Ég var að koma af kóræfingu...

...og allt í lagi með það - nema þar sem ég sat þar og söng sálma á fullu gasi datt mér allt í einu í hug strákurinn sem ég var að deita þegar ég var skvísa í Borg óttans. Ég kallaði hann bakardrenginn vegna þess að hann var að læra að verða bakari. Voða sætur strákur með dökkar krullur og fallegt bros. Hann átti barn - man ekki hvort það var strákur eða stelpa, enda málinu alls óviðkomandi.... en sum sé, ég fór að velta því fyrir mér hvort hann væri staddur á Sauðárkróki að baka iðnaðarsaltskökur og brauð Tounge Svona er maður nú undarlega innréttaður. 

Og talandi um gas - ég var að hlusta á virka morgna á rás2 í morgun, góður þáttur þrátt fyrir að Andri - sem ég er ákveðin í að láta uppáhaldsfrænku mína giftast, vegna þess, eins og ég sagi henni, mér finnst hann svo skemmtilegur og ég verði að geta haft fun í jóla- og allskynsboðum fjölskyldunnar... hún var minna spennt en það kemur málinu ekkert við. Í þættinum í morgun var spurningakeppni stéttarfélaganna eða eitthvað þvíumlíkt og ein spurningin var: "Hvað eiga Hitler og Bretaprins sameiginlegt?" Ég flissaði hástöfum þegar annar keppandinn svaraði í gizkunarlíki: "Háan gasreikning?" Ætli ég þarfnist einhversskonar meðferðar? Ég - sem var gyðingur í fyrra lífi og náðist næstum í Svíþjóð af Stormsveitarforingjanum Heinrich Himmler! W00t


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha ekki svo illa til fundið með gasreikningana.    En hvernig í fjandanum tengdirðu bakaradrenginn við Sauðárkrók og iðnaðarsalt??

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.1.2012 kl. 23:15

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Vegir mínir eru órannsakanlegir :P

Hrönn Sigurðardóttir, 20.1.2012 kl. 00:26

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.1.2012 kl. 12:47

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þegar Tuðarinn er "depressed" kíkir hann á Hrönnsluna og deginum er reddað! Það getur enginn rannsakað þessa Selfyssingu! ;-)

Halldór Egill Guðnason, 26.1.2012 kl. 01:44

5 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Nú gat ég hlegið innilega Hrönnslan

takk fyrir mig

...mér finnst hún ætti að gera það fyrir þig að giftast honum Andra

Marta B Helgadóttir, 27.1.2012 kl. 10:04

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahah já mér finnst það líka :P Lágmark að taka tillit til aldraðar móðursystur sinnar við makaval.

Hrönn Sigurðardóttir, 27.1.2012 kl. 14:10

7 Smámynd: Marta B Helgadóttir

já háá

Marta B Helgadóttir, 27.1.2012 kl. 14:18

8 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 1.2.2012 kl. 17:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.