Helvítis fokking fokk!!

Já - ekkert helvítis halelúja kjaftæði hér!

Það fer ógeðslega í taugarnar á mér þegar fólk heldur að það sé að hugga mig með því að segja mér að ég taki nú ekki þennan sextíuþúsund kall, eða hvað þær nú eru þessar atvinnuleysisbætur,  upp úr götunni! Mér er fokkings sama þótt ég taki hann ekki upp úr götunni - Ég vil hann hvort eð er ekkert þaðan! Ég vil fá vinnuna mína aftur!!

Vinnuna sem ég lagði marga mánuði í að koma í lag! Vinnuna sem ég lá yfir til að fá reikninga til að stemma og fann ánægjuna hrislast um mig þegar það svo tókst. Vinnuna sem mér leið vel í og allt gekk eins og blómstrið eina....

Það ætti að hnakkaskjóta þessa útrásarvíkinga! Svo ganga bræðurnir Klemenzsynir um í bænum og ógna fólki sem er að mótmæla í mínu nafni. Báðir eru þeir á launum hjá ríkinu þ.e.a.s. MÉR!! Hér með eru þeir báðir reknir! Þeir geta þá staulast á vinnumálaskrifstofur og sótt um atvinnuleysisbætur eins og hinir. Ég meina þeir taka nú ekki þær bæturnar upp úr götunni!

Djöfull sem ég er sár, svekkt og leið. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Fokk  !!!! það þarf að reka fleiri og láta þá liggja í götunni....

Solla Guðjóns, 5.1.2009 kl. 14:13

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já og segja: Gott á þig!

Hrönn Sigurðardóttir, 5.1.2009 kl. 14:19

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Vá, datt einhverjum snillanum í hug að "Pollýannast" við "bótaþega"?

Sigrún Jónsdóttir, 5.1.2009 kl. 14:32

4 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

ó hvað ég skil þig vel...... þetta er helvítis fucking fuck...

Fanney Björg Karlsdóttir, 5.1.2009 kl. 14:46

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góð ertu.

Og það er rétt, þoli ekki þetta að týna upp úr götunni kjaftæði.

Það mætti fremja eitthvað á öllu þessu liði mín vegna núorðið.

Ég er að breytast úr friðelskandi konu í hryðjuverkakvendi.

GARG

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.1.2009 kl. 14:48

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég ætla að gerast atvinnumótmælandi og vera á launum hjá ríkinu!

Hrönn Sigurðardóttir, 5.1.2009 kl. 14:51

7 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Loksins er eithvad ad gerast hérna í bloggheimum..Segji svona

Átt allann minn skilning og studning.Ég er búin fyrir nokkrum mánudum ad hella úr mér vegna bóta sem ég fæ en tad var vid yfirmenn tessa lands.... BEINT Var samt ekki ad virka neitt.

Ég segji tad nú líka tetta er helvítis fucking fuck...

Med gódri kvedju til tín samt

Gudrún Hauksdótttir, 5.1.2009 kl. 14:52

8 Smámynd: Brynja skordal

Gleðilegt ár 

Brynja skordal, 5.1.2009 kl. 15:03

9 Smámynd: www.zordis.com

Ég hélt í fyrstu að þú værir að vitna í skaupið!! En svo er nú kanski að hluta til .... Við viljum vinnuna okkar aftur og allt það sem henni fylgir.

Þú færð mig samt ekki til að blóta ekki nema í prívat félagsskap, ljúfum og góðum!

www.zordis.com, 5.1.2009 kl. 17:01

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nei ég er ekki vön að blóta heldur....... varð bara að fá smá útrás.

Hrönn Sigurðardóttir, 5.1.2009 kl. 17:04

11 Smámynd: Dísa Dóra

skal sko alveg segja helvítis fokking fokk með þér

Dísa Dóra, 5.1.2009 kl. 18:28

12 Smámynd: Ragnheiður

Auðvitað ætlaðir þú ekki að fara að skima á götunni eftir þinni framfærslu..fólk vill fá að halda vinnunni sinni og sínu daglega lífi.

Þetta er alveg glatað !!!

Tek alveg undir með þér..

