Björn Bjarnason

Ég er að verða eins og gamla fólkið! Ekki að það sé neitt slæmt sko - sumt af mínu bezta gamla fólki eru vinir.......

Klukkan er rétt að slá í þrjú og i dag hef ég; unnið, farið út með hundana í laaaaangan göngutúr, hvar ég talaði við allt gamalt fólk sem ég hitti, tekið til, farið í búðina og bakað snúða og muffins!

Ég á bara eftir að baka brauð og elda kvöldmat - þá get ég farið að sofa um sexleytið og byrjað all over á morgun! Nema kannski ívið fyrr. Svo endar þetta með því að ég verð farin að vinna á nóttunni, á náttúrulega næturvinnutaxta og stórgræði W00t

Ég hef líka lesið blogg og þar sem ég hef skilið eftir athugasemdir hef ég vandað mig óskaplega að setja greinarskil og kommur á rétta staði......

Svo datt mér þessi stórgóða hugmynd í hug..... Allir þeir sem í gegnum tíðina hafa lofað að gera eitthvað fyrir mig, hvort sem það er að staga í sokka eða senda mér myndir  verða böggaðir þar til þeir hafa skilað sínu W00t 

Smátt og smátt færi ég mig svo í aukana og nafngreini þá sem mér verður náttúrulega farið að mislíka alveg hrikalega við. Ég meina, fólki er ekki stætt á því að standa ekki við það sem það segir...

Hugsanlega þjáist ég líka af fráhvarfseinkennum og þyrfti bara að standa fyrir sýsló með pottlokið og sleifina og berja taktinn...... Vanhæfur sýslumaður - óli út!! 

Svo kæmi óli út og færi með mér heim og borðaði snúðana mína W00t

Lifið í lukku Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Martröð.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.1.2009 kl. 16:14

2 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Getur þú ekki prófað að heimta nýja brú yfir Ölfusá og svo mótmæla slöppu liði í spurningakeppninni í ár? 

Marinó Már Marinósson, 28.1.2009 kl. 16:23

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

...hugsanlega yrði ég þá send næst..... Tek ekki sjensinn á því ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 28.1.2009 kl. 18:30

4 Smámynd: Brattur

... Hrönn opnaðu bakarí... þú ert að baka snúða, muffins og brauð alla daga... bakaðu á nóttunni á dýrasta taxanum... þú verður moldrík fyrr en varir...

Brattur, 28.1.2009 kl. 19:18

5 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Það væri nú samt gaman að sjá þig í tvíinu.     

Marinó Már Marinósson, 28.1.2009 kl. 21:04

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Treystu mér Marinó! Ég mundi fokka því öllu upp í fíflagang..... ;)

Brattur! Ekki alla daga - en oft......... ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 28.1.2009 kl. 21:09

7 identicon

Hvað gerðir þú við Björn Bjarnason?

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 21:29

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Senda þér myndir ?  Hahhhh..... þú ert pottþétt ekki að tala til mín.  Ég skulda þér bara eina mynd.     Ekki mynd-IR.

Anna Einarsdóttir, 28.1.2009 kl. 22:15

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ætla að senda þér hana snöggvast....... af mér og Jóni Kristjánssyni fisksala. 

Anna Einarsdóttir, 28.1.2009 kl. 22:17

10 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Hvernig væri að senda mér eitthvað af öllu þessu bakkelsi? ha? ha?

Jóna Á. Gísladóttir, 29.1.2009 kl. 00:01

11 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Hrönn í Útsvarið....BÚM, BÚM....búm,búm, búm

Sigrún Jónsdóttir, 29.1.2009 kl. 00:20

12 Smámynd: Einar Indriðason

Já, og látum Hrönn hlaupa að bjöllunni.  Já, og leika líka!

*Það* yrði þáttur sem ég myndi sko *EKKI* missa af!

Einar Indriðason, 29.1.2009 kl. 00:36

13 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Einar .. hvað meinaru með "þáttur"... þetta yrðu þættir.... allavega ein sería....og svo myndi önnur fylgja í kjölfarið.....koma út á DVD... rokseljast ....vá frábært....

Hrönn í Útsvarið... BÚM, BÚM... búm,búm,búm

Fanney Björg Karlsdóttir, 29.1.2009 kl. 00:43

14 Smámynd: Einar Indriðason

Játs!

Nú er það næsti kafli í búsáhaldabyltingunni... Við mætum fyrir utan Selfoss... og berjum trommur... "Hrönn í Út-svar-ið ... Búmm búmm búmm, Hrönn í Út-svar-ið... Búmm búmm búmm..."

Friðsamleg samkoma, að sjálfsögðu!

Einar Indriðason, 29.1.2009 kl. 00:46

15 Smámynd: Solla Guðjóns

Já þið segið það

Hrönn !!!! ætlar þú að ná Óla út svo inn.....lát'ann éta snúð og hvað svo ????????Ætlar þú að koma honum fyrir kattarnef...og fara svo í útsvarið og svara spurningunni : Hvað varð um þvaglegginn???   og þú myndir svara : það veit ég ekki ....ég gaf honum snúð !!!!!

Ég er í galsa stuði ......ekki nývöknuð.......

lovjú..

Solla Guðjóns, 29.1.2009 kl. 02:21

16 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Hrönn í útsvarid.....Hvad er útsvarid???Fór á stúfanna og fann tá ad tetta er spurningartáttur milli sveitarfélaganna.

Hrönn í útsvarid búm búm ...búm búm búmm.

Hvadan færdu  alla tessa orku Hrönn mín.Gætir tú kannski sent mér smá uppskrift og kannski nokkra snúda med.

Knús og kreistur til tín.

Gudrún Hauksdótttir, 29.1.2009 kl. 08:33

17 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Kann ekki að stoppa í sokka og hef aldrei lofað þér mynd. Fjú, rétt slapp fyrir horn.

Helga Magnúsdóttir, 29.1.2009 kl. 13:53

18 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Dúllan mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 29.1.2009 kl. 14:07

19 Smámynd: Dísa Dóra

Hey vá ég kem í heimsókn og borða eitthvað af öllu þessu bakkelsi

 En skal aveg vera með hinum í "Hrönn í Út-svar-ið ... Búmm búmm búmm, Hrönn í Út-svar-ið... Búmm búmm búmm..."

Dísa Dóra, 29.1.2009 kl. 17:23

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Óli út! hahahahaha!!! Settu hann frekar inn.  Hann gerir minna af sér það

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.1.2009 kl. 11:43

21 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Hvenær opnar bakaríið???Þá rennir maður nú astur og fyllir bílinn....hendir í kostuna og hugsar um þig í hvert sinn sem maður fær sér bakkelsi...uhmmmm...

Og..já já...endilega...Hrönn í útsvarið...búmm....búmm....búmm....!!!

Vá hvað verður gaman á nýja Íslandi!!!!!

Bergljót Hreinsdóttir, 30.1.2009 kl. 12:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband