Baðtúr og Eurovision

Picture 361Skaust niðr´í fjöru að fylgjast með hestunum baða sig! Alltaf svo gaman að fylgjast með baðtúrnum og stundum sér maður sæta stráka líka..... Tounge

Er orðin stoltur eigandi bæði fuchiu og dornrósar. Skrapp í Garðyrkjustöð Ingibjargar í gær og lét þetta eftir mér. Er búið að langa í mörg ár í rós út í garð. Mér var sagt það í fyrrahaust að dornrósin væri kjörin fyrir byrjendur. Nú þarf ég bara að moka holu og gróðursetja rósina.... 

Það fór aldrei svo að mér yrði ekki boðið í Eurovision partý. Magga hringdi InLove hefur líklega fundið á sér að ég ætti enga vini..... W00t Bauð mér í grill og party. Nú þarf ég bara að finna mér land að halda með. Þarna verða líka tvær þýzkar stelpur þannig að ekki held ég með Þýzkalandi....

Hvaða landi ætlið þið að halda með?

Pís InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

"Dornrósin kjörin fyrir byrjendur" Ég byrjaði með rabbababbarababba já eða rabbarbara. Gengur fínt. Tala við hann á hverjum degi og segi honum að hann þurfi ekkert að óttast konuna undir rúminu og stubbalinginn hennar. Hann komi til með að enda í krukku heima hjá sér í Mosó, en ekki á Selfossi.Sit annars hér og horfi á Júróvisjón. Var ekki örugglega búið að banna stripdans...hmmm

Halldór Egill Guðnason, 24.5.2008 kl. 19:57

2 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

.... ég ætla nú bara að halda með Íslandi.... held ég.... alla vega ekki kisunni frá Svíþjóð...... en að öðru... hlakka til að koma og skoða rósina hjá þer.....

Fanney Björg Karlsdóttir, 24.5.2008 kl. 22:18

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Rússlandi

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.5.2008 kl. 22:28

4 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Íslandi. Myndi halda með Færeyjum ef þetta væri ekki svona vanþróað ...

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 24.5.2008 kl. 22:51

5 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég sé alveg fyrir mér að ég eigi eftir í framtíðinni að halda með Vestmanneyjum eða miðhálendinu

Solla Guðjóns, 25.5.2008 kl. 00:34

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Dornrósin er sterk og "dugleg"! kannski verða 18 rauðar rósir búnar að blómstra hjá þér í haust.

Ég reyndi að kjósa Danann en það var alltaf á tali, veit núna af hverju

Sigrún Jónsdóttir, 25.5.2008 kl. 02:09

7 Smámynd: www.zordis.com

Og hvernig var stemmingin í partý inu?

Ég hélt med Íslandi, fyrst og fremst en zad voru morg skemmtileg log og léttklaeddir flytjendur!

www.zordis.com, 25.5.2008 kl. 10:05

8 identicon

Ég kaus Ísrael og Norðmenn.Grill hjá mér í gærkvöldi.Og súkkulaðirúsínur í eftirmat.Íslendingar voru góðir og skemmtilegir.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 25.5.2008 kl. 12:00

9 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ég kaus sænska lagið.

Marta B Helgadóttir, 25.5.2008 kl. 12:56

10 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég kaus Albaníu.

Helga Magnúsdóttir, 25.5.2008 kl. 16:51

11 Smámynd: Rebbý

ég kaus mér 3 lög .... Danmörk, Frakkland og Króatíu (svona fyrir vinina mína)

Rebbý, 25.5.2008 kl. 18:57

12 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég kaus danska lagið. Var ekki gaman í partíinu ljúfust.

Hafðu það gott Hrönn mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 25.5.2008 kl. 19:20

13 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég kaus ekki neitt en maðurinn minn kaus Finnland og Albaníu að mig minnir. Var ekki stuð í partíinu? ég hugsaði einu partíi þegjandi þörfina þar sem liðið söng fram eftir nóttu gömul Eurovision lög og gerðu það úti í garði

Huld S. Ringsted, 25.5.2008 kl. 20:49

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Dornrósin er ein sú fegursta og pottþéttasta rós fyrir byrjendur Hrönn mín, mundu bara að setja hana nógu djúpt niður, og hafði nægan skít.  Hún launar þér svo ríkulega, en mundu bara að hún getur orðið einn og hálfur metri að minnsta kosti, ef henni líður vel.  Til hamingju með hana. Blóðdropar krists eru líka flottir.

En ég held að ég geti bara ráðlagt þér næsta ár með Júrívisjón, því nú er því öllu lokið, og okkar fólk á allan sóma skilinn.  Knús á þig baðdrottning.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.5.2008 kl. 22:14

15 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jú Cesil - enda varst það þú sem bentir mér á hana.....

Huld! Ég var ekki í því partýi...... held ég.......

Katla mín krútt! Jú það var gaman

Rebbý! Við erum nokkuð á sama róli - nema mér fannst Frakkland glatað..... Hvenær hættu Frakkar að syngja á frönsku?

Helga! Albanía var flott

Marta!

Birna Dís! Við höfum þá sameinast í súkkulaðirúsínum.... ;)

Þórdís! Stemningin var góð - sérstaklega þegar líða tók á kvöldið og ég komst á flug með lygasögur.....

Sigrún! Sjáumst í haust

Solla, Guðný Anna og Jenný

Fanney! Rósin getur ekki beðið eftir að kynnast þér

Hallgerður! Ég er ekki frá því að pabbi þinn hafi haft rétt fyrir sér....

Halldór! Byrjendur smyrjendur.........

Hrönn Sigurðardóttir, 25.5.2008 kl. 23:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband