Fréttir á flugi!

Ég var að hugsa, þegar ég leit út um gluggann áðan og sá heilt Fréttablað hefja sig til flugs í áttina að mínum garði, hvað það færi óendanlega í taugarnar á mér allt þetta árans ekkisen rusl sem fýkur frá Bónus yfir til mín!!

Var í huganum búin að hanna himinháa girðingu úr ryðfríu stáli ;) með smáum möskvum sem hleypa engu bréfarusli í gegn - þegar ég áttaði mig á því að þá kemur ruslið bara til að hanga í sjónhæð minni um aldur og ævi og ergja mig þar í staðinn fyrir að fjúka í gegn og enda í langtíburtztan..........

..... þegar ég svo hugsaði girðinguna örlítið áfram sá ég að það er það ekki ósvipað með allt það slæma sem hendir mann í lífinu. Auðvitað á að láta það streyma í gegn og hverfa í fjarzkan í stað þess að það nagi mann um eilfíð.

Með það fór ég og tók niður mínar andlegu girðingar. Nú streymir allt fram - gott sem slæmt - eins og fréttirnar frá í gær - sem skipta engu máli í dag.

Elskaðu sjálfa/n þig  InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já og þó eru þetta alltaf sömu fréttirnar!

Hrönn Sigurðardóttir, 29.4.2008 kl. 11:43

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Flott pæling Hrönnsla.  Er í því regluega, þe að rífa niður mínar eigin girðingar.  Jájá.  Knús á þig

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.4.2008 kl. 11:57

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er bæði satt og rétt, og bara svo fjandi djúpt Hrönn mín.  En samt svo einfalt.  Þannig er sannleikurinn ómengaður.  Knús á þig inn í daginn

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2008 kl. 12:02

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ójá - ég er einföld að allri gerð, vel aðeins það bezta

Knús á þig Jenný Anna

Hrönn Sigurðardóttir, 29.4.2008 kl. 12:13

5 Smámynd: Linda litla

Elskaðu sjálfa þig, annars ertu ekki fær um að elska aðra.

Linda litla, 29.4.2008 kl. 12:53

6 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Oh... þú ert svo mikill gullmoli..... elska þessa samlíkingu hjá þér....

Fanney Björg Karlsdóttir, 29.4.2008 kl. 13:27

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég er sammála henni Fanney þú ert svo mikill gullmoli. Knús

Kristín Katla Árnadóttir, 29.4.2008 kl. 13:33

8 Smámynd: Dísa Dóra

Þannig að ef eitthvað fýkur frá manni í Bónur er ráðið að tékka hvort það sé í garðinum hjá þér?

Snilldar samlíking hjá þér skvís og svo sönn - hér er búið að rífa niður traustbyggða múra og er alltaf verið að sjá til þess að þeir verði ekki reistir upp aftur

Dísa Dóra, 29.4.2008 kl. 14:29

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Flottar hugleiðingar.  En ef það fýkur í mann?? Skaplaus er ekki gott að vera.

Sigrún Jónsdóttir, 29.4.2008 kl. 15:27

10 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ætlarðu ekki einu sinni að hafa hlið?

Halldór Egill Guðnason, 29.4.2008 kl. 15:28

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nei Halldór - hér er bara Schengen í gangi......

Sigrún! Þá fýkur það bara á eftir hinu lika....... ;)

Já Dísa Dóra - ég fer mjöööög sjaldan í búðina

Takk dúllurnar mínar... þið eruð nú ekki sem verstar sjálfar ;) 

Hrönn Sigurðardóttir, 29.4.2008 kl. 15:40

12 Smámynd: Solla Guðjóns

Út og innstreymi að jöfnu væri flott.Ótrúlegt sammt hve oft er haldið í ruslið eða því leift að vera.....en svo verður maður sterkur og stór og hendir því.

Yndi sem þú ert

Solla Guðjóns, 29.4.2008 kl. 16:27

13 Smámynd: Huld S. Ringsted

Góðar pælingar hjá þér! Hvað ætli maður sé búin að safna miklu rusli á andlegu girðinguna í gegnum ævina.....................................úff vil helst ekki hugsa um það en það góða við það er þó að maður reynir að hreinsa reglulega til.

Huld S. Ringsted, 29.4.2008 kl. 16:32

14 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

x

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 29.4.2008 kl. 18:28

15 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Yndi ertu!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 29.4.2008 kl. 22:07

16 identicon

Hum girðingarnar já.Ég velti því ávallt fyrir mér þegar ég sé myndir af Bob heitnum hvort það hafi verið lífríki í hárvöndlinum á höfði hans?Sá einu sinn þátt um mann með svona greiðslu og hann var með skordýragarð í hárinu.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 22:11

17 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég bý í bakhúsi og fullt af stórum trjám í kring. Það kemst nánast aldrei rusl á mína lóð og ef svo fer bíð ég bara róleg eftir því að það fjúki burt aftur. Góða nótt.

Helga Magnúsdóttir, 29.4.2008 kl. 22:23

18 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Góðar pælingar. Takk fyrir þetta.

Ekki veitir af að minna mann á.  

Marta B Helgadóttir, 30.4.2008 kl. 00:24

19 identicon

Hrönn mín.  Mig hefur lengi langað til að spyrja þig, og læt loksin verða að því.  Veist þú hvað varð um Sigfús Sigurjónsson (Partners) ???   Þú manst eftir vísnagátunum hans!!   K.kv.E.

Edda (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 02:21

20 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Edda! Nei ég veit ekki hvað varð um hann. Ég kíki stundum þangað en það hefur engin hreyfing verið síðan í okt. Kannski Gunnar viti um hann....? 

Marta! Flott mynd

Takk fyrir komuna stelpur mínar....

....og Halldór ;) 

Hrönn Sigurðardóttir, 30.4.2008 kl. 10:54

21 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Ég er nú svo einfaldur að ég þurfti að lesa 2x.     Vel að orði komist og undirtónninn góður. 

Marinó Már Marinósson, 30.4.2008 kl. 18:48

22 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Flott færsla há þer vina. Þetta net er hægt að  túlka á margan háttinn.

Gunni Palli kokkur 

Gunnar Páll Gunnarsson, 30.4.2008 kl. 19:18

23 Smámynd: Ólöf Anna

vó notaðiru gröfu til að komast svona djúpt?

Ólöf Anna , 1.5.2008 kl. 02:15

24 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Voru þetta flugufregnir..?  Shoo Fly Jibbííííííi can fly

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 1.5.2008 kl. 17:30

25 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þetta er svo satt sem þú segir það kæra hrönn !

Bless

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 1.5.2008 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.