17.6.2008
Með fætur eins og veðhlaupahryssa.....
.....sagði amma mín eitt sinn þegar ég bauðst til að skondrast upp á háaloft fyrir hana að sækja eitthvað.
Ég stend mig að því að líkjast ömmu æ meir með árunum! Ég er farin að hljóma ískyggilega mikið eins og hún - tala um að fara inneftir og úteftir...... Veðrið er alltaf betra í mínu hverfi...... -og svo þessi óendanlega þrjózka sem ágerist fremur en hitt, ef eitthvað er, nema í minni sveit heitir þetta ekki þrjózka heldur stolt......
Amma fór aldrei út úr húsi nema vel tilhöfð - henni hefði aldrei dottið í hug að fara í Höfn með hárið út í allar áttir eins og Gilitrutt! Amma verzlaði aldrei í Kaupfélaginu - það var framsóknarbúðin, sjáðu til, og hún var sko sjálfstæðiskona fram í fingurgóma! Þar kannski skilur á milli, ég hef aldrei kosið sjálfstæðisflokkinn - held að það sé eini flokkurinn sem ég aldrei hef kosið!
Ég sé hana líka birtast í systrum mínum. Man þegar við Eygló vorum eitt sinn staddar í Hafnarfirði á sautjánda júní að horfa á einhver skemmtiatriði og skiptum um stellingu á nákvæmlega sömu sekúndunni og stóðum þá báðar eins og amma...... og flissuðum svo að því eins og hálfvitar
Á eftir ætlum við Ljónshjartað út að skokka í góða veðrinu. Ég þarf ekkert að passa á mér hnén - ég hef nefnilega fætur eins og veðhlaupahryssa
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Eldri færslur
2021
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Spurt er
Tenglar
Uppskriftir
- Bollur eða brauðlengjur
- Kærleiksbollur
- Gróft brauð
- Bananabrauð
- Kryddbrauðið hennar Jónínu
- Kryddbrauð
- Lífsins brauð
- Fyllt brauð
- Gömlu góðu kanelsnúðarnir hennar mömmu
- Hafrakex
- Skinkumyrjuhorn og pizzasnúðar
- Ostaskonsur
- Muffins
- Eplakaka Mörtu Smörtu ;)
- Rabbarbarapæ
- Epla og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka mótmælanda efnahagsástandsins ;)
- Vatnsdeigsbollurnar hennar ömmu
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Biluð hollusta Hjónabandssæla
- All bran kökur
- Brynhildur Delisíus
- Gillaður humar
- Salat númer eitt
- Gulrótarsalat með dassi af fortíðarþráhyggju
- Gúllassúpa
- skólastjórasúpa
- Grænmetissúpa Zordísar
- Fylltar kjúklingabringur Uppskrift að góðu kvöldi
- Fljúgandi Jakob með stílbragði
- Kjúklingaréttur Thai Pride
- Ungnauta - innra læri
- Fiskréttur í ofni
- Grænmeti í ofni
- Ratatoullie a la maison
Vefsíður
Færsluflokkar
- Afmæli og stórhátíðir
- allt annað
- amatörar
- Bloggar
- Bækur
- Draugasögur
- Dútl heima við
- Dægurmál
- fagmennska
- Ferðalög
- Fordómar og spéhræðsla
- Galdrar og töfrar
- Glæpamál
- Grill
- Grobb
- Gæludýr
- gæludýr og dýrafát
- hausti fagnað
- hugsanleg húsbönd
- Iðnaðarvinna og verkir
- Íþróttir
- íþróttir og útivist
- Kvikmyndir
- Launráð og fyrirsát
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- málningarvinna
- Menning og listir
- menn og málleysingjar
- mótorhjól og akstursíþróttir
- Óbyggðir Vestfjarða
- Sjónvarp
- Skordýr
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- svefn og síþreyta
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Veikindi
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- öfugir fordómar
- Ölæði og ólæti
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Marta B Helgadóttir
- www.zordis.com
- Anna Einarsdóttir
- Ragnheiður
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- SigrúnSveitó
- Guðný Anna Arnþórsdóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Solla Guðjóns
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Brattur
- Garún
- Sigrún Jónsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Halldór Egill Guðnason
- Þröstur Unnar
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Dúa
- Hagbarður
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Bullukolla
- Einar Indriðason
- Steingerður Steinarsdóttir
- Rebbý
- Vilma Kristín
- Dísa Dóra
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Ía Jóhannsdóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Hugarfluga
- Bergljót Hreinsdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Bjarni Harðarson
- Marinó Már Marinósson
- Sigurður Ingi Jóhannsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Steingrímur Helgason
- Þórbergur Torfason
- Ólöf Anna
- Brúðurin
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Víðir Ragnarsson
- Laufey Ólafsdóttir
- Róbert Tómasson
- Ólafur fannberg
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Gulli litli
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Linda litla
- Ágúst H Bjarnason
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Svala Erlendsdóttir
- Tína
- Markús frá Djúpalæk
- Gudrún Hauksdótttir
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
Athugasemdir
Gleðilegan þjóðhátíðardag
Huld S. Ringsted, 17.6.2008 kl. 14:15
Ég held að þú verðir sérvtringur mikill með árunum. Svona eins og Bob Dylan mínus söngur og spil.
Knús.
Jenný Anna Baldursdóttir, 17.6.2008 kl. 14:48
Sko til...... ég hef líka kosið allt nema Sjálfstæðisflokkinn og Alþýðubandalagið.
Þar sem þú líkist ömmu þinni svona mikið, þá líkar mér verulega vel við ömmu þína.
Anna Einarsdóttir, 17.6.2008 kl. 15:31
... ég er ekkert smá öfundsjúkur yfir því að þú skulir hlaupa út um allar trissur, ég hljóp nefnilega af mér hné fyrir nokkrum árum... nú skrönglast ég bara um eins og úreltur framsóknarmaður... sem hefur kosið allt nema Sjallanna og Flokk mannsins...
Brattur, 17.6.2008 kl. 15:38
Það er þroskamerki þegar maður viðurkennir að maður líkist formæðrum sínum. Ég var lengi í afneitun.
Þú ert síhlaupandi kona, dugleg ertu.
Gleðilegan þjóðhátíðardag
Sigrún Jónsdóttir, 17.6.2008 kl. 16:03
njóttu skokksins á eftir - viss um að amma þín var yndisleg kona fyrst þú ert svona vel heppnuð
man núna í augnablikinu ekki hvernig öll vísan er sem afi skrifaði í bekkjabókina mína í "gamla" daga en hún endaði svona .... "því amma er mamma hennar mömmu og mamma er það besta sem ég á" datt þetta einhverra hluta vegna í hug núna við þennan lestur.
Rebbý, 17.6.2008 kl. 18:29
Ég rétt náði mynd af fótunum á henni...
..en svo var hún hlaupin!
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 17.6.2008 kl. 20:09
Ömmur eru æðislegastar og þín hefur greinilega verið stútungskerla
Solla Guðjóns, 17.6.2008 kl. 21:21
Þú hefur fullt leyfi frá mér, til að halda áfram að kjósa ekki sjálfstæðisflokkinn!
(annars er ég pínulítið að sjá fyrir mér ... veðhlaupahryssuna.......)
Einar Indriðason, 17.6.2008 kl. 21:23
Takk sömuleiðis Huld
Jenný! Það er ekki sérvizka nema hún sjáist.....
Anna! Þú ert ekki sem verzt sjálf...
Brattur! Ég vissi það - umhyggjan fyrir hnjánum á mér var þá eftir allt saman afbrýðissemi
Segðu Sigrún!
Rebbý! Ekki svo vitlaust hugsað....
Takk sömuleiðis Gréta
Helga Guðrún! Hlaupastíllinn er miklu reistari hjá mér..... ertu viss um að þetta sé veðhlaupahryssa?
Solla
Einar! Takk..... vonandi er þín sýn fallegri en Helgu G.
Hrönn Sigurðardóttir, 17.6.2008 kl. 22:19
Ömmur eru bestar...vonandi var dagurinn þér extra ánægjulegur.
Heiða Þórðar, 17.6.2008 kl. 23:41
Knús í daginn til þín þín Hrönn mín og þú mátt skila innilegri kveðju til frænda þins fyrir mig (Aðalsteini). Takk fyrir kvittið
Tína, 18.6.2008 kl. 06:52
Krúttkerling ekki spurning, með afbragðs hné (kanski jarðaberjabragð) líkist ömmu sinni og bráðskemmtileg. Gleðilegan gærdaginn ....
Byrjaði á myndinni í gær og kem til með að senda þér myndir svo þú sjáir gjörninginn. Ég held að hún verði mjög svipuð, næ henni að sjálfsögðu ekki eins í litum né afbrigðum en tilfinningarnar eru með afbrigðum eins!
www.zordis.com, 18.6.2008 kl. 07:27
Heiða
Tína! Ég skal gera það
Þórdís!
Hrönn Sigurðardóttir, 18.6.2008 kl. 08:40
Eins og veðlhlaupahryssa, ekki amalegt það. Knús á þig inn í daginn mín kæra Hrönn.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.6.2008 kl. 09:36
Ég verð líka stoltari með aldrinum
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 10:07
Fyndið að þú skulir hafa "skondrast". Þegar ég var send eitthvað af ömmu eða mömmu þá "skaufhalaðist" ég.
Helga Magnúsdóttir, 18.6.2008 kl. 12:33
KNÚS
Kristín Katla Árnadóttir, 18.6.2008 kl. 19:43
Sæl gamla..... sá áðan að þvottavélin "stendur"enn fyrir sínu.....
Fanney Björg Karlsdóttir, 18.6.2008 kl. 19:50
hott, hott!
) - ég hef ekki grenjandi, gisnan grun um hví þetta varð svona stórt ... fyrr má nú vera fyndnn en stórfyndinn ...
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 18.6.2008 kl. 20:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.