Ég er á leiðinni..

... - manstu eftir Brunaliðinu?

Ég er á leiðinni út í rigninguna. Í dag ætla ég að vera verulega smart og fara í stígvél - Nokia gúmmistövler Tounge Ég ætla líka í pollabuxur og regnkápu og svo ætla ég að setja á mig derhúfu.... Nú er ég farin að hljóma eins og Bókin um Benna og Báru..... en það er annað hvort að hafa derhúfu eða skilja gleraugun eftir heima - í svona rigningu sé ég ekki á milli augnanna á mér með gleraugun óvarin og ekki sé ég betur án þeirra....

En - af hverju heitir bókin Benni og Bára? Af hverju ekki Bára og Benni? Misrétti......? Hvað hétu hinar bækurnar - eða var Bókin um Benna og Báru eina bókin í flokknum um misrétti barna?.... muniði það?

Farin að hoppa á milli polla - eða oní þá.......

Hverjar telurðu líkurnar á að ég vinni umhverfisprýðisverðlaunin í dag?

Pís Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Afhverju þarftu að sjá á MILLI augnanna á þér ? Til að gá hvort þau komu bæði með ???

Benni og Bára....maður las þetta sér til óbóta eiginlega..

Ragnheiður , 1.4.2009 kl. 14:07

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Var ekki mynd utan á þeirri bók að krökkum að leika sér við vatn eða sjó?

Seglbátar (leikföng).

Sú mynd kemur upp í hausinn á mér.

Ertu enn með sama bókasmekk og þegar þú varst lítil?

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.4.2009 kl. 14:40

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég hef voða lítið breyst frá því ég var lítil.....

Hrönn Sigurðardóttir, 1.4.2009 kl. 15:34

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Er þessi mynd utaná bókinni?

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.4.2009 kl. 15:56

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég man það ekki. Ég man bara að þetta er bók með flettimyndum. Kannski heldur Benni á seglskútu sem hið hefðbundna sjómannsefni?

Hrönn Sigurðardóttir, 1.4.2009 kl. 16:14

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Það var pottþétt seglbátur utan á bókinni um Benna og Báru.

En munið þið eftir Láka ?    Honum fannst svo svakalega gaman að stríða.   Hann kenndi manni ýmislegt.

Hrönn.  Ég tel engar líkur á að þú hljótir umhverfisprýðisverðlaunin í dag en allar líkur á að þú farir ofan í poll. 

Anna Einarsdóttir, 1.4.2009 kl. 17:33

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég vissi það.  Hahaha.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.4.2009 kl. 20:21

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já - ég man eftir Láka! Og Litla svarta Sambó

Hrönn Sigurðardóttir, 1.4.2009 kl. 21:30

9 Smámynd: Einar Indriðason

Í gær, 1. apríl, sendi borgarstjórinn á Selfossi frá sér viðvörun:

"Vegna stígvélaðrar konu, með hund í eftirdragi, þá skal það tilkynnt að allir pollar á Selfossi eru friðaðir.  Þessi stígvélaða kona á það nefnilega til að hoppa í polla, fylla stígvélin sín, og tæma úr þeim ofan í næsta ræsi.  Þar með þorna pollarnir upp á óðlilegan hátt.  Vinsamlega nálgist konuna (og hundinn) með varúð, hún er talin vera stórhættuleg, vopnum stígvélum."

Einar Indriðason, 2.4.2009 kl. 08:01

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahaha

Hrönn Sigurðardóttir, 2.4.2009 kl. 08:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband