Kynþokki!

Í hverju felst kynþokki? Er það útlit? Framkoma? Útgeislun? Allt þetta og meira til....?

Horfði á hávtúlúkkgúddneiked í gærkvöldi - náði þættinum klukkutíma seinna..... Fékk smá áhyggjukast yfir því að ég hefði gleymt honum..... ég meina hvernig á ég ever að ná að lúkka vel nakin ef ég gleymi alltaf að horfa? Tounge

Mér finnast þessir þættir algjörlega frábærir. Þarna sýnir hann á innan við klukkutíma öll helstu trixin! Og allt virkar svo einfalt......

Ef þið ættuð að velja kynþokkafyllsta karlmann sem þið þekkið - hvern munduð þið þá velja? Nú eða konu ef Gunni Palli kokkur og Markús slæðast hér inn............ W00t

Ein lauflétt að lokum.....

....hvaða ár vann Dana Eurovision? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Sko, vantar þessa þætti hingað ...  How 2 lúkk gúdd neiked er svei mér þá auðvelt .... loka bara augunum og nota ýmindunaraflið!

Takk fyrir sendinguna!  Nú vantar mig bara rabbarbarann!!!

Ég ætla að hugsa um hvaða einhvern kynþokkafullan karlmann og kíki við seinna í dag! 

www.zordis.com, 22.5.2008 kl. 10:00

2 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Já, í kvæðinu segir: Því sumir hafa sexappíl og sumir ekki neinn en seint við fáum svar við því hvað sexappíllinn er því hver er hvað og hvað er hver og hver er ekki hvað.

Steingerður Steinarsdóttir, 22.5.2008 kl. 10:03

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já Steingerður! Kannski er það misjafnt hvað dregur hvern að hverjum......

Zordís! Sá honum.......... Rabbarbaranum - það er víst ekki hægt að sá hinum

Hrönn Sigurðardóttir, 22.5.2008 kl. 10:06

4 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Ja, í mínum augum kemur kynþokki frá sjálfstrausti, snyrtimennsku og húmor. En auðvitað spilar margt annað inn í. Aðalmálið er samt að hafa gaman af því að vera til.

Dana vann 1970 og Dana international 1998

Markús frá Djúpalæk, 22.5.2008 kl. 10:14

5 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Gleymdi. Þurfum við að þekkja viðkomandi kynþokkafullu manneskju persónulega, eða má þetta vera einhver frægur sem sést bara úr fjarskanum? Ja skíttolaggó, af því að það er þessi vika segi ég Páll Óskar.

Markús frá Djúpalæk, 22.5.2008 kl. 10:16

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nei nei Markús! Þarft ekki að þekkja viðkomandi persónulega ;)

Páll Óskar er flottur

Hrönn Sigurðardóttir, 22.5.2008 kl. 10:18

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er alltaf falleg með og án klæða.  Þarf engin trix

Kynþokkalisti

!. Húsband, habababa.

2. Jim Morrison (látinn en sexý)

3. Keith Richard

5. George W. Bush

Ef ég sagt þér að ég hata lista?

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.5.2008 kl. 10:44

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Af hverju trúi ég bara tveimur fyrstu á listanum...?

Hrönn Sigurðardóttir, 22.5.2008 kl. 10:46

9 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Nú langar mig samt mest að vita hver ósýnilegi maðurinn nr. 4 á listanum er....

Markús frá Djúpalæk, 22.5.2008 kl. 10:50

10 Smámynd: Linda litla

Vá kommon....

Richard Gere

George Clooney

Sean Connery

Daniel Craig (namminamminamm)

Steven Tyler

Gæti talið mikið lengur upp þessa kynþokkafullu, en í fljótu bragði dettur mér enginn íslenskur í hug. þeir hljóta samt að vera margir þó að ég muni engann.

Linda litla, 22.5.2008 kl. 11:40

11 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Linda, þú ert greinilega gefin fyrir menn á virðulegum aldri, ja allavega svona allt að 80%.

Markús frá Djúpalæk, 22.5.2008 kl. 11:46

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Steven Tyler? Hver er það?

Hrönn Sigurðardóttir, 22.5.2008 kl. 11:51

13 Smámynd: Linda litla

Markús: Karlmenn á þessum aldri eru bara svo oft kynþokkafullir, miklir sjarmar.

Steven Tyler er söngvari Aerosmith. Síðhærður, mjög grannur með stórann kyssulegan munn smjatt smjatt.

Linda litla, 22.5.2008 kl. 12:12

14 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

..og á leið í meðferð.

Markús frá Djúpalæk, 22.5.2008 kl. 12:30

15 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Markús frá Djúpalæk, 22.5.2008 kl. 12:31

16 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Það eru svo markir kynþokkafullir. Ég hef ekki tölu um það

Knús

Kristín Katla Árnadóttir, 22.5.2008 kl. 13:44

17 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Katla! Gaman að sjá þig

Markús! Vertu spakur. Linda stefnir örugglega ekki í kvöldskóla og hjónaband með Stevie ;9 

Hrönn Sigurðardóttir, 22.5.2008 kl. 14:00

18 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Já, skal vera góður

Markús frá Djúpalæk, 22.5.2008 kl. 14:49

19 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Mér finnst Krúsi dúlla laaaaaangsexýastur... sérstaklega með hattinn.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 22.5.2008 kl. 14:53

20 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Kynþokki??  Þetta hefur víst allt með efnafræði að gera segja þeir sem stúdera.

Silikonið kemur sterkt inn hjá körlunum, það hefði t.d. ekki verið fundið upp án efnafræðinnar.

Konur sjá eitthvað allt annað en karlarnir, eru rómantískari einhvernvegin, augun koma sterkt inn hjá þeim svona upphátt, en vöxturinn á alla kanta er það sem vinkonur tala um sín á milli.  Vel vaxinn karlmaður, bæði upp og "niður" hefur mikil áhrif á þeirra "efnafræði" (cemistry).

Ég er orðin svo gömul, eins og á grönum má sjá, að það eru hláturtaugarnar sem örva mest hjá mér.

Sigrún Jónsdóttir, 22.5.2008 kl. 14:55

21 Smámynd: Linda litla

Ég er reyndar ekki viss um að ég myndi neita honum ef hann myndi biðja mín hehehe

Linda litla, 22.5.2008 kl. 14:57

22 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Takk, Helga mín, it takes one to know one

Markús frá Djúpalæk, 22.5.2008 kl. 14:58

23 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

En ég endurtek: Dana vann 1970 og Dana international 1998

Markús frá Djúpalæk, 22.5.2008 kl. 15:11

24 Smámynd: Rebbý

kynþokkinn hérna heima er td Hilmir Snær - nóg að heyra röddina í honum til að kveikja í mér

annars er kynþokkinn mikið til bara sjálfsöryggið og útgeislunin og svo húmorinn og daðurhæfileikinn kemur manni langt líka (eins og við Hrönn vitum báðar)

Rebbý, 22.5.2008 kl. 15:15

25 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Daður gerir maður graður...

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 22.5.2008 kl. 15:19

26 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 22.5.2008 kl. 15:20

27 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Varðandi sexapíl þá finnst mér bad boy syndrómið alltaf dáldið freistandi, jebbs, så då så

mest sexy leikarar á hvíta tjaldinu (hmmm...gildir það fyrir "sem þið þekkið"?) eru Liam Neeson og Brad Pitt   

Marta B Helgadóttir, 22.5.2008 kl. 15:28

28 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sammála þér með Liam Neeson en Pitt er aðeins of eitthvað.....

Hrönn Sigurðardóttir, 22.5.2008 kl. 15:45

29 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sammála þér með Árna Pálsson

En Bjartur í Sumarhúsum er aðeins of durtslegur fyrir minn smekk..... 

Hrönn Sigurðardóttir, 22.5.2008 kl. 15:46

30 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

....ég verð samt að koma því að að ég varð fyrir vonbrigðum með að enginn valdi mig....

Hrönn Sigurðardóttir, 22.5.2008 kl. 15:56

31 Smámynd: Linda litla

Hver er Árni Pálsson ?

Linda litla, 22.5.2008 kl. 16:35

32 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hehe það er von þú spyrjir..........

Hrönn Sigurðardóttir, 22.5.2008 kl. 16:39

33 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Ég lúkka mun betur nakin eftir að ég sá þessa þætti

...Gary Dourdan, Mark Ruffalo, Lenny Kravitz, Keanu Reeves... 

Og takk fyrir síðast sömuleiðis! Bið að heilsa á Selfoss!

Laufey Ólafsdóttir, 24.5.2008 kl. 11:56

34 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Heyrðu maður, ég gleymdi Jude Law! ...og örugglega einhverjum fleirum.

Laufey Ólafsdóttir, 24.5.2008 kl. 12:00

35 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Kynþokki felst í augnaráði og gáfum. Allt annað skiptir eiginlega bara engu máli! Skoðun þessi er í boði GAAgaaLaGú.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 24.5.2008 kl. 12:46

36 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Takk fyrir síðast, Hrönn og Laufey. Mér fannst gaman og heiður af að vera boðið á þennan bloggvinahitting.

Markús frá Djúpalæk, 24.5.2008 kl. 15:46

37 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Takk sömuleiðis Markús! Þú varst alveg jafn fyndinn og skemmtilegur og ég hélt þú værir

Hrönn Sigurðardóttir, 24.5.2008 kl. 18:23

38 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

 

Markús frá Djúpalæk, 26.5.2008 kl. 18:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband