Veisluhöld í borg óttans

Fór með mömmu og pabba í aldeilis frábæra afmælisveislu hjá Viktori Má.Viktor Már

 

elizabeth Mamma hans og Pabbi Eyjólfur Már sem er litli bróðir minn, eru snillingar í að halda veislur. Eru með veðrið á hreinu hvað þá annað. Veislan var haldin í garðinum heima hjá þeim í brakandi þurrki og blíðu.

Stólar, teppi og borð, allt borið út og þau hristu 30 manna veislu fram úr erminni eins og ekkert væri.

Að sjálfsögðu rottaði fólk sig saman eftir ættum og þjóðerni, en Elizabeth, mamma Viktors er frá Colombiu og því liggur í hlutarins eðli að margir eru spænskumælandi í veislum hjá þeim. Ég lagðist á teppið sem var breitt út í miðjum garðinum hjá konunum sem spjölluðu saman á spænsku og á meðan þær þögnuðu andartak til að velta því fyrir sér hvort þær ættu að svissa yfir á íslenzku, sagði ég þeim endilega að halda áfram að tala spænsku. Ég gæti þá ímyndað mér að ég lægi á sólarströnd.......

Yndislegur dagur, frábært fólk.

Skelli hér inn til gamans mynd af lille bror þegar hann var lítill.........  Eyjólfuró já - einu sinni vorum við öll ung.............

Ég sé það allltaf betur og betur hvað ég er heppin með alla mína ættingja og vini

Knús til ykkar Heart og takk fyrir mig

PS bæti við mynd af Elizabeth á morgun, veit að ég á mynd af henni í tölvunni í vinnunni!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Flott afmælisbarn og flottur bróðir.  Mér finnst hann sætari núna ef eitthvað er.  Gjörsvovel að skella eiginkonunni á bloggið á morgun.  Ekkert misrétti hér.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.7.2007 kl. 01:17

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já, hvernig verður hann um sextugt?

Hrönn Sigurðardóttir, 16.7.2007 kl. 07:05

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Sætur bróðir og flott veisla það  verið gaman hjá ykkur. Verst Hrönn mín að skildir ekki spænsku en það er gott að halda að þú sért á sólarströnd og láta sig dreyma

Kristín Katla Árnadóttir, 16.7.2007 kl. 09:46

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Till lukku með bróður þinn.  Jamm hann er fjallmyndarlegur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.7.2007 kl. 12:48

5 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Hamingjan sanna... ég hef alltaf staðið í þeirri trú að einkasonur þinn væri svo líkur pabba sínum... en það er nú öðru nær... hann er lifandi eftirmynd frænda síns.......

Fanney Björg Karlsdóttir, 16.7.2007 kl. 13:18

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

fyndið? Þeir eru rosalega líkir OG heita sama nafni......

Hrönn Sigurðardóttir, 16.7.2007 kl. 13:33

7 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

 smúts

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 16.7.2007 kl. 21:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband