Réttarstaða aðkomutíkur!!

Var að koma af jólahlaðborði í Hótelinu!

Frábært kvöld. Góður matur, góður félagsskapur - smiðirnir "mínir" taka sko ekki hamarinn með sér á ball. Ég dansaði gjörsamlega af mér fæturnar. Hljómsveitin var undarlega góð miðað við að hún kemur úr Hveragerði........ Tounge En eins og ég hef margoft tekið fram þá hef ég alls enga fordóma í garð Hvergerðinga. Sumir af mínum beztu Hvergerðingum eru vinir. Ójá þessi setning á við ansi víða - allavega í mínu tilfelli - sem er svo önnum kafin að bera af mér fordóma Tounge Ég er búin að hlæja svo mikið í kvöld að mig verkjar í kinnarnar - enda kona alls ekki vön svona fíflagangi.........

Er að velta því fyrir mér hvort það taki því nokkuð að fara að sofa úr því sem komið er FootinMouth 

Ég vakti verðskuldaða athygli í morgun, þegar ég var nöppuð af lögreglunni í óræktinni niður við á með þrjá hunda, dansandi í kringum mig....... Þeir skelltu á mig kastaranum og ég hreinlega heyrði þá hugsa hvað þeim þótti við vera grunsamleg þarna í myrkrinu. Sjálf er ég handviss um að það var aðkomutíkin sem var grunsamlegust. Ég meina hún var með blikkandi jólaljósaól!

Hvursu grunsamlegt er það?? W00t

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Indriðason

"Drop that Dogs!"  segja FBI agentarnir!

Einar Indriðason, 14.12.2008 kl. 09:44

2 Smámynd: Einar Indriðason

Eða voru það FÍB?

Einar Indriðason, 14.12.2008 kl. 09:45

3 Smámynd: Einar Indriðason

Hmm... BBC?

Einar Indriðason, 14.12.2008 kl. 09:46

4 Smámynd: Einar Indriðason

ABC?

Einar Indriðason, 14.12.2008 kl. 09:47

5 Smámynd: Einar Indriðason

RÚV!!!

Einar Indriðason, 14.12.2008 kl. 09:50

6 Smámynd: Tína

Gott að þú skemmtir þér vel elsku vinkona. Virkilega gaman að fá svona knús frá þér í gær í framhjáhlaupi, þú svona sælleg í framan eftir að hafa séð jólasveinana.

En það er víst best að ég fari að hafa mig til fyrir vinnuna.

Kram og knús á þig krútta.

Tína, 14.12.2008 kl. 10:19

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

heheheh hugsanlega hefur Einar dansað frá sér allt vit í gærkvöldi......

Tina! Gott að fá að knúsa þig aðeins og reyna að smita minni köldu kinn yfir ;) 

Hrönn Sigurðardóttir, 14.12.2008 kl. 11:16

8 Smámynd: Vilma Kristín

Sko Hvergerðingar eru besta fólk...sérstakleg brotfluttir... Ég er lifandi dæmi þess :)

Vilma Kristín , 14.12.2008 kl. 11:53

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það er nú ekki dónalegt að vera upplýst, það er þá ekkert á huldu hjá þér mín kæra !! 

Ásdís Sigurðardóttir, 14.12.2008 kl. 13:32

10 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Sko...þetta hefur pottþétt verið aðkomutíkin...og jólaólin blikkandi...en löggur eru mjög forvitinn þjóðflokkur sem þarf að vita hver er hvurs og hvur er hvar...en þekkja þig pottþétt sko...vita allt um þig og þínar ferðir.... En..kannski er það ekkert smiður sem þú átt að vera að kíkja eftir...????

Bergljót Hreinsdóttir, 14.12.2008 kl. 13:35

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Rosalegt djamm er á þér.

Svo heldurðu áfram með hundana út um allar trissur í morgundimmunni.

Jösses.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.12.2008 kl. 14:55

12 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Hundspott með jólaljós. Hversu langt er hægt að ganga við að niðurlægja þessi grey?

Helga Magnúsdóttir, 14.12.2008 kl. 16:59

13 Smámynd: Ragnheiður

Öhh...

hafi bara hundarnir verið að pissa (og ekki frúin) þá skil ég ekki áhuga lögreglunnar á ykkur þarna í óræktinni nema þeir hafi haldið að þið væruð að stela henni (óræktinni)

Fólk stelur skringilegustu hlutum sko.

Alveg er ég viss um að Lappi og Keli færu bara ekki út með blikkandi jólaljósaólar ...ekki frekar en ég sjálf.

Ragnheiður , 14.12.2008 kl. 18:18

14 identicon

Alltaf sama öfundin í ykkur Selfyssingum í garð okkar Hvergerðinga Það er ekki spurning að bestu hljómsveitirnar og limirnir koma frá og búa í HVERAGERÐI, nema Þórir greyið í ÁMS, en hann kemur einn daginn til okkarjá sannaðu til hann flytur til okkar einn daginn

Kveðja

Hveragerðingur (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 23:01

15 identicon

Ég er í sambandi við Hvergerðing sem er vinur minn.Svo er það Erhvergi en ekki Hveragerði

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 03:58

16 Smámynd: www.zordis.com

MEIRA jammið á þér kona! Fegin að þú fórst ekki með reiknivélina á ballið ... Gott að þú skemmtir þér vel og hafir fengið í kinnarnar! Njóttu dagsins í jólaskapi!

www.zordis.com, 15.12.2008 kl. 09:27

17 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já MEIRA rosa jammið allfaf hreint......

Sko Hveragerðingur! Þegar Þórir fer þá fer ég.... Takk fyrir innlit.

Hrönn Sigurðardóttir, 15.12.2008 kl. 10:28

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha alltaf léttist á mér brúnin við að koma hingað hinn, þú getur verið hrikalega fyndinn Hrönn mín.  En það er eins gott að þú hefur ekki fordóma gagnvart Hvergerðingum, ég á nokkra góða vini þar, til dæmis bloggvinkonu mína hana Huldu, og ýmsir fleiri

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.12.2008 kl. 11:02

19 Smámynd: Dísa Dóra

hahhaha alltaf jafn gott fyrir andlitsvöðvana mína að koma hingað inn og lesa bloggið þitt

Dísa Dóra, 15.12.2008 kl. 12:54

20 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

JólaLjósaKveðjur

Steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 15.12.2008 kl. 12:58

21 Smámynd: Solla Guðjóns

Djammstuð og dillidill á minni og það undir takti Hvergerðinga

það er eða VAR geðveikt að djamma með Húrígerðingum í denn....

Hvap Hét svo hljómsveitin ??? Kannski Húrrí Gúrrý.....

Solla Guðjóns, 15.12.2008 kl. 21:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.