Ragnheiður , 5.1.2009 kl. 19:05

13 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Skil þig sko alveg, var atvinnulaus í nokkra mánuði fyrir tveimur árum og hefði verið til í að vinna hvað sem var fyrir hvaða laun sem var, bara að fá að hafa mína vinnu. Sem betur fer fékk ég draumadjobbið og hef setið þar sem fastast síðan og vonast til að gera það áfram.

Helga Magnúsdóttir, 5.1.2009 kl. 19:05

14 Smámynd: Vilma Kristín

Ég segir það sama þessir Klemenssynir eru reknir! Ég segi þeim hér með upp! Meiri kauðarnir þar á ferð...

Vilma Kristín , 5.1.2009 kl. 20:24

15 Smámynd: Einar Indriðason

Hrönn mín... ég veit ekki alveg hvort þetta var rasað út hjá þér.... Þetta virkaði meira sem svona ... smá blástur úr nös... (sem ég kannast við eins og er, verandi með kvef, og blæs því úr nös við og við .... en ... ég ... hmm... hvað ætlaði ég aftur að segja....)

Ah, já.  Ef þú virkilega þarft að blása úr nös, þá ráðlegg ég eftirfarandi:

Skrifaðu alveg sjóðandi ösku húrrandi heitan pistil.  Geymdu hann (vista).  En.  Ekki birta hann.  Gerðu þetta að kvöldlagi, og farðu svo í góða og heita sturtu.  Sofa.

Næsta dag skaltu henda pistlinum frá því í gær ólesnum, og skrifa hann upp á nýtt.  Þú mátt pústa út aftur.  Farðu aftur að sofa. 

Dagur 3.  (Kæri jóli.)  Hentu þessari útgáfu af pistli líka, og skrifaðu hann aftur.  Ef þú ert enn eins rasandi og þú varst í fyrsta skiptið, þá áttu það skilið að birta þennan pistil!

En, já.  Það má reka þá alla saman, með tölu!  (Já, og rennilás líka, ef talan dugir ekki til!)

Og hana nú!

Einar Indriðason, 5.1.2009 kl. 20:39

16 Smámynd: Huld S. Ringsted

Getum við ekki rekið fleiri í leiðinni??? en leiðinlegt að heyra með vinnuna þína

Knúskveðjur til þín

Huld S. Ringsted, 5.1.2009 kl. 20:41

17 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Einar! Ég hef bara eitt að segja við þig. Ætlarðu þá að vera í þrjá daga án pistils frá mér?

Takk annars fyrir samstöðu öll - mér hreinlega ofbauð! 

Hrönn Sigurðardóttir, 5.1.2009 kl. 20:55

18 Smámynd: Einar Indriðason

Uuu... Nei, ég vil síður vera án pistils frá þér í 3 daga....

(Viðurkenni jafnvel örlitla forvitni hvernig þú myndir hljóma.... ef þú virkilega færir af stað með að rasa út..... (þá er ég feginn að vera í öðru sveitarfélagi....))

Annars ... bara til að hjálpa þér að rasa út... þá færðu samstöðu knús!

Einar Indriðason, 5.1.2009 kl. 21:05

19 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Takk Einar minn! Og ef ég virkilega þarf að rasa út þá veit ég hvert ég á að fara :)

Hrönn Sigurðardóttir, 5.1.2009 kl. 21:09

20 Smámynd: Einar Indriðason

(memo to self:  passa að vera með gerfiskegg þegar Hrönn er nálægt......)

Einar Indriðason, 5.1.2009 kl. 22:15

21 Smámynd: www.zordis.com

Acabamos de terminar un chocolate calentito y trozito de roscon de reyes .... jummmmm!

Ef konur og sumir menn hugsuðu í 3 sólarhringa þá væri nú lítið fútt í fúttinu ... Annars hef ég heyrt að það sé sniðugt að hugsa!

www.zordis.com, 5.1.2009 kl. 22:38

22 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Que? Súkkulaði og hvað?

Nákvæmlega - ég hef heyrt það líka! 

Hrönn Sigurðardóttir, 5.1.2009 kl. 23:02

23 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég hugza að það sé ágætt að vera með zkegg, þegar Hrönnzla er í ham.

Steingrímur Helgason, 5.1.2009 kl. 23:55

24 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 6.1.2009 kl. 23:11

25 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Síðbúið...en SAMMÁLA!!!!

Helvítis fokking fokk....

Bergljót Hreinsdóttir, 10.1.2009 kl. 00:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.