Sólkerfi minninganna

Endur fyrir löngu var ég í sveit í Vopnafirði.......

Þetta sumar var ég voða skotin í strák sem átti heima inni á "Tanga". Ég var fimmtán, hann var eitthvað eldri, enda alltaf verið veik fyrir eldri mönnum Wink Af minni alþekktu tillitssemi ætla ég ekki að segja hvað hann heitir en nafnið var ættað utan úr geimnum Joyful

Sautjánda júní dönsuðum við saman allt kvöldið - seinna bauð hann mér í partý heim til sín. Við vorum í góðu glensi í stofunni að hlusta á tónlist þegar hurðin opnaðist og inn stormaði mamma hans - í Hagkaupsslopp með rúllur í hárinu - hún lækkaði tónlistina, án þess að segja orð og strunsaði síðan út úr stofunni aftur og lokaði hurðinni á eftir sér....... Mér fannst það vandræðalegt þá en hrikalega fyndið núna Tounge

Ég sé hana enn fyrir mér, en man engan veginn hvernig strákurinn leit út W00t

Þetta rifjaðist upp fyrir mér rétt í þessu þegar Mömmusinnardúlludúskur spurði mig, þegar ég var á leið undir rúm, hvort ég ætlaði ekki að horfa á Prison Brake með sér! 

Ég sagði honum að ef hann héldi fyrir mér vöku þá mundi ég ekki hika við að storma inn í stofu í Hagkaupsslopp með rúllur í hárinu W00t

Hann þagði stundarkorn en benti mér síðan á að ég ætti ekki Hagkaupsslopp og þaðan af síður rúllur.......

Nú situr hann og horfir á Prison Brake - í stofunni. Ég er hins vegar undir rúmi að rifja upp gömul skot... sár Sideways

Pís & lov Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mamma mín var í svona múnderingu flesta daga í denn minnir mig.Góð að vanda

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 23:06

2 Smámynd: Vilma Kristín

He, he, trúi að þetta hafi verið vandræðalegt fyrir fimmtán ára ástsjúkan unglin

Vilma Kristín , 30.10.2008 kl. 23:09

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já Birna Dís! Var þetta ekki þjóðbúningur mammanna?

Vilma!

Hrönn Sigurðardóttir, 30.10.2008 kl. 23:14

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Dúzkur 1 - MammaHrönnzla 0

Sem betur fer náði flokkur annara samkynhneigðari kvenna komnar undan rúmum & sápum betri úrslitaniðurstöðum í kvöld, enda eru konur betri menn, en menn, þannig séð.

'But keep up the ~friggíng~ good work, from under yer bed.."

Steingrímur Helgason, 30.10.2008 kl. 23:33

5 identicon

Hahahahaha þú er æði vissir þú það? Nú ef þú hefur efast um það hve frábær þú ert þá veistu það núna.

Sigurlín (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 23:51

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vertu undir rúmi þar sem þinn staður er.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.10.2008 kl. 23:57

7 Smámynd: M

Var þetta hann ET ?

M, 31.10.2008 kl. 00:17

8 identicon

Eða hét hann kannski Plúbb eða plúpp ( man kannski enginn eftir þeirri fígúru í barnabókunum í den, einhver geimkarl sem kom til Íslands í könnunarleiðangur) Ef hugsanir þínar undir rúmi snúast um einhvern honum líkum, þá skaltu koma þér undan rúminu og hætta að hugsa um þetta gamla skotsár, Plúpp var ekkert sexý..

risaknús.

alva (IP-tala skráð) 31.10.2008 kl. 00:52

9 Smámynd: Brynja skordal

Hagkaupsslopp langar í solleiðis áttu einn og kannski nokkrar rúllur en fínt að geyma gamlar minningar undir rúmmi þó þær séu utan úr geimnum

Brynja skordal, 31.10.2008 kl. 01:45

10 Smámynd: www.zordis.com

Dæmalaust yndislegt love story.  Ég get reddað markaðssloppum sem allar spænskar perulagaðar konur eiga og nota!!!  Þú ert svo mikið trend essskan.

Á Vopnafirði eru margir af fallegustu karlmönnum þjóðarinnar ... er ekkert framhald á þessari sögu; hvað gerðuð þið e. að konan í sloppnum strunsaði burt????

www.zordis.com, 31.10.2008 kl. 08:24

11 Smámynd: Huld S. Ringsted

Man maður eftir hagkaupssloppunum og þegar konur fóru út í búð með rúllurnar í hausnum

Huld S. Ringsted, 31.10.2008 kl. 09:17

12 Smámynd: Dísa Dóra

hahaha nú verð ég að fara að njósna hjá karli mínum (sem á ættingja á Vopnafirði) hvaða strákar á þínum aldri heita geimnöfnum

Man nú ekki til að mamma hafi átt hagkaupsslopp þó sennilega hafi hann verið til í hennar fórum en ég man allvega að amma blessunin átti fleiri en einn slíkan.  Dæs góðar minningar

Dísa Dóra, 31.10.2008 kl. 10:02

13 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mamma mín var í hagkaupsslopp líka og með rúllur í hausnum.

Skemmtilegar minningar með gæjanum.

Spurningakeppni á minni síðu komdu og gettu.

Kristín Katla Árnadóttir, 31.10.2008 kl. 10:47

14 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

yndislegt love story

Anna Ragna Alexandersdóttir, 31.10.2008 kl. 11:25

15 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Heitir hann Máni ! humm sæt saga.

Ljósakveðjur frá Lejre

Steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 31.10.2008 kl. 11:31

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Steina! Ljóngáfuð

Hrönn Sigurðardóttir, 31.10.2008 kl. 12:56

17 Smámynd: Ragnheiður

Vá hvað ég var heppin að finna þessa færslu..bráðskemmtileg eins og ávallt í boði hússins...

ég er nebblega orðin svo leið á kreppugreiningastjórnmálaskýringaseðlabankadissbloggum að ég veit að þú trúir því ekki.

Amma átti svona Hagkaupsslopp...man ekki eftir rúllunum hjá henni enda erum við konur af Guðs náð hrokkinhærðar...Amma fór td aldrei í síðbuxur nema hún væri að fara út eitthvað - í verslun eða svoleiðis

Ragnheiður , 31.10.2008 kl. 13:43

18 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Já,,,, sumt verður ekki unnið aftur til baka.   

Marinó Már Marinósson, 31.10.2008 kl. 17:12

19 Smámynd: www.zordis.com

Eins gott að hann heitir ekki Uranus ... thi hi hi

www.zordis.com, 1.11.2008 kl. 11:39

20 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Gömul skotsár er unnt að rífa upp með ýmsu móti, Hrönnslan mín.

Er ekki tími Hagkaupssloppa (eða Rúmfatalagerssloppa?) og hárrúlla runninn upp aftur? Það er bara spurning hvenær maður hefur tíma í svoleiðis tímaflipp? Á nóttunni?

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 2.11.2008 kl. 11:54

21 Smámynd: Tína

Heyrðu tjelling.......................... ef maður ætlar að fá muffins hjá þér................ verður maður þá að skríða undir rúm til þín????

Knús inn í helgina

Tína, 2.11.2008 kl. 12:07

22 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nei Tína! Bara mæta.....;) ég get sossum alveg fleygt einni eða tveimur undir rúm - ef þú vilt frekar vera þar.....

Guðný Anna! Mér sýnist þeir vera að koma sterkir inn núna slopparnir! 

Hrönn Sigurðardóttir, 2.11.2008 kl. 13:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.