Bananana

Ég fór í sundleikfimi í gær í fyrsta sinn síðan í byrjun desember. Ekki þó vegna þess að ég hafi ekki nennt og heldur ekki vegna þess að ég eigi við einhverja tilfinngakreppu að stríða í sambandi við vatn W00t heldur einfaldlega vegna þess að innilaugin var lokuð.

Tíminn var strembinn - en góður. Ég held að Beta hafi verið að vinna upp glataðan tíma. Systur mínar í þjáningunni voru að minnsta kosti vissar um það.

Nú get ég mig varla hreyft vegna harðsperra sem ég get náttúrulega eingöngu sjálfri mér kennt um. Ég gleymdi nefnilega að fá mér banana eftir tímann í gær.

Banani er algjör forsenda þess að ég geti hreyft mig daginn eftir leikfimi. Jafnvel þótt einn, sem ég kalla vin minn, segi að þetta sé platleikfimi W00t 

Ég auglýsi hér með eftir gerviharðsperrum. Mér finnst það lágmark ef þetta er platleikfimi Tounge

Lifðu í lukku InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Hvernig væri að plata jafnvel vin þinn í sund .... gæti verið gaman að bussla með honum og þjáningasystrum þínum.

Ég ráðlegg þér að fara í Húsasmiðjuna og fá þér sperrur ....

www.zordis.com, 14.1.2009 kl. 11:49

2 Smámynd: Vilma Kristín

Sko ef platleikfimin skilar alvöru árangri er hægt að lifa við alvöru harðsperrur, er það ekki?

Vilma Kristín , 14.1.2009 kl. 12:07

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hvaða vin er Zordís að tala um?  Er ég að missa af einhverju?

Á ekki að frumsýna water ballet í sundlauginni um páskana?

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.1.2009 kl. 13:09

4 Smámynd: Solla Guðjóns

Bananar og harðsperrur .....ómææ Hrönnsla    

Solla Guðjóns, 14.1.2009 kl. 14:12

5 Smámynd: Einar Indriðason

Jenny... misstirðu af þessu?  Hrönn ætlar að gifta sig:  09.09.09.

(Leitin að fórnalamb... AFSAKAÐU... brúðgumanum .... stendur yfir... Hann veit það ekki ennþá.....)

En, sko... Hrönn.  Geturðu ekki fengið svona... "staðgengil" fyrir þig í leikfimina?  Svo situr þú bara á bakkanum, og hrópar góðar ráðleggingar til þeirra sem eru í lauginn.....

Einar Indriðason, 14.1.2009 kl. 14:55

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahah Einar! Jú þetta er ágætis hugmynd og það sem meira er ég er svo góð í akkúrat þessu......

Jenný! Fylgjast með - "Jafnvel þótt einn, sem ég kalla vin minn, segi að þetta sé platleikfimi"

Hrönn Sigurðardóttir, 14.1.2009 kl. 15:14

7 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

ertu með símnúmerabirti ???... ég var í æfinga-akstri í dag og skellti mér á Selfoss....ætlaði að fá mér kaffi á heimili þínu í boði........ en viti menn....

Fanney Björg Karlsdóttir, 14.1.2009 kl. 15:21

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nei......!! Ég skaust út að erindast. Bömmer! Ég á svona límmiða og allt fyrir þig.... stendur á honum ÆFINGAAKSTUR

Hrönn Sigurðardóttir, 14.1.2009 kl. 15:43

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Dúó sem klikkar aldrei Solla ;)

Vilma! Jú það er rétt - þegar þú segir það þannig....... :)

Zordis! Ég held það sé ekki hægt að draga hann í sund! Þess vegna veit hann náttúrulega ekkert um hvað hann er að tala :) 

Hrönn Sigurðardóttir, 14.1.2009 kl. 15:45

10 Smámynd: Gulli litli

Hreifa sig hægt og virðulega, það geri ég.

Gulli litli, 14.1.2009 kl. 16:25

11 Smámynd: Einar Indriðason

En svo las ég þetta aftur.  Og, ég sé að þú átt banananana sem vin!  Og það er banananananinn sem kallar þetta platleikfimi.

Einar Indriðason, 14.1.2009 kl. 17:31

12 Smámynd: Rebbý

Verð að muna þegar ég byrja í ræktinni aftur að tékka á banönum og sjá hvort þeir reddi mér líka

Rebbý, 14.1.2009 kl. 22:47

13 identicon

Ó Hrönn.  Maður sofnar með bros á vör eftir þennan lestur og hvað er mikilvægara þessa daga?

Ég sakna bloggsins, en hef svo takmarkaðan tíma þessa daga sem myrkrið heggur í.  En það breytist bráðum.

Knús á þig og eins gott að þeir verði duglegir að senda bananananana frá Hveragerði til Selfoss.

Unnur Sólrún (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 22:57

14 Smámynd: www.zordis.com

Ég get alveg staðfest að Hrönn hreyfir sig mjög virðulega svo fallega að fólk snýr sér við á götu. Eg mun ekki verða í ró minni fyrr en ég fer í sundbussl með þessari frábæru konu.

www.zordis.com, 14.1.2009 kl. 23:52

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ef þú færð einhverjar upplýsingar um gerfiharðsperrur Hrönn mín, þá endilega láttu mig vita, ég fæ nefnilega oft harðsperrur í magann við að kíkja á þig  Hvað sagði apinn þegar hann sá bananana?  Hér koma bananarnir   Bananar eru örugglega alveg einstakir, hér hefur fólk meira að segja kennt lýðræðisríkið Ísland við þá ávaxtategund og teiknað hana inn á fánann svo eitthvað sé nefnt og nú er ljóst að þeir eru harðsperrumeðal líka. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.1.2009 kl. 14:26

16 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Borða mikið af banönum og fæ aldrei harðsperrur - enda hreyfi ég mig ekki rassgat.

Helga Magnúsdóttir, 15.1.2009 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband