Skjálftastrípur og jólasnjór

Þið megið óska mér til hamingju!

Ég er búin með peysuna! Það tók mig 14 mánuði en það hafðist!! Nú á ég bara eftir að finna nál til að ganga frá nokkrum lausum endum- vona og bið að það taki mig ekki alveg jafn langan tíma - þrátt fyrir að í jarðskjálftanum hér í vor hafi nokkrir hlutir orðið viðskila - eins og mömmusinnardúlludúskur kallar það þegar við finnum ekki eitthvað sem við héldum að væri á vísum stað W00t Ég kem svo til með að lána Geir H. nálina en ekki fyrr en ég er búin að nota hana......

Ég eldaði grænmetissúpu í hádeginu að hætti Zordisar, bakaði brauð með, að mínum hætti og bauð mömmu í mat! Ferlega góð súpa, ég mæli hiklaust með henni ég skal svo gefa ykkur upp símann hjá mömmu ef þið viljið líka bjóða henni í mat. Það er alveg forskrift að góðum málsverði InLove

Ég pantaði mér tíma í klippingu og skjálftastrípum. Ég fékk nefnilega úthlutað bótum frá Viðlagatryggingu fyrir skemmdir á fasteign í títtnefndum skjálfta. Ég trúi því og treysti að það liggi þung viðurlög við því ef ég geri ekki eitthvað fyrir fasteignina sem ég kýs að kalla hár fyrir þann pening Tounge

Enda  - hver þarf að búa í heilu húsi þessa dagana? Ég leigi hvort sem er bara einhverjum af erlendu bergi brotnu þegar ég sting af. Það er nóg til af Pólverjum Sideways

Bígúd Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Gód! Mamma zín verdur sennilega mjög bissy í matarbodum á naestunni.

Til hamingju med peysuna, 14 mánudir eru fljótir ad lída og zad vitum vid sem eigum hvort tíma né rúm. Ég skal ganga frá zéssu í naestu Íslandsferd sem verdur fljótlega.

Kossar og knúsur á zig, zúsundzjalakona!!

www.zordis.com, 14.11.2008 kl. 14:08

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ætla að hafa svona súpu á morgun.

Takk og til hamingju með strípurnar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.11.2008 kl. 15:09

3 Smámynd: Dísa Dóra

til lukku með að vera búin með peysuna

Hér er ætlunin að fara í skjálftastrípur í byrjun des svo ég verði nú líka fín um jólin

Dísa Dóra, 14.11.2008 kl. 15:14

4 Smámynd: Vilma Kristín

Til hamingju með peysuna.

Ég hef lagt það í vana minn að bjóða sjálfri mér í mat hjá mömmum vinkvenna minna, hef aldrei dottið í hug að bjóða mömmu einhvers annars í mat.   Það er alveg nýstárleg hugmynd!

Vilma Kristín , 14.11.2008 kl. 15:55

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

knus frá mér

steina í lejre

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 14.11.2008 kl. 16:09

6 Smámynd: Hugarfluga

Mynd af peysunni, takk fyrir! Og súpan; mmmmm ... eeeelska súpur. Gæti lifað á þeim eingöngu. Og stinga af hvað? Þú mátt það ekki .. ég segi.  Lovjú.

Hugarfluga, 14.11.2008 kl. 16:31

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Súpan er hrikalega góð! Ég er enn að springa úr söddu.... ;)

Vilma! Þetta heitir nálgun frá nýju horni :) Viltu símann hjá mömmu?

Lovjútú Fluva

Knús á ykkur  

Hrönn Sigurðardóttir, 14.11.2008 kl. 16:52

8 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Er þetta ekki eins og með kjötsúpuna,  best á þriðja degi?   Nema hún klárist strax.    Skjálftakrúttkveðjur.  

Marinó Már Marinósson, 14.11.2008 kl. 18:55

9 Smámynd: Þröstur Unnar

Hvað kostar lopinn. Eða er hann ekki til sölu?

Ég er brotinn af útlenskum kletti. Hver er leigan?

Maður spyr sig.

Þröstur Unnar, 14.11.2008 kl. 19:01

10 identicon

Hvort sem það er súpa eða peysa, strípur eða skjálfti, þá verður það allt svo skemmtilega gott, fyndið, fallegt og eðlilegt í þínum meðförum hér.  Ég er viss um að allt sem þú nefnir er alveg frábært.  Ég sé þig fyrir mér í peysunni (sammála myndbirtingu) með grænmetissúpuna fyrir framan þig og glansandi fína með skjálftastrípur. 

Allra bestu kveðjur

Unnur Sólrún (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 20:11

11 Smámynd: Ragnheiður

Ef það er bara hægt að gefa henni mömmu þinni súpu þá segi ég pass, ekki dugleg súpukelling sko. Mér finnst að svoleis glundur eigi að vera í bolla eða glasi en ekki í skál og sull með skeið. Undanskilin er kjötsúpa að hætti hússins.

Uhhh....hálft hús ? ekki fara plís...plís...

Ragnheiður , 14.11.2008 kl. 20:16

12 Smámynd: Róbert Tómasson

Zordís gefur súpu ráð

sjálf þú bakar brauðið

Mér finnst það vera mikil dáð

hvernig þú eyðir bótunum.   hehe

Hljóp smá snuðra á kveðskapinn svona alveg í restina en hú kers ég fell aldrei lengra en krónan. 

Róbert Tómasson, 14.11.2008 kl. 21:14

13 Smámynd: Solla Guðjóns

Prjónaði rúmt árið

með dokkur sér að fótum

strípur fær í hárið

greiddar með skjálfatbótum.

knús á þig dæta

Solla Guðjóns, 14.11.2008 kl. 21:34

14 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hehe hljóp í ykkur skáldagyðjan? Dúllur sem þið eruð

Nei Ragga mín ég skal vera

Takk Sólrún

Þröstur! Ef ég teygi lopann þá get ég kannski selt hann dýrar.......

Marinó! Skjálftakrúttkveðjur

Hrönn Sigurðardóttir, 14.11.2008 kl. 22:06

15 Smámynd: Heiða  Þórðar

Heiða Þórðar, 15.11.2008 kl. 09:52

16 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Nú þarf ég að koma og sjá strípurnar, peysuna og að sjálfsögðu þig sjálfa.....nema að þú eigir leið austur fyrir Þjórsá... einkadriverinn minn er nebbla í fríi...

Fanney Björg Karlsdóttir, 15.11.2008 kl. 10:43

17 Smámynd: Tína

Hver á svo að fá peysuna? Hlakka til að sjá viðgerðirnar á fasteigninni krútta.

Njóttu nú helgarinnar

Tína, 15.11.2008 kl. 11:58

18 identicon

Ummmmmmmmmmmm grænmetissúpa og strípuleiðangur

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband