21.12.2010
Frost er úti....
Hitakerfið í mínu húsi er eins og eigandinn, afar flókið. Inntakið er, eins og öll góð inntök, staðsett í kjallaranum og ég þarf afar sjaldan að hringla í því.
Nema þegar frostið fer yfir öll velsæmismörk eins og núna. Þá væri gott að nenna niður og setja smá trukk í kerfið en ég nenni því náttúrulega alls ekki frekar en öðru fyrir jólin Enda er svo skrýtið að þegar verður svona mikið kalt þá er eins og þrýstingurinn detti niður á heita vatninu í sveitinni.
Ef ég vissi ekki betur þá mundi ég halda að sveitarfélagið réði bara alls ekki við að þjónusta svona stórt hverfi - en vitaskuld er það ekki málið.........
.....ég trúi því nefnilega staðfastlega að þetta sé allt Eyrarbakka og Stokkseyri að kenna. Ég er enda ekki frá því að þetta hafi allt hafist með því að þeir tengdust kaldavatnslögninni minni
Það er allt eins þetta lið þarna niðri á strönd það má ekki rétta þeim kaldavatnskrana án þess að þeir rjúki til og steli heita vatninu líka! Þetta segi ég án alls kala til þeirra því vitaskuld eru sumir af mínu bestu Strandabúum vinir.
Og svona af því að ég nenni alls ekki út í þennan kulda og gegnum hlerann fer ég ekki síðan ég stytti mér leið þar niður í kjallara í vor, sællar minningar, þá ætla ég að fara í lopapeysuna mína og leyfa ykkur að heyra jólalag míns jólaþema í ár.....
Hlýjar stundir
Athugasemdir
Brrrr...
ekkert þýðir fyrir mig að hringla í grindinni. Þarf bara að finna pening til að klæða betur utan á húsið og þétta gluggana og útihurðina. Fann ekki pening þetta árið og sit í ull undir aukaofni.
En jæja...
Ragnheiður , 21.12.2010 kl. 23:03
Fann miklu betra og hlýlegra jólalag....
http://www.youtube.com/watch?v=hvN2uf8qMws
Hrönn Sigurðardóttir, 21.12.2010 kl. 23:07
Svo má alltaf verzla gamra af Dúunni .... Hann hressir, bætir og kætir!
www.zordis.com, 21.12.2010 kl. 23:13
Já.... og maður gleymir kuldanum á meðan....
Hrönn Sigurðardóttir, 21.12.2010 kl. 23:20
Verst að ég rata ekki í hjólhýsahverfið
Hrönn Sigurðardóttir, 21.12.2010 kl. 23:20
Fáðu þér annaðhvort fleiri ketti eða kú. Dýr ku hita upp heimili án nokkurrar fyrirhafnar.
Anna Einarsdóttir, 21.12.2010 kl. 23:47
Góð hugmynd....
Get haft kúna í kjallaranum
Hrönn Sigurðardóttir, 22.12.2010 kl. 06:16
Annars sýnist mér að mælirinn sé fastur í mínus 11 gráðum....
Hrönn Sigurðardóttir, 22.12.2010 kl. 06:36
Hrönn mæli frekar með rollum, kýr þarf nefnilega að mjólka daglega, ekki gott fyrir konu sem nennir ekki oní kjallara nema mesta lagi tvisvar á ári
Nema þú takir tæknina í notkun og fáir þér svona mjaltaþjón, gætir síðan leitt leiðslu upp í eldhús, mjólkin er líka volg svona ný og gæti þar með veitt smá yl meðan hún rennur beint frá kusu upp í eldhús. 
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.12.2010 kl. 09:15
geit í stofuna þá færðu yl,ull,ilm og mjólk .Það er ekki svo mikil fyrirferð í henni svo er þetta örugglega allt Stokkseyrabakkafólki að kenna
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 22.12.2010 kl. 12:15
ohhh hann er svo maskulin og flottur hann Helgi Björns
Marta B Helgadóttir, 22.12.2010 kl. 12:46
Góð hugmynd hjá Önnu, ég myndi hafa kýr eða rollur í kjallaranum ;)
Marta B Helgadóttir, 22.12.2010 kl. 12:48
Besta leiðin til að halda heitu er að fá einhvern til að fara inní kjallarann og koma hlutunum í gang. hehe
En gleðileg jól mín kæra
Garún, 23.12.2010 kl. 13:45
Ég er með svipað hitakerfi og þú, ég fékk lánaðann olíufylltan rafmagnsofn. Núna er mér hlýtt þótt frostið sé undir -5 gráðum.... Ég óska þér gleðilegra jóla og farsæls komandi árs
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.12.2010 kl. 01:53
Gleðilega jólahátíð góða kona.
Anna Einarsdóttir, 24.12.2010 kl. 15:05
Hahaha, ég er með sama hugsunarhátt og Garún, þú varst búin að segja að hitainntakið væri í kjallaranum, kannski þarftu bara að hringla í því oftar
Gleðileg jól
Margrét Birna Auðunsdóttir, 25.12.2010 kl. 16:11
Hrönn Sigurðardóttir, 25.12.2010 kl. 16:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.