Rix

Ég hef tekið upp nýtt göngulag - það kallast rigs og framkallar miklar harðsperrur í magavöðvum W00t kannski mest vegna þess að ég er að reyna að flissa ekki upphátt að sjálfri mér þar sem ég rixa eftir árbakkanum í myrkrinu - ég meina, ekki vil ég byrja daginn á að særa sjálfa mig.......... Tounge

Rigsið er þannig að naflinn er dreginn inn - alveg austur að hrygg, rassinum er slakað upp um nokkrar tommur, axlirnar eru slakar og hálsinn langur...... og svo sveifla ég höndunum þannig að hermenn austur í Kína yrðu stoltir af að þekkja mig! Ljónshjartað eltir mig lafmóður en nær engum takti - enda stoppar hann við hvern staur til að lyfta fæti............

Ég mæli með því að þið prófið! Það gerir engum illt að flissa aðeins að sjálfum sér þegar enginn sér til Tounge 

Svo hef ég ákveðið að konan í færslunni hér aðeins neðar - sú sem kom upp þegar ég gúgglaði mig á sjálfshátíðardeginum - hún verður fengin til að leika mig þegar hetjumyndin um mig verður gerð! Það er svo þægilegt - sama nafn..... svipaður vöðvamassi...........

Hver verður fenginn til að leika þig?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég segi eins og þú;  ekki vil ég byrja daginn á að særa mig !

Því get ég ekki sagt núna hver leikur mig. 

Anna Einarsdóttir, 4.3.2009 kl. 08:24

2 Smámynd: www.zordis.com

Rigs er spennandi konsept í morgunsárið .... Ekki verra þótt einhver væri á ferli og gæti flissað með mér.

Ég er ekki alveg viss hver myndi fara með mitt hlutverk en það er spurning hvort ég yrði í áhættuatriðum og þ.a.l. alltaf með staðgengil og alnöfnu í öllum atriðum.

www.zordis.com, 4.3.2009 kl. 08:50

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þú ert nú ekkert venjuleg, Hrönn  Búinn að frussa kaffinu yfir Fréttablaðið, en Mogginn rétt slapp, enda varla meira en bæklingur orðinn og erfitt að hitta á hann. Það endar með því að Ölfusá breytir um farveg ef "Rixað" verður mikið meira á bökkum hennar. Ekki að undra að hundurinn haldi engum takti lengur.... Það er ekki langt í að hann fari að labba í hina áttina. 

Halldór Egill Guðnason, 4.3.2009 kl. 08:54

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ljónshjartað? Nei - hann yfirgefur mig ekki... :)

Hrönn Sigurðardóttir, 4.3.2009 kl. 09:11

5 Smámynd: Ragnheiður

Það er nú einfalt að finna einhverja kellingu til að leika mig, hún þarf bara að vera í svipuðum hlutföllum og hundasúruþúfa !

Ragnheiður , 4.3.2009 kl. 11:14

6 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

...."Rigsið er þannig að naflinn er dreginn inn - alveg austur að hrygg,..." ...Einn góðan veðurdag ætla ég að vakna í bítið, liggja í leyni og berja þennan atburð augum.......ahahahaahahah.... þú drepur mig kona....

Fanney Björg Karlsdóttir, 4.3.2009 kl. 11:45

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú ert mögnuð..........

Kristín Katla Árnadóttir, 4.3.2009 kl. 11:48

8 Smámynd: Solla Guðjóns

Ahaahaha  Þú mátt til að sýna okkur tæknina ...naflinn austur að hrygg....Þú dásamlega mannvera

Ég veit ekki hvort ég vil láta leika mig ......ég mundi allavega ekki horfa á það.....

Solla Guðjóns, 4.3.2009 kl. 12:37

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þú bregst ekki frekar en fyrri daginn

Sigrún Jónsdóttir, 4.3.2009 kl. 15:27

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég rigga upp sjálfshátíð.  Þér er boðið.

Krútti.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.3.2009 kl. 16:17

11 Smámynd: Einar Indriðason

Ef þú dregur naflann alveg austur að hrygg... Hvernig er þá ... Lundin í þér?

Góð?  Meyr?  Marineruð?

Og, nei, ég veit ekki hver ætti að leika mig.

Einar Indriðason, 4.3.2009 kl. 16:53

12 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Hefurðu prófað að strunsa?

Helga Magnúsdóttir, 4.3.2009 kl. 18:06

13 Smámynd: Dísa Dóra

hahaha ég held ég verði nú bara að liggja í felum með Fanney til að sjá þetta rigs þigg

Dísa Dóra, 4.3.2009 kl. 21:50

14 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Stelpur! Þið komið bara með... það verður sláttur á okkur :)

Hrönn Sigurðardóttir, 4.3.2009 kl. 21:52

15 Smámynd: Marinó Már Marinósson

ha ha ha 

Ég prófaði einu sinni að slugsast áfram en það gekk ekki neitt eða réttara sagt ég.   

Marinó Már Marinósson, 4.3.2009 kl. 23:27

16 Smámynd: Vilma Kristín

Vá, hljómar spennandi... ég er að spá að taka æfingar á göngustígnum bak við hús hjá mér. Reyndar með fullt af áhorfendum úr nærliggjandi húsum, en það er líka gott að geta skemmt öðrum.

Mér dettur hins vegar engin í hug sem er tilvalin í að leika mig.  Ef ég mætti velja samt svona bara af handahófi myndi ég segja Meg Ryan, hún er nægilega aulaleg á köflum.

Vilma Kristín , 5.3.2009 kl. 08:30

17 Smámynd: Einar Indriðason

Hér er ... slegið-um-sig með alls konar orðum... það verður bæði strunsað, rixað, sluxað... naflar verða í allar áttir, en þó aðallega í austurátt.... svo þarf að ganga hinn hringinn til baka, svo hægt sé að draga naflann í vesturátt, og vinda ofan af....

Hvar ætli sé best að setja földu myndavélarnar upp... mig langar til að sjá þegar þið eruð að undirbúa ykkur og teygja á... og mig langar sérstaklega til að sjá hvernig þið í raun og veru ... dragið naflann í austurátt alveg inn að hrygg!

Þetta gæti jafnvel orðið myndband í "fyndnustu heimilismyndböndin"?

Einar Indriðason, 5.3.2009 kl. 08:31

18 Smámynd: Þröstur Unnar

Maður þarf að fara að gera sér ferð þarna út á land, og taka myndir.

Fer þetta Rix fram á kristilegum tíma?

Þröstur Unnar, 5.3.2009 kl. 11:01

19 identicon

Hver leikur ljónshjartað?Lassi? Angelina Jolie leikur mig ekki spurning.Erum eins vaxnar og erum með sama háralit RIX eða RIGS?Naflinn færist óðfluga fjær lundunum eftir að ég hætti að reykja.Ég vissi ekki að nikótínskortur hefði áhrif á lundirnar

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 11:54

20 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nei Marinó! Slugs gengur voða sjaldan...

Vilma! Mæli með því!

Einar! ....ogef við förum í vesturátt aftur- þarf að byrja á öllu uppá nýtt því annars endum við bara úti í mýri........

Þröstur! Hvað er kristilegur tími? Og til öryggis nei....

Ljónshjartað verður vitaskuld leikin by him self......

Hrönn Sigurðardóttir, 5.3.2009 kl. 12:39

21 Smámynd: Tína

Veistu.......... meðan ég las þessa færslu þína, þá fór ég ósjálfrátt að gera allar þessar kúnstir (hóst) en varð að hætta þegar koma að því að sveifla handleggjunum. Er nefnilega sitjandi sjáðu til og hefði orðið að standa upp og er það aðeins of mikil fyrirhöfn eins og er.

Varðandi það hver myndi leika mig, þá býst ég við að ég sé aðeins betur sett en margur þar sem ég á mér eineggja tvíbura.

Knús á þig sæta

Tína, 5.3.2009 kl. 14:59

22 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Heyrðu já! Þú ert náttúrulega í góðum málum hvað það varðar. Knús á þig til baka krútt

Hrönn Sigurðardóttir, 5.3.2009 kl. 15:35

23 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég veit alveg hver verður látin leika mig; Margrét Ákadóttir, við erum svo likar að barnabörnin mín tóku feil á okkur í myndinni um Duggholufólkið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.3.2009 kl. 17:36

24 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Mikið gasalega held ég að þú sért dásamleg ásýndar í þínu rixi meðfram árbakkanum....

Mér finnst að Britney Spears ætti að leika þig frekar en þessi ímyndbandinu - og Hólí Mólí leika mig. Grace Kelly hefði gert það ef hún hefði enn verið í sínum síðasta jarðarlíkama, en hún er farin á himnesku gresjurnar, því miður.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 5.3.2009 kl. 18:19

25 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Bergljót Hreinsdóttir, 5.3.2009 kl. 22:17

26 Smámynd: Dísa Dóra

hahaha já og ef ég bætist í hópinn með rixið þá verður aumingja stubbur minn sennilega illilega sjóveikur í vagninum sínum sem ég yrði jú að hafa með í för

Dísa Dóra, 6.3.2009 kl. 22:56

27 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þú yrðir að hafa hann í poka á bakinu. Það er ekkert rúm fyrir barnavagn í rixi

Hrönn Sigurðardóttir, 6.3.2009 kl. 23:28

28 Smámynd: Einar Indriðason

Rix er farið að hljóma eins og viss tegund af breik-dansi...

Einar Indriðason, 8.3.2009 kl. 09:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband