að kafsigla þjóðarskútunni, svo ég persónugeri vandann sneggvast, en geta ekki látið þar við sitja og stela bílastæðinu mínu líka!! Réttast væri að ég færi út og skrapaði "EINKABÍLASTÆÐI" í lakkið á bílnum sem er í stæðinu mínu. Það ætti að kenna þeim.........

Og í þessu samhengi þá finnst mér akkúrat engu máli skipta að ég eigi engan bíl Sideways


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hahaha  

Ergir þig upp úr skónum og ég meðvirk... en átt svo engan bíl. 

Anna Einarsdóttir, 8.1.2009 kl. 21:16

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 8.1.2009 kl. 21:20

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Varstu orðin pirruð líka?

Hrönn Sigurðardóttir, 8.1.2009 kl. 21:21

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Það gætu nú alltaf komið gestir til þín sem þyrftu að nota bílastæðið þitt. Láttu það bara eftir þér að rispa eins og einn bíl, þetta eru hvort eð er allt einhverjar glæsikerrur í kaskó.

Helga Magnúsdóttir, 8.1.2009 kl. 21:28

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Pirruð Hrönn...... ég var næstum því byrjuð að reykja aftur. 

Anna Einarsdóttir, 8.1.2009 kl. 21:55

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

híhíhí Anna!

Helga! Ég veit....... það eina sem heldur aftur af mér er að ég held að ég verði sú eina sem komi til greina sem aðalsökudólgur! 

Hrönn Sigurðardóttir, 8.1.2009 kl. 21:59

7 Smámynd: Þröstur Unnar

Djö..líst mér vel á það að opna heimabakaríisbúð.

Er ekki laus kofi þarna í grenndinni.

kv

Bakarinn.

Þröstur Unnar, 8.1.2009 kl. 22:21

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hef þetta bara í kjallaranum hjá mér! Svo ert þú ekki bakari - þú ert barbari ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 8.1.2009 kl. 22:24

9 Smámynd: Rebbý

ohh ég var alveg að verða sjóðandi íll og svo áttu ekki bíl
hehehe  alltaf jafn góð

Rebbý, 8.1.2009 kl. 22:26

10 Smámynd: Brattur

... en nú fer Sjálfsstæðismönnum hratt fækkandi... svo bráðum verður bara 1 bíll eftir á þessu Sjálfs-stæði... en líklega leggur hann samt í stæðið þitt...

Brattur, 8.1.2009 kl. 22:29

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hah! Það væri eftir þeim! Bara einn sjalli eftir og hann verður að stela mínu stæði! Nú er ég öskuill yfir því!!

Rebbý!

Hrönn Sigurðardóttir, 8.1.2009 kl. 22:33

12 Smámynd: Vilma Kristín

Hey, þetta er þitt bílastæði.. hvort sem þú átt bíl eða ekki! Það er aukaatriði. Mæli með að þú setir upp skilti sem sem segir: "Sá sem leggur hér er í frjálslynda flokknum" (eða Framsókn.. eða samfylkingunni) - eða þú gætir líka sett á skiltið: "Sá sem leggur hér er aumingi sem sigldi þjóðarskútunni í strand". Þeir munu hætta að leggja þarna...

Vilma Kristín , 8.1.2009 kl. 23:00

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Lýst vel á svona heimabökuð brauð.  Ætli sjallarnir kunni nokkuð að lesa ??? Þeir þurfa þess ekki, það er bara að fylgja foringanum og grilla á kvöldin. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.1.2009 kl. 23:05

14 Smámynd: Þröstur Unnar

Er sko víst bakari addna, lærði hjá nágranna þínum

Þröstur Unnar, 8.1.2009 kl. 23:10

15 Smámynd: Þröstur Unnar

Að vísu er hann framsóknarmaður.

Þröstur Unnar, 8.1.2009 kl. 23:11

16 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Ég ætla ALDREI að leggja bílnum mínum þarna aftur.... og eiga þar með á hættu að vera bendluð við sjálfstæðisflokkinn..... nei fyrr skal ég dauð liggja......Ég labba til þín næst.....

Fanney Björg Karlsdóttir, 8.1.2009 kl. 23:23

17 Smámynd: Einar Indriðason

Sko, það er prinsippið sem skal standa!  ÞÚ átt þetta stæði, og það er ÁSTÆÐULAUST að (HFF) einhverjir... (HFF) sjálfstæðismenn... (HFF) þurfi að STELA STÆÐINU ÞÍNU, til *VIÐBÓTAR* við (HFF) allt annað (HFF) sem þeir hafa (HFF) stolið (HFF) upp á (HFF) síðkastið!

Búðu til miða, sem þú getur sett undir (HFF) rúðuna hjá þessum ... (HFF) (HFF) (HFF) ... þúst.

Miðinn má segja:  "Þökk sé ykkur (HFF) þá hefur hundurinn minn ekki fengið neitt að borða í viku. Hann er svangur.  Hann fær að vísu (HFF) niðurgang af ykkur (HFF) sjóræningjum, en þið eruð þó (HFF) betra en að láta grey voffa svelta.  Svo, ef ykkur (HFF) er annt um ykkar aumu (HFF) lífstóru... þá skulið þið passa að þetta (HFF) gerist ekki aftur, að þið leggið í MITT (HFF) stæði!  ÉG Á ÞETTA (HFF) (HFF) STÆÐI!   BUGGGGGER OFFF þið (HFF)!"

Hvernig er þetta?

Einar Indriðason, 9.1.2009 kl. 00:15

18 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég myndi kopy/peista erindið frá Einari en fullskrifa það sem hann skammstafar

Sigrún Jónsdóttir, 9.1.2009 kl. 00:45

19 Smámynd: Solla Guðjóns

No way.....líst vel á það....

Ég veit ekkert hvaða bílastæði þú átt....legg bara við húsið þitt ef ég vil og þá í góðum erindagjörðum.......enda ekki sjálfstæðismaður.

Sé þig vonandi á eftir

Solla Guðjóns, 9.1.2009 kl. 08:54

20 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 9.1.2009 kl. 09:08

21 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Algjörlega sammála. Það er fullkomið aukaatriði hvort þú átt bíl til að fylla stæðið eður ei.

Steingerður Steinarsdóttir, 9.1.2009 kl. 09:38

22 Smámynd: Linda litla

Skil þig..... alltaf er einhver í mínu stæði og ég verð alltaf jafn pirruð, samt á ég ekki bíl og enn síður bílpróf ha ha ha

Gleðilegt ár !!

Linda litla, 9.1.2009 kl. 11:21

23 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Soldið fyndið Þröstur! Því í mínum huga ertu alltaf bakari. Skildi aldrei af hverju - fyrr en nú ;)

Nákvæmlega Einar! Það er þetta með prinsippið!

Hrönn Sigurðardóttir, 9.1.2009 kl. 13:42

24 Smámynd: Gulli litli

Þetta heitir þjóðnýting, við verðum jú öll að standa saman og ekki vera að leita að sökudólgum!(mér finnst eins og ég hafi heyrt þetta áður). Þjóðnýtum bílastæðið hennar Hrannar! Einn No-way með öllu handa mér.

Gulli litli, 9.1.2009 kl. 14:42

25 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Gerðu bara tilkall í öll helvítis 50 stæðin.  Verður ekki heimsending á No-way eða bara One-way?  T

Marinó Már Marinósson, 9.1.2009 kl. 15:26

26 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jú Marinó! Þú sækir eins marga No way og þú vilt og ferð með þá heim.....

Hrönn Sigurðardóttir, 9.1.2009 kl. 19:16

27 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Byggðu bara smá kofa á bílastæðinu ÞÍNU og opnaðu brauðbúð þar

Heiða B. Heiðars, 9.1.2009 kl. 20:34

28 Smámynd: www.zordis.com

Mér datt í hug að búa til kartöflugarð og brugga svo bara brennivín sem þú moonar sjálf og selur grimmt með girnilegu brauðinu þínu!

Kærleiksbollur og kartöflusnafsar ... Gætir girt af stæðið með amerísku white fence thing!!!

Svo er siðferðileg viska stæðisþjófanna í takt við annað!

www.zordis.com, 9.1.2009 kl. 21:29

29 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

(HFF) hélt að það væri hnerri.... Fattaði nokkrum línum seinna

Blessuð! settu bara barnavagn eða línuskauta eða skíði í bílastæðið

og einn No-Way á línuna takk

Svala Erlendsdóttir, 9.1.2009 kl. 21:50

30 Smámynd: Einar Indriðason

Eða.. málaðu svona blátt stæði með mynd af hjólastól á... þúst.. "stæði fyrir fatlaða" ... nema ... þú bætir við texta:  "Stæði fyrir siðblinda."

?

Einar Indriðason, 10.1.2009 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.