22.4.2008
Veðurblogg ;)
Er að undirbúa bekkjarmót! Það eru þrjátíu ár síðan ég var í einhverjum bekk......
Ein úr nefndinni gróf upp gamlar bekkjarmyndir, skannaði þær og sendi mér. Hér er myndin af höfundi á sínum ungdómsárum. Það sem mér finnst bezt er að ég á ennþá sjalið...... Úff þetta voru flókin ár - ég mundi ekki nenna að vera unglingur aftur!
Við Stúfur Stubbalings skruppum út á Sýsluskrifstofu, þurftum að sýsla eitt og annað. Þar gerði hann sér lítið fyrir og stal vinnuvettlingum - beint fyrir framan sýslumann í júníformi og allt!! Hann er nefnilega með vettlingablæti. Stubbalingur alltsvo - ég veit ekki með sýsla Ég var sossum ekkert að gera veður út af því þó hann stæli vettlingunum...... örugglega verið einhver illa launaður útlendingur sem átti þá Ég var bara glöð að hann ákvað ekki að stela sýsla.....
Dröslaðist síðan með þá út á pósthús og í búðina sem ég þurfti nauðsynlega að skreppa í til að kaupa mér eitthvað fatakyns - eitthvað rautt..... Hafði erindi sem erfiði og náði mér í fagurrautt plagg fyrir lítinn pening. Maður veit aldrei hvenær tækifæri gefst til að dressa sig upp!
Já þetta átti að vera veðurblogg. Ferlega er kalt úti, maður...........
Viljiði gizka hver ég er á myndinni?
Flokkur: Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:25 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Eldri færslur
2021
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Spurt er
Tenglar
Uppskriftir
- Bollur eða brauðlengjur
- Kærleiksbollur
- Gróft brauð
- Bananabrauð
- Kryddbrauðið hennar Jónínu
- Kryddbrauð
- Lífsins brauð
- Fyllt brauð
- Gömlu góðu kanelsnúðarnir hennar mömmu
- Hafrakex
- Skinkumyrjuhorn og pizzasnúðar
- Ostaskonsur
- Muffins
- Eplakaka Mörtu Smörtu ;)
- Rabbarbarapæ
- Epla og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka mótmælanda efnahagsástandsins ;)
- Vatnsdeigsbollurnar hennar ömmu
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Biluð hollusta Hjónabandssæla
- All bran kökur
- Brynhildur Delisíus
- Gillaður humar
- Salat númer eitt
- Gulrótarsalat með dassi af fortíðarþráhyggju
- Gúllassúpa
- skólastjórasúpa
- Grænmetissúpa Zordísar
- Fylltar kjúklingabringur Uppskrift að góðu kvöldi
- Fljúgandi Jakob með stílbragði
- Kjúklingaréttur Thai Pride
- Ungnauta - innra læri
- Fiskréttur í ofni
- Grænmeti í ofni
- Ratatoullie a la maison
Vefsíður
Færsluflokkar
- Afmæli og stórhátíðir
- allt annað
- amatörar
- Bloggar
- Bækur
- Draugasögur
- Dútl heima við
- Dægurmál
- fagmennska
- Ferðalög
- Fordómar og spéhræðsla
- Galdrar og töfrar
- Glæpamál
- Grill
- Grobb
- Gæludýr
- gæludýr og dýrafát
- hausti fagnað
- hugsanleg húsbönd
- Iðnaðarvinna og verkir
- Íþróttir
- íþróttir og útivist
- Kvikmyndir
- Launráð og fyrirsát
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- málningarvinna
- Menning og listir
- menn og málleysingjar
- mótorhjól og akstursíþróttir
- Óbyggðir Vestfjarða
- Sjónvarp
- Skordýr
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- svefn og síþreyta
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Veikindi
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- öfugir fordómar
- Ölæði og ólæti
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Marta B Helgadóttir
- www.zordis.com
- Anna Einarsdóttir
- Ragnheiður
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- SigrúnSveitó
- Guðný Anna Arnþórsdóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Solla Guðjóns
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Brattur
- Garún
- Sigrún Jónsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Halldór Egill Guðnason
- Þröstur Unnar
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Dúa
- Hagbarður
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Bullukolla
- Einar Indriðason
- Steingerður Steinarsdóttir
- Rebbý
- Vilma Kristín
- Dísa Dóra
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Ía Jóhannsdóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Hugarfluga
- Bergljót Hreinsdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Bjarni Harðarson
- Marinó Már Marinósson
- Sigurður Ingi Jóhannsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Steingrímur Helgason
- Þórbergur Torfason
- Ólöf Anna
- Brúðurin
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Víðir Ragnarsson
- Laufey Ólafsdóttir
- Róbert Tómasson
- Ólafur fannberg
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Gulli litli
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Linda litla
- Ágúst H Bjarnason
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Svala Erlendsdóttir
- Tína
- Markús frá Djúpalæk
- Gudrún Hauksdótttir
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
Athugasemdir
Vá ég á einhvers staðar svona myndir af mér. Sjötíuoghvað er þetta? Ég heldðú sért nú bara Hrönn á myndinni, geturðu verið einhver önnur? En ég myndi halda neðsta röð lengst til vinstri þegar þú horfir á myndina; rauð peysa og sokkar í stíl.
Markús frá Djúpalæk, 22.4.2008 kl. 15:30
Alltaf svo stílhrein Markús Veturinn 77/78 held ég einna helst.....
Hrönn Sigurðardóttir, 22.4.2008 kl. 15:33
Jabb, segi sama og Markús. Defenately sú í rauða.
Svo sæt.
Jenný Anna Baldursdóttir, 22.4.2008 kl. 15:39
Takk krúttið mitt.
Hrönn Sigurðardóttir, 22.4.2008 kl. 15:42
Ég held að þú sért í rauðu peysunni í fremstu röð.
Linda litla, 22.4.2008 kl. 16:15
Allt er dautt sem ekki er rautt...... þannig að...... Ég er samt meira hrifin að Stúfi hanskaþjófi - mér finnst hann flottur! Og líka hvernig þessi veður-færsla fór gjörsamlega út í veður og vind.......
Ingibjörg Gunnarsdóttir, 22.4.2008 kl. 16:23
Loksins einhver sem tók eftir því ;) hitt var meira svona aukaatriði...
Hrönn Sigurðardóttir, 22.4.2008 kl. 16:25
Já það er bara kalt ,þú ert svo mikið krútt á myndinni.
Kristín Katla Árnadóttir, 22.4.2008 kl. 16:32
Rauðir sokkar og rauð peysa! Alveg eins svipurinn þá og nú .......
Ég skoðaði myndina áður en ég sá svörin þú vars sem sagt pínu rauðsokka.
Gott að þú sért að fara plagga þig upp því það verða næg tilefni í sumar.
www.zordis.com, 22.4.2008 kl. 16:33
Fann þig sko strax, á sjalinu sem þú átt enn ..djö er stúfur hugaður, ég hefði ekki þorað þessu fyrir framan MR Þvaglegg.
Ragnheiður , 22.4.2008 kl. 17:03
Nei Ragga! Hann ber ekki virðingu fyrir neinum! Er ekki sagt að gæludýr líkist eigendum sínum? Eða var það öfugt?
Hrönn Sigurðardóttir, 22.4.2008 kl. 17:32
fattaði nú strax hver þú ert á myndinni
Stúfur heppinn að enda ekki bara í steininum eftir svona bíræfinn stuld
Dísa Dóra, 22.4.2008 kl. 18:02
Sýsli er ef til vill meiri dýravinur en unglingavinur, þess vegna hefur stubbalingurinn komist upp með prakkarastrikið.
En það er ekki glóra að ég geti rýnt af viti í myndina, en ætla að leita að stækkunargleri til að sjá þig, Ég er viss um að þú hefur ekki mikið breyst.
Það er hlýtt hér í sólinni, sérstaklega inn í garðskálanum mínum
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.4.2008 kl. 18:29
Hún stækkar ef þú smellir á hana Cesil.
Hrönn Sigurðardóttir, 22.4.2008 kl. 18:38
þú ert þessi sæta í rauðu peysunni í fremstu röð.... ávallt í fremstu röð ekki að spyrja að....
Fanney Björg Karlsdóttir, 22.4.2008 kl. 18:46
Í rauðu auðvitað.Gott að snatinn stal ekki þvagleggi sýsla.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 18:52
Þú gafst vísbendingu annars hefði ég ekki þorað að giska einu sinni.En ég man og kannaðist veli viðklæðin á mannskapnum.
Þú heppna þú að Stúfur stal ekki sýsla og þú þurft að dröslast með hann í búðir og hver veit hvað.....
Solla Guðjóns, 22.4.2008 kl. 19:35
Segðu Solla! Og hann í úniforminu og allt.........
Hrönn Sigurðardóttir, 22.4.2008 kl. 19:43
Jedúdda og knnski þvaglegginn líka........
Solla Guðjóns, 22.4.2008 kl. 19:46
Díj - hvað veit maður? Hann er með djúpa vasa
Hrönn Sigurðardóttir, 22.4.2008 kl. 19:52
Hefur rauður litur alltaf verið í uppáhaldi hjá þér? Hefði giskað á allt aðra ... en það er ekki að marka af því að ég hef aldrei hitt þig.
Hugarfluga, 22.4.2008 kl. 20:12
Hverja hefðir þú gizkað á Fluga? Vonandi engan af strákunum....
Takk Svana ;)
Hrönn Sigurðardóttir, 22.4.2008 kl. 21:31
Þú ert fyrir miðju neðst...ef ekki ertu önnur í efstu röð
Heiða Þórðar, 22.4.2008 kl. 23:22
Ertu þessi í rauða??????
Heiða Þórðar, 22.4.2008 kl. 23:23
Heiða!! Bullið í þér
Auðvitað er ég þessi í rauða
Hrönn Sigurðardóttir, 22.4.2008 kl. 23:34
Ertu önnur í næstneðstu röð hægri.
Guðjón H Finnbogason, 23.4.2008 kl. 00:00
Það er náttl komið fram hver þú ert svo það er ekkert gaman að geta, en mikið er ég ánægð með stubbaling, fremja svona yfirvegað rán um hábjartan daginn og meira að segja sýsli sjálfur þorði ekki að gera neitt í málinu. Tökum hann með í næstu mótmæli.
Ásdís Sigurðardóttir, 23.4.2008 kl. 11:50
mikið er gaman að sjá svona "gamla" Hóst bekkjamynd þú ert krútt og stubbalingur hugaður
Brynja skordal, 23.4.2008 kl. 16:04
Better dead then red sagði Kaninn í den. Rosalega gaman að skoða svona gamlar myndir.
Helga Magnúsdóttir, 23.4.2008 kl. 17:36
Blessuð Hrönn
Flott mynd, er einhver möguleiki á því að þú deilir myndunum með fleirum?
Viltu senda mér einhverjar myndir á e-mailið mitt?
Hlakka til þann 10.maí, þó svo geti engan vegin séð að það séu 30ár frá því við útskrifuðums.
Kveðja Fanney Grétarsdótttir
Fanney Grétarsdóttir (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 04:04
Ekkert mál Fanney! Ég get sent þér þessar myndir ;) Hvað er emailið þitt?
Hlakka líka til 10. maí. Þó ég segi nú eins og Jómbi..... Það getur vel verið að það séu þrjátíu ár síðan þið útskrifuðust....... :)
Hrönn Sigurðardóttir, 2.5.2008 kl. 13:44
....auðvitað veit ég emailið þitt.......
Sendi þær sneggvast.
Hrönn Sigurðardóttir, 2.5.2008 kl. 13:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.