Snjórinn

...kom eins og himnasending!

Ég auglýsti nefnilega vetrardekk til sölu á kassi.is og það var eins og við manninn mælt - það byrjaði að snjóa!

Það hefur heldur ekki stoppað hjá mér síminn! Ef ykkur vantar dekk þá er mömmusinnardúlludúskur dekkjasafnari af guðs náð og kjallarinn hjá mér er kjaftfullur af dekkjum. Ég veit ekki hvursu tengdur hann er þessum  gúmmítuðrum þarna niðri. Það kemur líklega í ljós þegar á að fara að slíta þau af honum!

Þetta minnir mig einna helst á það, þegar ég var að reyna að venja hann af snuði! Það tók nú sinn tíma - enda var hann soddan krútt með snuð!

Nú er hann krútt með snúð Sideways


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.10.2008 kl. 11:30

2 Smámynd: Ragnheiður

Hann er greinilega með eitthvað gúmmí fetish...fyrst snuð og svo dekk?!

Ragnheiður , 22.10.2008 kl. 11:37

3 identicon

 gúmmí thing hehehehehehe

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 11:41

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já! Þetta er eitthvað......

Hrönn Sigurðardóttir, 22.10.2008 kl. 11:54

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Venja hann af gúmmíinu........

M.b.k. frá "Ömmu"

Sigrún Jónsdóttir, 22.10.2008 kl. 12:27

6 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Ha ha ha...

Gefðu mömmusinnardúlludúski bara gúmmískó...þá verður hann hamingjusamur...með tútturnar á tánum og snúð í annarri...bara krútt...

Bergljót Hreinsdóttir, 22.10.2008 kl. 12:53

7 Smámynd: Vilma Kristín

Já, merkilegt með snjóinn.  Ég fékk skyndihugmynd í gær að láta skipta um dekk á bílnum mínum.  Ekkert að gera á dekkjaverkstæðunum og það var bara dúllað við bílinn minn. Ég var svo hissa þegar ég leit útí morgun og sá snjóinn.  Og svo var ég laaaaang flottust í hverfinu mínu, brunaði fram hjá öllum sátu spólandi um allt

Vilma Kristín , 22.10.2008 kl. 13:17

8 Smámynd: www.zordis.com

Engil takk !!!!

www.zordis.com, 22.10.2008 kl. 14:05

9 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

mmmmm hvað snúðarnir þínir voru góðir í hádeginu.... ég þarf greinilega að kíkja oftar til þín í kaffi.......

..og lestu nú bókina,,, því við verðum að spjalla um hana... en ég vara þig við.... hún er nokkuð gróf á köflum..... jú nó.....en mundu að það var karlmaður sem skrifaði hana..

Fanney Björg Karlsdóttir, 22.10.2008 kl. 15:52

10 Smámynd: Heiða  Þórðar

ekki gleyma sólgleraugunum...

Heiða Þórðar, 22.10.2008 kl. 17:04

11 Smámynd: Þröstur Unnar

Svona getur maður misskilið mismikið, en ég hélt að "mömmusinnardúlludúskur" væri ferfætlingur.

kveðja í sveitina.

Þröstur Unnar, 22.10.2008 kl. 17:46

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sigrún! Ég er að vinna í því....

Bergljót! Einhvern tíma  gaf ég honum slíka skó! Ég hugsa að hann eigi þá enn....

Vilma! Heppin

Zordis! Kominn

Fanney! Takk fyrir eggin Já ég dríf í bókinni! Ekki amalegt að skyggnast inn í hugarheim karla í leiðinni - afar flókið fyrirbæri.....

Heiða! Ég passa mig á því

Þröstur! Hvurslax kynlífi heldur þú að við lifum í sveitinni....

Hrönn Sigurðardóttir, 22.10.2008 kl. 18:28

13 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég segi ekki meir um kynlífið í sveitinni.....

Solla Guðjóns, 22.10.2008 kl. 20:05

14 Smámynd: Gulli litli

Ertu til í ad auglýsa sólgleraugun þín til sölu? Nei segi bara svona, ha...

Gulli litli, 22.10.2008 kl. 21:28

15 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Hvílík heppni yfir þér kona.

Hvaða bók ertu að lesa?????????

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 22.10.2008 kl. 21:41

16 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Áttu ekki sólhatt eða sandala? 

Marinó Már Marinósson, 22.10.2008 kl. 22:29

17 Smámynd: Brynja skordal

Demm þetta er sem sagt allt þér að kenna með snjóinn og kannski fl ha..humm...sumir hafa meiri áhrif en aðrir pifff ennn sverðþað hélt það sama og þröstur var síst að skilja hvað þetta væri vel vanin hundur með snuddu enn rann á mig 2 Grímur með dekkin sko svo er þetta bara Mömmudúlludúskur þarf að fylgjast betur með

Brynja skordal, 23.10.2008 kl. 02:07

18 Smámynd: www.zordis.com

Takk fyrir querida!

Hvernig vaeri ad fá "dúskinn" til ad taka mynd naest zegar zú gerir engil!!!!  getum svo selt íslenska engla á e bay .... bullandi bissness, já og keypt stort fyrirtaeki eins og marta var ad minnast á)

www.zordis.com, 23.10.2008 kl. 09:06

19 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Líst vel á það Zordis! Nema við mundum ekkert bíða eftir að það minnkaði....

Brynja! Fylgjast með - vera vakandi!!

Marinó! Júúúú langar þig í sumar og sól........?

Guðný Anna! Ég veit..... bókin heitir: Kona fer til læknis.

Gulli! Þau eru á e-bay

Solla! Við höldum því bara leyndu.... áfram

Hrönn Sigurðardóttir, 23.10.2008 kl. 09:38

20 Smámynd: Tína

ég verð nú að viðurkenna að ég er orðin ansi forvitin um hvað það er sem eiginlega leynist í þessum kjallara hjá þér túttan þín.

En þessi bók er frábær og mæli ég eindregið með henni. Hún kenndi mér ansi margt og bloggaði ég einu sinni um það.

Knús á þig tútta og takk aftur fyrir hrikalega góð skeikenkorners

Tína, 23.10.2008 kl. 10:11

21 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já Tína..... ég sýni þér kannski einhvern tíma niður....... veit það þó ekki.... Það er nefnilega ekki algilt í þessum kjallara með að það sem fari niður komi endilega upp aftur

Hrönn Sigurðardóttir, 23.10.2008 kl. 10:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband