4.3.2008
Allt önnur jöfnun!
Stúfur Stubbalings datt í lukkupottinn um daginn - og hefur ekkert komið upp úr honum síðan. Það byrjaði með því að kona, sem vinnur í næsta húsi, kom færandi gjafir, bein, bolta og kaðal - sem í hans huga jafnast á við gull, reykelsi og mirru
Í morgun var hann svo stálheppinn að finna kjötbita sem einhver hefur ætlað Krumma....... Hann lagði mikið á sig að grafa bitann upp úr djúpum skafli og bar hann svo alla leið heim, frekar hróðugur og passaði að ég næði ekki bitanum af honum! Ég hafði ekki brjóst í mér til þess eftir alla þessa fyrirhöfn. Hann faldi hann svo þegar við komum heim og á meðan ég fór í leikfimi, hámaði hann í sig kjötbitann og hló allan tímann. Ég er alveg viss um að á morgun reynir hann að stela öðrum bita............
Ég tók þess vegna virkan þátt í leiknum og þóttist ekkert vita hvar hann hefði sett kjötbitann - og arkaði síðan í leikfimi. Beta er í fantaformi þessa dagana og lætur okkur heldur betur taka á. Hrikalega góð leikfimi hjá henni - og þeim stelpunum. Enginn tími eins og allir góðir!! Í dag var áherzlan á rass, læri og maga. Sem er gott með tilliti til þess að páskarnir nálgast óðfluga og þá get ég borðað páskaegg með góðri samvizku. Ég verð nefnilega búin að kaloríujafna og kem til með að eiga inni nokkrar kaloríur um páskana.......
Ég stræka á alla árans ekkisen kolefnisjöfnun - ég kaloríujafna!!
Toppiði það
Athugasemdir
hahaha já maður ætti bara að fara í að kaloríujafna
Dísa Dóra, 4.3.2008 kl. 09:49
Lýst vel á kaloríujöfnun, einhver tips
Stubbalingurinn er flottastur enginn spurning um það.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.3.2008 kl. 10:11
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 10:18
Sniðugur er hann voffi
Brynja skordal, 4.3.2008 kl. 10:18
Þeir vita nokk hvað þeir eru að gera hann er svo mikið krútt stuppalingurinn.
Kristín Katla Árnadóttir, 4.3.2008 kl. 10:25
Mikið ertu árans, fjárans dugleg! Þú verður "ert nú þegar" fyrirmyndin mín .... ég komst ekki í morgun vegna vinnu í sprikklið .... Já, þessi vinna truflar!
Eigðu lukkunnar dag!
www.zordis.com, 4.3.2008 kl. 10:45
Já hún slítur ansi mikið í sundur fyrir manni þessi vinna, Þórdís......Og takk sömuleiðis

Cesil þú mætir bara í sundleikfimi hjá Betu! Málið er dautt
Hrönn Sigurðardóttir, 4.3.2008 kl. 10:48
Þessi hundur þinn er nú meiri krúttklessan! Áhersla á maga, rass og læri segirðu? Ég legg einmitt mikla áherslu á þessa líkamshluta. Borða mikið svo þeir stækki mikið. Sei sei já.
Hugarfluga, 4.3.2008 kl. 11:34
Stúfur stubbalings langflottastur í leit sinni.
Kalóríujafna.......nee get ekki toppað þig
Takk fyrir skemmtilega og þó nokkuð kalóríuríka stuna áðan

Solla Guðjóns, 4.3.2008 kl. 18:18
Takk sömuleiðis Ollasak
Hrönn Sigurðardóttir, 4.3.2008 kl. 18:39
Takk fyrir skemmtilegan og kaloríugóðan hitting áðan
Gaman að sjá þig loksins - lofa að fara ekki yfir á hina gangstéttina í framtíðinni

Dísa Dóra, 4.3.2008 kl. 18:42
heheheh Dísa takk sömuleiðis - gaman að hitta þig og litlu dúlluna
Hrönn Sigurðardóttir, 4.3.2008 kl. 18:52
Asskoti sem þú getur hámað í þig gúmmelaði á páskunum. En finnst þér ekki jólin alveg nýbúin og það er að bresta á með páskum. OMG
Jenný Anna Baldursdóttir, 4.3.2008 kl. 19:36
Jú Jenný
og styttist í næstu jól!!
Hrönn Sigurðardóttir, 4.3.2008 kl. 19:42
Ásdís Sigurðardóttir, 4.3.2008 kl. 20:24
njóttu eggsins um páskana, það ætla ég líka að gera þrátt fyrir skort á kaloríujöfnun
Rebbý, 4.3.2008 kl. 20:49
Algjört krútt hann stubbalingur
Huld S. Ringsted, 5.3.2008 kl. 13:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.