Bændur úlpast!!

SANY0214Ég ákvað að vera vargur í dag og skellti mér á mótmælin í dag á Austurvelli ásamt öööörfáum öðrum!

Að Þorvaldi og Lilju ólöstuðum, fannst mér Lárus Páll bera af í ræðuhöldum en Þorvaldur sló náttúrulega í gegn með söng sínum. Ég get sagt þér það Þorvaldur að ef þú missir vinnuna sem smiður þá áttu vísan frama í söng!

Þarna voru margur og múgmenni.... Ég hitti Skessu og Katrínu Snæhólm ég hitti líka Ibbu Sig. ;) sem veit ekki einu sinni að ég þekki hana.......... hitti Söru dóttur Jennýar Önnu, þekkti hana af myndum af Jenný Unu sem að sjálfsögðu var líka mætt - enda með skoðanir á mörgu!!

Hitti líka fullt af fólki sem ég þekki úr kjötheimum - Frábær dagur og ég er ánægð með að hafa loksins drifið mig á Austurvöll.

Takk Ellen fyrir að útvega mér far.

Lifið í Lukku InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilma Kristín

Lárus Páll er snilldarræðumaður að hafa hann aftastan. En ég var hinsvegar að sofna undir allt of langri og langdreginni ræðu hennar (ok, kannski ekki sofna í orðsins fyllstu merkingu en allavega missti ég athyglina). Og vá, Þorvaldur getur klárlega sungið og einstaklega vel til fundið lag hjá honum.

Alveg sama hvað ég mæti oft þarna og þó ég viti af fullt af fólki sem ég á að þekkja þá hitti ég aldrei neinn. Aldrei! Kannski af því ég er svo lágvaxin að ég týnist í mannhafinu, kannski af því ég treð mér alltaf fremst. Ég varð til dæmis steinhissa þegar ég sá myndir af fundinum í dag hvað voru margir bak við okkur.

Vilma Kristín , 10.1.2009 kl. 21:56

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég var einmitt að svipast um eftir þér! Næst verð ég með spjaldið sem á stendur: Mundu mig - ég man þig! Þá þekkist ég allavega......

Hrönn Sigurðardóttir, 10.1.2009 kl. 21:59

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.1.2009 kl. 22:06

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Mótmælafundirnir eru orðnir aðal bloggara hittingarnir.  Takk fyrir að fara í dag og vonandi hitti ég þig næst

Sigrún Jónsdóttir, 10.1.2009 kl. 22:12

5 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Ég finn að í mér blundar mótmælandi......Taktu mig með næsta laugardag......eða ég get tekið þig með.... ég kem með bílinn og þú keyrir......

Fanney Björg Karlsdóttir, 10.1.2009 kl. 22:16

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hey Fanney! Það gæti verið meira en gaman..... Góð hugmynd og ég tek þig á orðinu!

Hrönn Sigurðardóttir, 10.1.2009 kl. 22:17

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sigrún það ætla ég líka að vona

Hrönn Sigurðardóttir, 10.1.2009 kl. 22:18

8 Smámynd: Rebbý

ég var nú að mæta í fyrsta sinn (hef einhvernvegin alltaf haft nóg annað að gera um helgar) og verð að viðurkenna að söngurinn hjá Þorvaldi bar af þarna - auk þess sem mér fannst ánægjulegt að sjá hvað margir mættu.   Þar sem mér var orðið kalt þá var rölt rólega af stað frá Austurvelli eftir rúmlega hálftíma stopp og því missti ég af Lárusi ... geri betur næst

Rebbý, 10.1.2009 kl. 22:34

9 Smámynd: www.zordis.com

Það hefur verið góð stemming og ánægjulegt að fólk bætist í hóp mótmælenda ... Hvað þarf til að þjóðin komi sínu til skila? Þarf að grípa til borgarastyrjaldar svo að þeir sem fastast sitja hlusti á skilaboðin, það að heyra öskrin er ekki það sama!

Svo er það C vítamín í morgunmat og kærleiksbollur!

www.zordis.com, 10.1.2009 kl. 22:46

10 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Ég fór á mótmælandafund á Austurvelli fyrir nokkru og mér leiddist labbaði ein þangað og hafði ekki nokkurn mann til að deila mínum skoðunum með.Ég hef upplifað svona stemmingu áður er ég fór í jarðaför og kirkjan var nánast full og sat ein á bekk. Það er kannski áran mín.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 10.1.2009 kl. 23:28

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já Auður - eða bara skilti sem á stendur: hronnsig.blog.is ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 10.1.2009 kl. 23:56

12 Smámynd: Steingrímur Helgason

Mér leiðizt þetta Livrarsollzpúlaralag, ~Þú skokkar einn á vegg~, óendanlega, alveg sama á hvaða tungumáli það er sungið, um hvað textinn fjallar & allt annað merkíngarlegt samhengi í því ósamhengi.

Duglegri þú en ég, alltént, ég ber fyrir mig slæma færð, því að þegar farið verður fært, verður fyrzt fært að fara.

Steingrímur Helgason, 11.1.2009 kl. 00:12

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahah Steingrímur!

Já Auður - ég skal vera í múnderingunni ;) 

Hrönn Sigurðardóttir, 11.1.2009 kl. 00:19

14 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Anna Ragna Alexandersdóttir, 11.1.2009 kl. 00:45

15 Smámynd: Einar Indriðason

Dem... þarf ég þá að finna mér mörgæsarbúning?

Einar Indriðason, 11.1.2009 kl. 01:11

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nei Einar! Ég þekki þig án hans..... ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 11.1.2009 kl. 01:28

17 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Af hverju sá ég þig ekki þarna í dag? Hvar varst þú þegar ég var þar?

Hrönn Sigurðardóttir, 11.1.2009 kl. 01:28

18 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Væri ekki gott að hittast fyrir mótmælin elsku bloggarar og stappa stálin eða þannig ?

Anna Ragna Alexandersdóttir, 11.1.2009 kl. 01:32

19 Smámynd: Einar Indriðason

Ég var sunnanmegin við Jón Sig... nær runnunum... í vestur átt....

Viltu GPS hnit næst? :-)

Einar Indriðason, 11.1.2009 kl. 01:41

20 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Já takk

Anna Ragna Alexandersdóttir, 11.1.2009 kl. 01:45

21 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nú.... þú hefur þá bara verið rétt hjá mér.....

Hrönn Sigurðardóttir, 11.1.2009 kl. 06:21

22 Smámynd: Einar Indriðason

Nú... hvar varst þú?  Og afhverju sá ég þig ekki?

Einar Indriðason, 11.1.2009 kl. 09:40

23 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég var aðeins vestar.... á sömu gangstétt!

Hrönn Sigurðardóttir, 11.1.2009 kl. 10:13

24 Smámynd: Einar Indriðason

Slow Motion....

"Cathy" ...

"Heathcliff" ......

Einar Indriðason, 11.1.2009 kl. 10:28

25 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

.....hvort ætlar þú þá að vera Cathy eða Heathcliff?

Hrönn Sigurðardóttir, 11.1.2009 kl. 13:15

26 Smámynd: Einar Indriðason

Frekar að spyrja... hvort ég ætli að vera Cathy og þá með djúpa bassa rödd... eða Heathcliff, rétt skriðinn úr mútum.....

Einar Indriðason, 11.1.2009 kl. 14:54

27 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Ég var þarna líka en sá þig ekki.   Horfi bara betur næst.   Annars verður maður hálf hræddur þarna því allir eru svo reiðir út í allt og alla.  

Marinó Már Marinósson, 11.1.2009 kl. 15:01

28 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já.... ég verð líklega að reyna að hafa kvekendið með næst, svo ég þekkist...... ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 11.1.2009 kl. 19:53

29 identicon

Elsku Hrönn.  Þú ert yndisleg.  Þakka þér fyrir innlitið til mín, þó ég hafi verið fjarverandi lengi.

Gott hjá þér að mæta á Austurvöll.  Núna hugsa ég um ástandið á Gaza og þá einhvern veginn skreppur saman þessi skortur á efnislegum gæðum, þessi dauði fjármagnsins, þessi kreppa - við erum þó á lífi.  Hér liggur ekki fólk dáið og sundurtætt fyrir fótum okkar.  En kannski má maður ekki fara út í svona samanburð eða hvað? Víst hefur margt ótrúlega ljótt átt sér stað hér vegna græðgi og eiginhagsmunahyggju og margir þurfa að líða fyrir það.

Sofðu rótt og nældu þér í fallega drauma, (ég var að bjarga börnum frá einhverjum risabirni í nótt).

Unnur Sólrún (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 22:02

30 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jú Sólrún! Hér má allt.

Hrönn Sigurðardóttir, 11.1.2009 kl. 22:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband