Skipulag fyrir lengra komna.

Ég vaknaði óvenju snemma í morgun eða rétt rúmlega fjögur.... sumir mundu líklega kalla þetta nótt. Mömmusinnardúlludúskur segði líkast til að hann vissi ekki einu sinni að klukkan YRÐI fjögur um morgun Tounge

Þar sem ég bældi mig og reyndi að sofna aftur rann það upp fyrir mér af hverju ég vaknaði á þessum ókristilega tíma. Mér fannst ég nefnilega vera orðin á eftir í öllu og ekki síst lífi mínu! Ég fleygði bókinni, um Gamlingjann sem fór út um gluggann og hvarf, - ágætis bók bæþevei..... umsvifalaust frá mér, setti í vélina, stökk í sturtu, setti skrúbb framan í mig og fastan lit á augabrúnirnar. Reiknaði svo nokkur dæmi - bara svona til öryggis Tounge og fór út með hundinn. Ó..... og upphugsaði sjö hnyttna en um leið fræðandi feisbúkkstatusa. Einn fyrir hvern dag vikunnar.

Nú sit ég - klukkan rétt að skríða í hálfníu og er búin að öllu.

Hvílíkur munur Halo 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Veit ekki hvað fólkinu niðri finnst um að ég setji í vélina svona snemma!

Æj.. þau eru hvort sem er nýflutt frá Bandaríkjunum og ábyggilega tímavillt ;)

Ég er líka soldið reiðileg svona nýlituð - þau þora ekkert að segja.

Hrönn Sigurðardóttir, 6.2.2012 kl. 08:52

2 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Góðan dag Hrönnslan og gleðilega nýja viku

...ég myndi leggja mig til hádegis eftir öll þessi afköst.

Marta B Helgadóttir, 6.2.2012 kl. 09:46

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Aldeilis dugleg, þegar eg vakna svona snemma á "morgnana" kemur fyrir, þá fer ég í að kúra mig niður og dreyma dagdrauma sem láta mér líða vel.  Ég myndi ekki NENNA að vera svona dugleg eldsnemma morguns eða seinnipart kvölds

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.2.2012 kl. 11:45

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Góðan daginn Marta. Ligga mig? Nei - ég hélt áfram á fullu skriði. Þú ættir bara að vita hverju ég er búin að koma í verk núna :)

Nei Cesil. Ég er ekki vön þessu heldur ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 6.2.2012 kl. 17:23

5 Smámynd: Marta B Helgadóttir

núú?  Kvaddagera ?

Marta B Helgadóttir, 7.2.2012 kl. 15:14

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ligga mig??? Hahahah hvað er það nú? Vitleysan sem kemur út úr manni....

Ligga ligga lá mig kannski? :P

Hrönn Sigurðardóttir, 7.2.2012 kl. 16:11

7 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Marta B Helgadóttir, 7.2.2012 kl. 16:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband