Persónur og leikendur....

Eftirfarandi "samtal" átti sér stað einn myrkan morgun við árbakka á ótilgreindum stað....

Persónur og leikendur: Maður á hjóli - óþekkt kona með óstýriláta hunda - tveir óstýrilátir hundar!

Forsaga: Óþekkt kona með óstýriláta hunda gengur í þungum þönkum eftir árbakka - hefur þó, að eigin sögn, vakandi auga með áðurnefndum óstýrilátum hundum! Maður á hjóli kemur aðvífandi. Maður á hjóli snarbremsar þegar hann kemur auga á óþekkta konu með óstýriláta hunda og rennur við það til í hálku sem skyndilega hefur myndast.

Maður hjóli: Freeeekar þungmæltur - enda brugðið eftir að hafa runnið til á hjóli sínu. "Þú átt að hafa hunda í bandi"

Óþekkt kona með óstýriláta hunda: "Þeir eru í bandi - passaðu þig að flækjast ekki í því....."

Maður á hjóli: Þegar hann áttar sig á því að Óþekkt kona með óstýriláta hunda er að gabba hann....: "Hvurslags er þetta? Þeir eru ekkert í bandi" 

Maður á hjóli lætur óprenthæft orðbragð rigna yfir Óþekkta konu með óstýriláta hunda......

Maður á hjóli lýkur máli sínu með því að arga ergilega: "Ég hringi á lögguna..."

Óþekkt kona með óstýriláta hunda: "Já - ertu með síma eða á ég að lána þér minn....?" Tounge

Óþekkt kona með óstýriláta hunda kom hrikalega vel út úr blóðþrýstingsmælingum seinna sama morgun - hef ég heyrt............

Í þeirri sömu blóðþrýstingsmælingu var haft á orði að nú sæist ekki lengur "hverjir drekka Egils kristal" Nú sæist bara hverjir ættu ekki hlutabréf Tounge

Góðar stundir InLove

PS - Ef ekkert heyrist frá mér næstu daga eruð þið beðin að athuga hjá hundafangara Suðurlands hvort Óstýrilát kona hafi verið fönguð. Framlögum vegna söfnunar lausnargjalds er vel tekið Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Hvað er þessi kona að þvælast í myrkrinu með óstýriláta hunda, veit Hlín litla af þessu?

Annars er allt rólegt eftir upplifanir dagsins og kona komin með eðlilega eða var þeð eðlulegan þrýsting á bak við augun! 

"hvaða fíbbl hjólar í hálku?"

www.zordis.com, 8.10.2008 kl. 20:49

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Zordis! Ég held að Hlín litla hafi ekki hugmynd um þetta! Ekki frekar en ég skil hvað þessi kona er pukrast í myrkrinu.....

Það eru náttla bara fíbbl sem hjóla svona kæruleysislega í hálku ;) 

Hrönn Sigurðardóttir, 8.10.2008 kl. 21:17

3 Smámynd: Brattur

... ég varð eiginlega snarruglaður á þessari frásögn... óstýrilátir hundar á reiðhjóli, óþekk kona og góðkunningi  löggunnar...  og maður veit ekki einu sinni hvort sagan endaði vel eða illa...

Brattur, 8.10.2008 kl. 21:57

4 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þú meinar óstýrláta konan með hund og annan í bandi ... eða hund í bandi og hinn á randi ....

Það eru engin takmörk fyrir fyndninni sem rennur í mjög svo stríðum straumum uppúr fólki af áður óþekktri stærðargráðu í krepputíðinni ....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 8.10.2008 kl. 22:08

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þessi kona á ekki að ganga laus.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.10.2008 kl. 22:17

6 Smámynd: Vilma Kristín

ja, hver er óstýrilátur? Hundarnir, konan eða maðurinn sem ræður ekki við sig á hjólinu? Ég bara spyr.

Vilma Kristín , 8.10.2008 kl. 22:30

7 Smámynd: Steingrímur Helgason

Hundarnir eiga að hafa vit á að hafa þezza óztýrilátu konu í bandi svo að nágrennið hjólbrjálizt ekki í hálkunni.

Steingrímur Helgason, 8.10.2008 kl. 22:33

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála Jenný þessi óstýriláta kona með óþekkta hunda í bandi á ekki að ganga laus

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.10.2008 kl. 22:38

9 Smámynd: Gulli litli

Sammála ykkur..

Gulli litli, 8.10.2008 kl. 22:39

10 Smámynd: SigrúnSveitó

Þú ert fyndnust! Ég fer ekkert ofan af því!

Knús..

SigrúnSveitó, 8.10.2008 kl. 23:09

11 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég tel að óstýriláta konan eigi að nota síðasta og ein símtal (þegar löggan hefur náð henni) til að hringja í mig........mannst ég er innundir

Solla Guðjóns, 9.10.2008 kl. 00:05

12 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þú ert hér með ráðin til að létta lund þjóðar

Sigrún Jónsdóttir, 9.10.2008 kl. 01:10

13 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Kannast við svona óstýrlátar aðstæður. Alveg ómögulegt að greiða úr flækjunni.

Steingerður Steinarsdóttir, 9.10.2008 kl. 14:59

14 identicon

 Óstýrilát kona ?

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 16:56

15 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Skömmin þín.......

Fanney Björg Karlsdóttir, 9.10.2008 kl. 19:58

16 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Settu bara hundana á hjólið og hafðu kallinn í bandi. Hann á greinilega ekki að ganga laus.

Helga Magnúsdóttir, 9.10.2008 kl. 20:17

17 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Helga! Þarna kom lausnin

Fanney! Jebb kann ekki að skammast mín

Steingerður! Nákvæmlega það er ekkert sem hægt er að gera! Eins gott að brúka aðeins munn með því....

Solla! Gat nú verið að þú vissir allt um það - vertu viss ég hringi

Birna Dís og Sigrún

Sigrún! Takk

Brattur! Lesa bara hægt...

Guðný Anna og Jenný Anna! Eruð þið eitthvað skyldar?

Vilma! Ég þori ekki að segja það sem ég held.... Ég veit ekki nema kona mannsins sé læs

Steingrímur, Cesil og Gulli - smjúts á ykkur. 

Hrönn Sigurðardóttir, 9.10.2008 kl. 20:46

18 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 9.10.2008 kl. 20:59

19 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hú erd bjáluð addna

Jóna Á. Gísladóttir, 13.10.2008 kl. 09:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband