Ferlega góður dagur!

Það er algjörlega klikkað að gera hjá mér...sem er gott að mörgu leyti en ég skil ekki að einu leyti - takið eftir mismuninum á mörgu og einu?! Vaskur - blak og útreikningur launa - þó ekki endilega í þessari röð........... Stúfur Stubbalings er soldið spældur því hann fékk engan göngutúr í dag - en hann bætir sér örugglega upp spælinguna í nótt þegar hann laumast upp í rúm til mín og leggst yfir tærnar ár mér Tounge Ég er alveg viss um að hann heldur að lagið "Ég sæi þig - hér eins og mig - ylja á þér tærnar á hundum...." sé ort um okkur - as in mig og hann Tounge og þá ekki í þessari niðurlægjandi merkingu.....

Dagurinn hófst á sundleikfimi - þar sem við fengum að fara í blak sem er algjörlega uppáhalds InLoveFór svo í borg óttans eftir vinnu í dag og hjálpaði uppáhaldsfrænkunni minni að flytja í nýju íbúðina sína - sem er vitaskuld á efstu hæð í lyftulausu húsi! Nú er ég að undirbúa harðsperrur morgundagsins. Búin að raða verkjatöflum eftir stærð og í stafrófsröð á skrifborðið og merkja við klukkan hvað ég ætla að taka þær W00t Ég er að segja ykkur það - ordrur dagsins eru skipulagning! Ég spái því að ég verði sofnuð um ellefu leytið.........

Annars veit ég að morgundagurinn verður flottur hjá mér og ég hlakka til að vakna Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég hlakka líka til að vakna með þér. 

Anna Einarsdóttir, 2.12.2008 kl. 23:21

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú ert ofvirk og yndisleg.

Góðan daginn (fyrirframósk).

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.12.2008 kl. 23:28

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 2.12.2008 kl. 23:38

4 Smámynd: Marinó Már Marinósson

"þar sem við fengum að fara í blak sem er algjörlega uppáhalds"   he he     Getið þið ekki bara fundið þjálfara sem leyfir alltaf blak?    

Marinó Már Marinósson, 2.12.2008 kl. 23:48

5 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég er ennþá í vinnunni og ætla að sofa út.

Helga Magnúsdóttir, 2.12.2008 kl. 23:57

6 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

...."Búin að raða verkjatöflum eftir stærð og í stafrófsröð á skrifborðið og merkja við klukkan hvað ég ætla að taka þær"....... Það eru bara þú og Bridget Jones sem myndu gera svona ráðstafanir...... þú drepur mig kona....

Fanney Björg Karlsdóttir, 3.12.2008 kl. 00:09

7 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Frábær dagur að kvöldi kominn og annar ennþá betri framundan...með fullt af fjöri....verkjastillandi í stafrófsröð og tómri gleði.....ekki leiðinlegt...

 

Þú ert alveg ótrúleg kona...alveg einstök!!!!

 

Fyrirfram góðan dag og vonandi svafstu  vel!!!!

Bergljót Hreinsdóttir, 3.12.2008 kl. 01:21

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Svona er Bjartur líka hann er alltaf að stelast í rúmið mitt.

Eigðu góðan dag Hrönn mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 3.12.2008 kl. 10:13

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Tek undir með Fanney, þú og Bridget Jones...two of a kind

Sigrún Jónsdóttir, 3.12.2008 kl. 11:02

10 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Ég vil biðja þig að hætta að taka þessa eiturtöflur og komdu þér úr borg óttans.

Átt þú góðan dag.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 3.12.2008 kl. 11:46

11 Smámynd: Einar Indriðason

En, sko... hér er spurning.... Þegar þú vaknar um miðja nótt... og ætlar að finna næstu stafrófsröðuðu og stærðarröðuðu verkjatöflu..... þarftu þá að:

1) skríða undan rúminu

2) þreifa þig í átt að ljósrofanum

3) kveikja

4) fálma út í loftið til að finna gleraugun

   4a)  setja gleraugun á nefið

   4b)  horfa í kringum þig í gegnum gleraugun
 

5) finna Post-It miðann sem þú festir á vegginn

6) lesa Post-It miðann:  "Taka næstu stafrófsröðuðu og stærðarröðuðu verkjatöflu, glas af vatni, sofa aftur" 

7) þreifa þig áfram eftir vatnsglasinu

8) grípa næstu töflu

9) sannreyna að þetta sé rétt tafla, bæði stafrófslegaséð og stærðarlega séð

10) setja töfluna upp í þig

11) gleypa

12) drekka vatn með

13) fylla á vatnsglasið aftur fyrir næsta umgang (sem, miðað við allan þennan lista, gerist eftir ... nákvæmlega ... 12.7 mínutur)

14) setja vatnsglasið á borðið

15) slökkva á ljósinu

16) skríða undir rúm aftur

17) sængina yfir

18) hundinn yfir

19 - 23) koma þér vel fyrir.  svona... grafa þig niður í rúmið og fletið, og slétta úr sænginni, tryggja að fiðrið sé allt jafndreift

24) stilla vekjaraklukkuna á (núna) 5.3 mínutur í næsta skammt.

25) sofa.

eða....

(valkostur B)

1) umla út í loftið

2) grípa næstu pillu

3) gleypa

4) sofa

Einar Indriðason, 3.12.2008 kl. 12:08

12 Smámynd: www.zordis.com

Hrönn, Einar er búinn að lesa þig algjörlega .....

Vona að þú sért vöknuð og sért valhoppandi eftir götum bæjarins. Knús á þig hoppandi bunný, þú krúttlega hunný!

www.zordis.com, 3.12.2008 kl. 12:56

13 identicon

Ég er með húsband í mínu rúmi og reyndar 800 gramma hund líka.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 13:14

14 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Einar! Það var sko valkostur C líka...... Sofa eins og klessa og rumska ekki hót ;)

Bridget Jones segiði? Ætti ég að renna mér niður brunasúluna? Sem ég held að vísu að hljóti að vera afspyrnuskemmtilegt ;) 

Hrönn Sigurðardóttir, 3.12.2008 kl. 13:14

15 Smámynd: Einar Indriðason

Tja... valkostur C hefði verið of augljós... (eða þannig) eftir þennan langa, langa, langa lista......

Einar Indriðason, 3.12.2008 kl. 13:43

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já - en þannig er ég bara! Einföld að allri gerð og fyrirsjáanleg í þokkabót ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 3.12.2008 kl. 13:49

17 identicon

Þú er bara æði!! Hurru, bara heita pottinn á harðsperrurnar :)

alva (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 13:53

18 Smámynd: Hugarfluga

Blak?? *hrollur*  Eftir að hafa ekki fengið að spila neina aðra boltaíþrótt en blak í Verzló hér um árið get ég með góðri samvisku sagt að blak er not my cup of tea.  Njóttu hundainniskónna þinna, darling. 

Hugarfluga, 3.12.2008 kl. 14:37

19 Smámynd: Dísa Dóra

haha þú ert alltaf jafn yndisleg kona góð

Dísa Dóra, 3.12.2008 kl. 15:19

20 Smámynd: Vilma Kristín

:)

Vilma Kristín , 3.12.2008 kl. 19:44

21 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 4.12.2008 kl. 09:14

22 Smámynd: Solla Guðjóns

kasta á þig knúsi

Solla Guðjóns, 4.12.2008 kl. 09:40

23 Smámynd: Brynja skordal

Brynja skordal, 4.12.2008 kl. 13:57

24 Smámynd: Þröstur Unnar

Ég er ekki eins annarlegur og Dúa.

Annars vona að morgundagurinn verði góður, þ.e.a.s ef hann verður ekki búinn þegar þetta skeyti berst í sveitina.

Þröstur Unnar, 4.12.2008 kl. 14:22

25 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 4.12.2008 kl. 16:07

26 identicon

Maður fer allur á flug þegar maður kíkir hér í heimsókn.  Hér er gleði og gaman og þú dansar á miðju gólfi í fallegu rauðu peysunni þinni.  Vona að þú hafir vaknað hressari en áður og algjörlega, gjörsamlega verkjalaus.  Knús á þig.

Unnur Sólrún (IP-tala skráð) 4.12.2008 kl. 17:27

27 identicon

HEY! Það er bannað að gera upp á milli !!

 Djöfuls frumburðir fá alla ástina ....

 

Erla (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 10:15

28 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Það var einmitt þetta sem ég óttaðist! Að ég fengi allt frænkustóðið yfir mig - en ég elska þig líka............ ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 5.12.2008 kl. 11:20

29 identicon

Hahaha...já ekki gott að hafa frænkustóð á móti sér.

 En engar áhyggjur. Þú getur bætt þetta upp. Við flytjum heim í lok jan. og búum upp á þriðju hæð .... án lyftu! ;) ´

Knús frænka mín.

Erla (IP-tala skráð) 6.12.2008 kl. 09:50

30 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 6.12.2008 kl. 09:52

31 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Kærleikur til þín

Anna Ragna Alexandersdóttir, 6.12.2008 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband