Fyrsti dagur í fríi

Í dag hef ég; farið í labbitúr með litla kút, gert við útisnúrurnar mínar, en þar sleit ég eina snúruna í geðvonzku minni einn daginn þegar ég reif sæng af henni - þetta var brandari..... auðvitað er ég aldrei geðvond.... leitun að annari eins geðprýðismanneskju Devil æft mig fyrir kvennahlaup, ryksugað, 29talað við Möggu um sæta stráka - sem var líklega það skemmtilegasta sem ég hef gert í dag..... en dagurinn er nú ekki búinn LoL Á myndinni sjáið þið bæði sæta stráka og Möggu, sem er alltaf sæt og fín Heart

Er núna að baka bollur með kvöldmatnum - hérna myndi ég setja slóðina á uppskriftina, ef ég bara kynni..... en ég fékk þá uppskrift hjá Flórens og ætla að baka jarðarberjamuffins í eftirrétt - fann uppskriftina í Gestgjafanum. Er með mission í gangi að fita einkasoninn, verst ef ég fitna líka..... og þó þá get ég allavega farið og keypt mér pilsið sem bíður mín alsett tjulli og blúndum á Laugarveginum Tounge

Þið megið svo kjósa fallegasta karlmanninn á myndinni - nú eða konuna!

smjúts Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Flottur eftir  réttur hjá þér.............. Þetta  er allt myndarfólk.

Kristín Katla Árnadóttir, 6.6.2007 kl. 18:21

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hvort öðru fengilegra þetta fólk.  Hm...hugs...hugs sé þig þegar ég hef hugsað málið til hörguls.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.6.2007 kl. 19:38

3 Smámynd: Unnur R. H.

úff erfið aðstaða að þufa að gera upp á milli....mmmmmmm.. allir sætir og góðir. já og passaðu þig á snúrunum hehehehe

Unnur R. H., 6.6.2007 kl. 21:11

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég sé þá ekki nógu vel til að dæma.  Ein eitt er örugglega glæsilegri en hinir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.6.2007 kl. 21:41

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

 Takk unga. Já og svo er brosið hennar svo skemmtilega líkt þínu....

knús

Hrönn Sigurðardóttir, 6.6.2007 kl. 23:16

6 Smámynd: Hugarfluga

Jeminn, myndarleg! Hurrðu, hvar fæst flott pils með tjúlli og blúndum? Ég er svo mikil blúnda .. tjulluð blúnda!

Hugarfluga, 7.6.2007 kl. 20:44

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Flash á Laugarveginum Fluga litla.... ótrúlega flott pils, svart, tjull, blúndur.... Vona svo sannarlega að þú sért nógu feit í það? Mestu vonbrigði mín þegar ég mátaði það voru að ég var ekki nógu feit..... Og er nú langt síðan ég hef ekki verið talin feit

tíhí

Hrönn Sigurðardóttir, 7.6.2007 kl. 21:34

8 Smámynd: Hugarfluga

Ég er sko alveg nógu feit í það .... bílíf jú mí! Búsældarleg, eins og einn ágætur vinnufélagi minn orðaði það svo pent .. hahaha.

Hugarfluga, 7.6.2007 kl. 22:01

9 Smámynd: Hugarfluga

Eitt enn ... ég var að reyna að bæta þér við sem bloggvini en mér tekst það bara ekki   Kerfið býður mér ekki upp á það. Ætli það sé eitthvað hint?

Hugarfluga, 7.6.2007 kl. 22:06

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

...hugsanlega.....

Ég skal prófa mín megin

Hrönn Sigurðardóttir, 7.6.2007 kl. 22:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband