Góður dagur

Ég vaknaði í gærmorgun með svo herfilegar harðsperrur eftir skokkið að ég stóð á emjunni....Tounge Ég var með harðsperrur í höndunum W00t Veit ekki alveg hversvegna....... Hefði betur borðað banana áður en ég fór að sofa! Það er eitthvað í bönönum sem veldur því að ég fæ minni harðsperrur! Þess vegna reyni ég að borða einn á dag - hann kemur allavega skapinu í lag!

Í gær fékk ég góða heimsókn. Ég sat hér og var að vinna - datt ykkur eitthvað annað í hug?Wink þegar það var bankað. Ég dokaði smá, því hér er ólæst á daginn og fólk veður yfirleitt bara inn eftir málamyndabank, en ekkert gerðist. Ég stóð því upp og fór til dyra. Úti stóð Linda Dröfn með fallega barnið sitt! Komnar í heimsókn, til uppáhaldsfrænku sinnar, alla leið frá Danmörku. InLove

Picture 214Ég knúsaði hana í bak og fyrir og gaf þeim svo nýbakaðar kærleiksbollur Wink Hvað annað?

En núna sit ég og bíð eftir að klukkan verði leikfimi! Ég nennti nefnilega ekki í gærmorgun með allar þessar harðsperrur, þær þyngja mann svo niður LoL þess vegna ætla ég að bæta mér það upp í dag.

Ég velti því fyrir mér í ca. 30 sekúndur í dag eða jafnvel ekki nema 25 að taka niður jólaljósin - en nennti því svo ekki. Það rigndi svo svakalega, ískaldri, íslenzkri rigningu eins og hún gerist bezt! 

Bezt ég hendi inn einu lagi fyrir ykkur líka. Þið getið hlustað á það á meðan ég busla í leikfimi InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Buslaðu - ég hlusta

Markús frá Djúpalæk, 20.2.2008 kl. 18:25

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Yndislegt að fá svona heimsókn, flottar elskur  Kærleiksbollur hvað annað fyrir þær.  Ég var með harðsperrur eftir dansinn á laugardagskvöldið allan sunnudaginn og hálfan mánudaginn

Ella og sommertime er æði, hún er ein af mínum uppáhalds.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.2.2008 kl. 18:26

3 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

...en hvernig eru kærleiksbollur?

Markús frá Djúpalæk, 20.2.2008 kl. 18:35

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mikið eru þær sætar frænkur þínar gaman að fá svona heimsókn En Hrönn hvernig eru þessar kærleiksbollur ?? Takk fyrir þetta fallega lag

Kristín Katla Árnadóttir, 20.2.2008 kl. 19:11

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

frábært að fá heimsókn svona óvænt, ef maður er fyrir það.

Bless í bili

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 20.2.2008 kl. 19:16

6 Smámynd: www.zordis.com

Ella er ótrúlega góð

Ég vona að þú sprikklir fyrir mig!!!  Finst ég meir að segja vera grennri   TAKK!

www.zordis.com, 20.2.2008 kl. 20:21

7 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég er búin að leita og leita á klukkunni minni að leikfimi en finn það ekki! ert þú á öðru tímatali en ég?

Sætar frænkurnar þínar

Huld S. Ringsted, 20.2.2008 kl. 20:58

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Kærleiksbollur......? Þið verðið bara að koma og smakka.....

Já, já mér finnst bara gaman að óvæntum heimsóknum! Ég er líklega svo óskipulögð - það óvænta truflar mig ekkert!

Ella er ótrúlega góð og að sjálfsögðu fór ég aukaferðirnar fyrir þig Þórdís

Ég veit! Ég á undarlega klukku. Á henni er fjölskyldutími..... hundatími..... leikfimitími.... minn tími.....

Hrönn Sigurðardóttir, 20.2.2008 kl. 21:03

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Eins þykir mér alveg hrikalega gaman að segja litlum börnum lygasögur og þarna gafst mér aldeilis óvænt tækifæri, sem ég lét að sjálfsögðu ekki ónotað....

Ég sagði henni t.d. að hundurinn væri köttur og að hann segði "mjáááá"  Stúlkubarnið var svolítið hissa fyrst - en flissaði svo. Lofar góðu, ekki satt?

Hrönn Sigurðardóttir, 20.2.2008 kl. 21:30

10 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ella er BAAARA æðisleg! 

Leikfimin hefur alltaf verið á klukkunni minni þangað til í vetur...., þarf að fara að leita  betur.  

Marta B Helgadóttir, 20.2.2008 kl. 21:33

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

jamm hún er það.....

Hrönn Sigurðardóttir, 20.2.2008 kl. 21:45

12 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Stóð á emjunni, frekar fyndið.  Hvenær má ég koma í kærleiksbollur?? er að deyja úr hungri nýbyrjuð í grenningu.  Alltaf gaman að fá óvænta heimsókn.  Hafðu það gott Hrönnslan mín en ég verð að segja að mitt dagatal er jafn gallað og hjá Huld, enginn leikfimi tími.

Ásdís Sigurðardóttir, 20.2.2008 kl. 22:46

13 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Stórkostleg tónlist. Hún var snillingur þessi kona.

Steingerður Steinarsdóttir, 21.2.2008 kl. 09:15

14 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Endilega Dúa! Alltaf að taka alla sjénsa

Góðan daginn til þín líka Hallgerður

Hafðu það gott sömuleiðis Ásdís! Það er nú ekki langt fyrir þig að koma í kærleiks

Takk Blámínblá 

Steingerður! Ella er snillingur - algjör snillingur 

Hrönn Sigurðardóttir, 21.2.2008 kl. 10:10

15 identicon

 

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 13:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband