Næturleikfimi...

Skokkaði út á Golfvöll áðan með Ljónshjartað, eða það er að segja út að rimlahliðinu, þar tiplaði ég mjög varlega yfir bæði vegna þess að ég er logandi hrædd um að falla niður á milli og svo er bara 35 km. hámarkshraði þar Tounge Tók brekkuna tvisvar í staðinn á leiðinni heim.

Nú er ég búin að mála tvö herbergi og ganginn á milli þeirra. Þarf að forfæra eitthvað af húsgögnum. Held ég láti þetta duga af innanhússframkvæmdum í bili. Mundi aldrei nenna að vera málari.............. Ætli ég snúi mér ekki af fullum krafti að nýju vinnuni í staðinn. Mér sýnist ekki vanþörf á einhverri skipulagningu þar og alltaf kem ég sterk inn ef einhversstaðar er skortur á ákveðni LoL

Jarðskjálftarnir virðast vera í rénum, kom nú samt einn ansi hryssingslegur í gær þegar ég var að klára að mála ganginn og svo annar í gærkvöldi, en það er eins og áður, það þykir ekki fréttnæmt þótt ég skjálfi hér á beinum ef enginn titrar í Reykjavík Devil

Góða helgi InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Í Borg Óttans eru ekki náttúruhamfarir aðrar en þær að fólk er að slást og sollis af ónáttúrlegum hvötum.

Forfæra, forfæra??? Mér brá þýðir að hilla eða taka á löpp á sænskri tungu.  Hehe, ekki forfæra húsgöginin kona, minni aftur á að þér eruð MÓÐIR

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.10.2007 kl. 09:37

2 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Já Hrönn mín það er betra að fara að öllu með gát..og láta ekki grípa sig fyrir of  hraða göngu hjá déskotans pípuhliðinu..... og svo tek ég undir með Jenny.... engan dónaskap við húsgögnin.....

Fanney Björg Karlsdóttir, 27.10.2007 kl. 12:50

3 Smámynd: Marta B Helgadóttir

... halda sig á löglegum hraða, líka á skokkinu 

Marta B Helgadóttir, 27.10.2007 kl. 15:33

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahahaha ég á svo dónaleg húsgögn!! En hvernig hugsið þið eiginlega

Hrönn Sigurðardóttir, 27.10.2007 kl. 15:41

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jarðskjálftar úbbs, heppin er ég að hér er ekkert svoleiðis. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.10.2007 kl. 17:05

6 Smámynd: Dísa Dóra

var einmitt í sundi þegar seinni skjálftinn kom í gær og það drundi ansi vel í sundhöllinni

Fáum við nokkuð að sjá myndir af forfæringunum??

PS Takk fyrir kveðjuna

Dísa Dóra, 27.10.2007 kl. 22:23

7 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þekki þetta með rimlahliðið, en sé hvað það er í raun fyndið þegar ég les bloggið þitt !!!

knús kæra kona

AlheimsLjós til þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.10.2007 kl. 22:47

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það er ekkert mál að vera málari, ef maður þarf ekki líka að færa allt til og þrífa svo á eftir. Við vonum að ekki skjálfi meira í bili. Sjáumst.

Ásdís Sigurðardóttir, 28.10.2007 kl. 00:56

9 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ég fæ alltaf svo mikið samviskubit þegar ég lít á atorkusemina hér á þessum bæ...að ég er að hugsa um að vera ekkert að kíkja við hjá þér Hrönnsla mín, láta af sjálfseyðingarhvötinni...alveg þar til ég er búin að mála blessað barnaherbergið og fl. Knús á þig darling.

Heiða Þórðar, 28.10.2007 kl. 16:12

10 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Jæja nú þarf að lesa nýjasta nýtt á minni síðu.

Marta B Helgadóttir, 28.10.2007 kl. 20:47

11 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Þú ert nú meiri dugnaðar forkurinn Hrönn.

Kveðja:

Sigfús Sigurþórsson., 28.10.2007 kl. 20:55

12 Smámynd: Huld S. Ringsted

það þyrfti að vera roooosalega langt á milli rimla  í rimlahliði  til að  ég félli niður á milli...................

Huld S. Ringsted, 28.10.2007 kl. 22:33

13 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Forfæra  Ég gat ekki hugsað um neitt annað á meðan ég las færsluna

Jóna Á. Gísladóttir, 28.10.2007 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.