Villur

Fór í höfuðborgina í gær, þurfti aðeins að erindast á Kebblavíkurflugvöll líka, var svo aaaaalveg að sofna á leiðinni til baka, keyrði of lengi í hringtorginu og VILLTIST - jamm ég get verið hrikalega utan við mig - það gera nördagenin sem enginn vill þó kannast við að hafa gefið mér Tounge Enívei -  sem ég var þarna keyrandi á veginum  fór ég að litast um og spá í hvar ég eiginlega væri, mundi ekki eftir að hafa nokkurntíma séð þetta umhverfi áður..... endaði í Garðinum, keyrði einn rúnt úr því að ég var nú komin á svæðið á annað borð og vott a krummaskuð!!!!

03Fór svo í Smáralindina á heimleiðinni, því ekki getur nú ein kona keyrt svona langar leiðir í einum rykk, fór á kaffihús með Eygló - hún vildi endilega sitja í reykingahluta svæðisins, sem kom mér nú svosem ekkert svakalega á óvart þar sem hún hefur reykt í mörg ár - en nú komum við að rúsínunni........

.....sem við sátum þarna og töluðum saman um afar praktisk atriði  Tounge eins og skó, karlmenn og prakkarinn_118063aðra nytjahluti, missti ég heldur betur þráðinn og féll í trans því ég held ég hafi séð Prakkarann!!!! Og eins og aðrar fínni frír hér á blogginu er ég heldur betur hugfangin af honum Cool

Kunni samt ekki við að standa upp og spyrja hann hvort hann gegndi nafninu prakkari, því maður verður alltaf að halda kúlinu, þannig að ég tel bara sjálfri mér trú um að þetta hafi verið hann.

Ég er allt önnur kona

Kissing


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Úlala Barasta sjálfur Jón Steinar komin suður frá Sigló.  Hann er flottur strákurinn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.4.2007 kl. 20:32

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

allavega var þessi flottur. Enda hef ég ótrúlega næmt auga fyrir fegurð

hehehehehehehehehehehe

Hrönn Sigurðardóttir, 26.4.2007 kl. 21:59

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Efast ekki augnablik um að þú hefur rétt fyrir þér Hrönn mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.4.2007 kl. 09:56

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Úje bless á Hásið.  Lovfjú!

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.4.2007 kl. 16:05

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hmmm?  Það er tilkynnt um sýnir.  Snjómaðurinn ógurlegi sást í Tíbet og fljúgandi furðuhlutur yfir Esjunni. Einnig mun Prakkarinn dularfulli hafa sést á kaffihúsi.  Sýnin er þó óstaðfest og gæti hafa verið um ljósbrot að ræða.

Ekki var ég í Smáralind, en á kaffi París og Hressó gæti andi minn svifið yfir vatnsglasi annað slagið. 

Jón Steinar Ragnarsson, 27.4.2007 kl. 21:41

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ohhh! er ég þá bara sama kona?

Hrönn Sigurðardóttir, 27.4.2007 kl. 21:50

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Sumir sjá meira en aðrir ... þú hefur eflaust séð anda prakkarans ... verið að hugsa um hann, enda skrifar hann svo dásamlega!

Guðríður Haraldsdóttir, 27.4.2007 kl. 21:50

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ójá, það gerir hann

Hrönn Sigurðardóttir, 27.4.2007 kl. 21:53

9 Smámynd: SigrúnSveitó

Úff, ég myndi líka villast ef ég tæki vitlausa beygju á suðurnesjunum...eða í Kópavogi eða Garðabæ...en ég er loks farin að rata um Akranes enda búin að búa hér bráðum í ár...

SigrúnSveitó, 27.4.2007 kl. 22:28

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

jamm - þetta ver frekar furðurlegt, ég hélt hreinlega að þetta væri ekki hægt. Var svo að spá í að taka Hafnir líka úr því að  ég var byrjuð á annað borð en það bíður bara betri tíma. Koma tíma - koma villur

Hrönn Sigurðardóttir, 27.4.2007 kl. 22:38

11 Smámynd: SigrúnSveitó

hehe, já, alltaf gaman að eiga eftir að upplifa eitthvað spennandi

SigrúnSveitó, 27.4.2007 kl. 23:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband