Fótastrímfetish!

Ég fór á nytjamarkaðinn í dag. Hitti þar Svandísi og fótastrímtækið mitt eins og Brattur kallar það ;) Keypti líka glás af gleri. Á alltaf svo erftt með að standast hluti sem glitra Tounge Fékk m.a. tólf staup fyrir skid og ingenting - einhver verður að drekka fyrir ABC börnin - ekki viljum við að þau fari að hella í sig.... Gasp Ég fórnaði mér algjörlega og af fúsum og frjálsum......! Mæli með þessum nytjamarkaði í Nóatúni - geysilegt úrval fyrir lítinn pening og ekki spillir fyrir að styrkja gott málefni í leiðinni.

Sat svo og horfði á Útsvar - með heimskulegt glott á andlitinu - og ég skal alveg trúa ykkur fyrir því, svona utan dagskrár, að það er alls ekki sá svipur sem fer mér bezt. Mér leið bara svo vel með tærnar á kafi í fótastríminu Tounge Ég get svo svarið það - ég er alveg ný kona. Svona fótastrímkona.... Pouty

Fór líka í Sjafnarblóm, blómabúðina mína á horninu, og keypti mér rósir sem fylgja mér á milli herbergja, eins og hundur í bandi. Rósir hafa ótrúlega upplífgandi áhrif á mig, þær virka á mig eins og ódýrt geðlyf....... 

Lífið er nefnilega, þegar allt kemur til alls, gott! Þrátt fyrir lygar og pretti ráðamanna - ég er mest fegin að ég er ekki innmúruð í þann félagsskap. Ég er ansi smeyk um að ekki einu sinni fallegar rósir gætu þá fært mér hugarró.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tína

Alveg er ég klár á að rósirnar og tala nú ekki um fótanuddtækið fari þér vel.

Aftur knús á þig elsku hjartans vinkona.

Tína, 6.12.2008 kl. 00:05

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 6.12.2008 kl. 00:07

3 Smámynd: Steingrímur Helgason

Þú er nú alveg ein róz sjálf..

Nú ber að verzla síld, til að brúka ákavítizstaupin !

Steingrímur Helgason, 6.12.2008 kl. 00:16

4 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Nautnaseggurinn þinn. Sé þig alveg í anda. Og finn rósa-ilminn. Í guðsfriði!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 6.12.2008 kl. 00:23

5 identicon

Fótastrím og rósir,ekki að spyrja að dekrinu þarna fyrir austan fjall.Í ofanálag við sundleikfimi og fjall og skógargöngur.Lúxus er þetta á krepputímum

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.12.2008 kl. 00:36

6 Smámynd: Vilma Kristín

Sé líka fyrir mér að láta rósablöð fljóta um í fótanuddtækinu! Það yrðu svo nuddaðar tásur með rósailm sem kæmu uppúr... geggjað...

Vilma Kristín , 6.12.2008 kl. 00:43

7 Smámynd: Solla Guðjóns

Hahah  akkúrat það sem mig vantaði núna,,,, eins geðvond og ég var fyrr í kvöld,,,, að lesa hressilegt  blogg frá þér..koddu með fótastrímtækið í heimsókn.......bara af því það verður svo gaman...það er til eitt slíkt hér á bæ.

Solla Guðjóns, 6.12.2008 kl. 01:07

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

fótastrím.... baaaaaara snilld

Sat svo og horfði á Útsvar - með heimskulegt glott á andlitinu - og ég skal alveg trúa ykkur fyrir því, svona utan dagskrár, að það er alls ekki sá svipur sem fer mér bezt. 

Þú drepur mig kona...

takk fyrir frekar mikið yndislega kveðju mín megin.

Jóna Á. Gísladóttir, 6.12.2008 kl. 01:13

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Greinilega ein sem kann að njóta lífsins, sé þig í anda með glott og fætur í bleyti.  Njóttu helgarinnar mín kæra

Ásdís Sigurðardóttir, 6.12.2008 kl. 05:19

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Til lukku með fótastrímtækið  Mun hugsa til þín yfir næstu útsendingu Útsvars

Sigrún Jónsdóttir, 6.12.2008 kl. 08:25

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Elska yður.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.12.2008 kl. 09:09

12 identicon

Hrönn - elska þig einnig.  Þú skrifar yndislega pistla.  Takk fyrir þetta og ég vona að þú finnir eitthvað skemmtilegt á mörkuðum laugardagsins.

Ástarkveðjur

Unnur Sólrún (IP-tala skráð) 6.12.2008 kl. 09:48

13 Smámynd: www.zordis.com

Ást of friður!

Ég ætla að kenna ljónshjartanu að taka myndir og öplóda svo við hin getum séð svip nautnarseggsinsþ Lovjú girl!

www.zordis.com, 6.12.2008 kl. 10:07

14 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Nú hefði ég viljað vera dauð fluga á vegg hjá þér kæra vina..... sé þig alveg fyrir mér með fæturna á kafi í tryllitækinu brosandi eins og hross í afmæli...... Nú verð ég barasta að redda mér göngugipsi og arka af stað til þín....

Fanney Björg Karlsdóttir, 6.12.2008 kl. 12:55

15 Smámynd: Hugarfluga

Í mínu tilviki ert það ÞÚ sem hefur uppbyggjandi áhrif á mig og gefur mér hugarró!  Sé þig alveg í anda að þvælast um allt heimilið með rósirnar. Hahaha

Hugarfluga, 6.12.2008 kl. 13:32

16 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Kærleiksknús frá Lejre til þín sem situr sennilega í streemmmtækinu

s

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 6.12.2008 kl. 18:32

17 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Ha ha ha! Krúttið þtt!

Það þarf ekki mikið til að gleðja þig....þú ert frábær..með og án fótastrímtækis...

Bergljót Hreinsdóttir, 6.12.2008 kl. 19:43

18 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Anna Ragna Alexandersdóttir, 6.12.2008 kl. 21:59

19 Smámynd: Huld S. Ringsted

Mig langar í svona fótastrímtæki ................................kannski ég bæti því á jólagjafalistann

Huld S. Ringsted, 6.12.2008 kl. 22:53

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Fótastrímkonan hehehe það sem þér dettur ekki í hug kona mín.  Og ég sé rósirnar fyrir mér, eltandi þig milli herbergja   Mikið er ég sammála þér með ráðamennina, þar duga engar rósir og jafnvel ekki vín.  Takk fyrir enn eina frábæru færsluna 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.12.2008 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.