Ögrandi samsæriskenning!

Það er verið að grípa miðaldra einstaklinga, bæði fyrir austan og í Keflavík, fyrir innflutning á eiturlyfjum! Þessir einstaklingar eiga það sameiginlegt fyrir utan innflutning á óþverra að koma frá útlöndum og vera kallaðir burðardýr.

Í framhaldinu hef ég smíðað afar ögrandi samsæriskenningu. Kenninguna hef ég kosið að kalla: Bjarndýr í burðarliðnum!

Þau synda á land, Guðeinnveit hvaðan, geðstirð og full af óþverra, móttökusveitin er löggæslan og á hliðarlínunni bíða helspenntir, fjársterkir einstaklingar tilbúnir til björgunar! Já...... - ég sé það í hendi mér að ef ég held áfram á þessari braut, mun ég eiga yfir höfði mér ákæru vegna meiðyrða!! Þ.e. ef einhver les bloggið mitt ;)

Ég geri þess vegna bara eins og Ragnar Reykás og vend kvæði mínu í kross, nú þegar strax og spyr: Hvers vegna eru hin burðardýrin ekki bara hnakkaskotin líka? Ég er alveg viss um að þau eru afar geðstirð sitjandi niðri á strönd........... Sideways

Finnst ykkur að ég ætti að skokka aðeins minna? Minnka súrefnisinntökuna....... Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég ætla ekki að segja hvað mér datt í hug að skrifa.  hehe.

Til hamingju með 19. júní addna villingurinn, snillingurinn þinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.6.2008 kl. 11:39

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Skokka meira, miklu meira..... heilinn "svínfúnkerar" hjá þér. 

Anna Einarsdóttir, 19.6.2008 kl. 11:40

3 Smámynd: Tína

Alltaf jafn skemmtilegt sem veltur upp úr þér

Til lukku með daginn krútta.

Tína, 19.6.2008 kl. 13:57

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Skokka meira, greinilega skortur á súrefni

Til hamingju með daginn

Huld S. Ringsted, 19.6.2008 kl. 15:31

5 Smámynd: Einar Indriðason

Nei, ég held þú ættir virkilega að beita þér fyrir því að finna og benda á alla svona samsæriskenningarþræði sem þú getur fundið og búið til, í íslensku þjóðfélagi.

T.d. ... Nú er Landhelgisgæslan komin með nýtt agn fyrir næstu ísbirni.  Landhelgisgæslan notar stelpur sem heita Karen, sem beitu!  (Fyrstu persónur sem sáu báða ísbirnina.... heita.... Karen.)

Einar Indriðason, 19.6.2008 kl. 15:40

6 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Thí hí....útiloftið alveg að gera sig hérna...súrefnismettun góð...má jafnvel alveg auka svolítið skammtinn...

Bergljót Hreinsdóttir, 19.6.2008 kl. 17:45

7 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Elskan mín..... í guðanna bænum haltu endilega áfram að skokka...... sérstaklega ef það gefur þér  svona asskoti góðar hugmyndir.......Ég er í kasti hérna í sveitinni..... sé þetta allveg fyrir mér.....

Fanney Björg Karlsdóttir, 19.6.2008 kl. 19:26

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ekki ætla ég að kæra þig, er sennilega meðsek.

Sigrún Jónsdóttir, 19.6.2008 kl. 21:09

9 Smámynd: Linda litla

Jæja Hrönn mín...... en þig vantar a.m.k. ekki hugmyndaflugið.

Til hamingju með daginn.

Linda litla, 19.6.2008 kl. 21:38

10 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 20.6.2008 kl. 00:20

11 Smámynd: Heiða  Þórðar

Snillingur

Heiða Þórðar, 20.6.2008 kl. 00:26

12 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Meira skokk og meira súrefni kella. Annars eru Víetnamar eða Tælendingar með snilldar lausn á inn og útflutningi eiturlyfja. Annaðhvort skotnir eða í fangelsi í 12 ár með möguleika á náðun eftir 6 ef allt gengur vel og ættingjar borga helling í lausnargjald.

Gunnar Páll Gunnarsson, 20.6.2008 kl. 05:02

13 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Um að gera að skjóta öll aðkomudýr, hvort sem þau eru burðardýr eða eitthvað annað.

Helga Magnúsdóttir, 20.6.2008 kl. 15:14

14 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 20.6.2008 kl. 21:09

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Thí hí

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.6.2008 kl. 02:42

16 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

drugs-5.jpg   gnome Góða helgi!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 21.6.2008 kl. 17:02

17 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Mér finnst að þú eigir að skokka meira og klára kenninguna. (það vantar tæpast skóna í það)

Halldór Egill Guðnason, 22.6.2008 kl. 01:25

18 Smámynd: Heiða  Þórðar

skokka minna - blogga meira

Heiða Þórðar, 22.6.2008 kl. 11:28

19 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Gerðu bara það sem þig langar til. þú ert löngu búin að sanna þig

Anna Ragna Alexandersdóttir, 22.6.2008 kl. 11:36

20 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég þarf ekki að skokka til að vilja skjóta burðardýr því þau vita nákvæmlega hvað þau eru að gera.reyndar vil ég að gefin verði út veiðileifi á þau og innflyténdur óþverrans og samsæriskenning þín er rétt...þá skjóta......

Solla Guðjóns, 22.6.2008 kl. 13:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.