24.4.2008
Já já....
Það fór eins og ég hélt!
Ég vaknaði og það var komið sumar Allt annað að vera á ferðinni, golan strauk vangann svo hlýleg og mild, fuglarnir sungu letilegt gleðilag - veiðiþjófur búinn að planta sér við ána..... á hálfglötuðum stað að vísu en það verður ekki á allt kosið þegar fólk er að stelast
Var að spá í eitt - jú, jú og annað.... þar sem ég gekk niður með ánni.
Atferli fólks, það er endalaust hægt að spá í hegðun, atferli og framkomu fólks. Stúdera hvernig það bregst við í mismunandi aðstæðum. Bara svona hversdagslegum aðstæðum eins og óvæntum uppákomum úti í búð eða á förnum vegi.......
Tók fyrir ýmis atriði og flissaði með sjálfri mér - ætla ekki að fara neitt nánar út í það að svo stöddu - en það var gaman og sannist þar enn og aftur að það er fátt sem ekki er hægt að komast í gegnum með því að gera gys að því
Sumt fólk er þannig af guði gert að það er ekki hægt annað en þykja vænt um það - jafnvel þó maður þekki það ekki neitt. Aðrir eru minna loveibúl - hvernig sem á því stendur en vonandi er þó alltaf einhver sem þykir vænt um þá Svo er fólk sem hleypir manni ekki inn fyrir skelina fyrr en eftir margar tilraunir og jafnvel margar mislukkaðar. Oft er þetta fólk þeir sem mest er varið í að þekkja.
Það er svolítið undarlegt að í mínu lífi dúkkar alltaf upp sama fólkið - með mislöngu millibili og við mismunandi aðstæður en það kemur alltaf aftur. Ég er til dæmis nýbúin að finna aftur uppáhaldsfrænda minn eða hann mig...... eftir því hvernig á það er litið.......
Ég er staðráðin í að taka sumrinu opnum örmum enda er ég svo uppfull af gæzku núna að ég er sjálf hálfskelkuð
Njótið
Athugasemdir
Þú ert bölvaður krúttmoli Hrönnsla? Hef ég sagt þér það áður? Okokok, hætt.
Kveðjur í sumarið.
Jenný Anna Baldursdóttir, 24.4.2008 kl. 10:09
Gleðilegt sumar Hrönnsla
Huld S. Ringsted, 24.4.2008 kl. 10:20
Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn Hrönnslan
Marta B Helgadóttir, 24.4.2008 kl. 10:46
Gleðileg sumar elsku Hrönn mín og takk fyrir veturinn.
Kristín Katla Árnadóttir, 24.4.2008 kl. 10:57
Gleðilegt sumar Hrönn. Ég hlakka til að kynnast þér betur.
Sigrún Jónsdóttir, 24.4.2008 kl. 11:20
Húmorinn er nauðsynlegur c hann notaður... og maður á að gera grín af sjálfum sér... ef maður er á annað borð skemmtilegur... Gleðilegt sumar
(ath. það var lítill kettlingur sem skrifaði c-ið á eftir "nauðsynlegur" ég lét það bara standa)
Brattur, 24.4.2008 kl. 13:07
Þú ert yndi og gleðilegt sumar!
www.zordis.com, 24.4.2008 kl. 15:12
Þú ert yndisleg.Gleðilegt sumar
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 15:22
Gleðilegt sumar krúsan mín
Dísa Dóra, 24.4.2008 kl. 17:16
Fanney Björg Karlsdóttir, 24.4.2008 kl. 18:05
Fanney Björg Karlsdóttir, 24.4.2008 kl. 18:06
ég veit Fanney - ég veit............
Hrönn Sigurðardóttir, 24.4.2008 kl. 18:19
Sumarið, gæskan. Takk fyrir veturinn.
Hugarfluga, 24.4.2008 kl. 18:19
Gleðilegt sumar og takk fyrir skemmtunina á blogginu í vetur.
Steingerður Steinarsdóttir, 24.4.2008 kl. 18:20
to know him is to love him syngja þau í vídeóinu þínu og það á bara alveg líka við þig TO KNOW YOU IS TO LOVE YOU
Gleðilegt
Rebbý, 24.4.2008 kl. 21:00
Gleðilegt sumarið átti að koma þarna og takk fyrir allt lesefnið í vetur
Rebbý, 24.4.2008 kl. 21:00
Gleðilegt sumar og takk fyrir bloggvetur
Unnur R. H., 24.4.2008 kl. 21:05
Gleðilegt sumar, þú kona með hjartað barmafullt af gæsku!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 24.4.2008 kl. 21:26
Gleðilegt sumar, stórskemmtilega, drepfyndna og frábæra kona!
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 25.4.2008 kl. 00:01
Gleðilegt sumar mín góða og skemmtilega frænka
Hagbarður, 25.4.2008 kl. 10:18
Gleðilegt sumar.
Helga Magnúsdóttir, 25.4.2008 kl. 14:18
Þú ert ljúfur og skemmtilegur penni Hrönnsla mín. Gott að vita af þér í austurbænum, eigðu ljúfa helgi mín kæra út í garð að moka
Ásdís Sigurðardóttir, 25.4.2008 kl. 17:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.