Draugar, skokk og ungir drengir

Búin að fara út að hlaupa alla vikuna - nema í dag. Í dag kom ég heim eftir vinnu lagðist upp í rúm og sofnaði.......

Hef hlaupið eins og skrattinn sé á hælunum á mér - það skal tekið fram að ég er ekki mjög hrædd við hann..... Tounge í gegnum skógræktina upp að helli. Rúma fjóra kílómetra. Ég gæti verið komin á Hellu núna.....allavega að Þjórsárbrú LoL

Alla dagana hefur Magga komið með nema í gær, þegar hún sveikst undan merkjum - les. þurfti að vinna!

Sagan segir að í hellinum sé reimt, þar hafi ungur drengur í ástarsorg hengt sig í bláum trefli og sjáist síðan vafra um skóginn í nágrenni hellisins.

Í gær hitti ég þar fjóra unga drengi á hjólum. Spurði þá hvort þeir hefðu séð strákinn með bláa trefilinn. Þeir veltu því fyrir sér smástund hvort ég væri skrýtin, ákváðu svo að taka enga sénsa og kváðu nei við. Spurðu mig síðan hvort hann hefði virkilega hengt sig í hellinum - eins og þeir héldu bókstaflega að ég myndi eftir því......

Ég sagði: já, já, hann gerði það og að ég hefði líka komið þarna í gær að leita að honum og hann hefði heldur ekki verið þar þá..... Þeir brostu voða sætt til mín og einn spurði: En hvernig gat hann hengt sig inni í hellinum? Í hvað gat hann fest trefilinn?

Efahyggjumenn.............

Hef að sjálfsögðu tekið stubbaling með mér alla dagana. Hann er nú ekki par hrifinn af bílnum hennar Möggu! Þykist ekki sjá hann né heyra í mér þegar ég segi honum að koma. Svolítill Lúkas í honum LoL

Knús Heart

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Veistu það þú ert alveg frábær þú getu alltaf fengið mig til að hlæja.

Kristín Katla Árnadóttir, 20.7.2007 kl. 21:48

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Takk Katla mín! Þú ert nú ekki sem verst heldur.....

Hrönn Sigurðardóttir, 20.7.2007 kl. 21:52

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Í kasti, ég seieggimeir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.7.2007 kl. 22:56

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

kona á sín móment Jenný mín

Hrönn Sigurðardóttir, 20.7.2007 kl. 23:05

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ætli þetta verði notað í framtíðinni um menn sem láta sig hverfa í nokkra daga t.d. út af heimilunum og birtast aftur. Það er Lúkas í honum

Svakalega ertu dugleg að hlaupa kona.

Jóna Á. Gísladóttir, 20.7.2007 kl. 23:20

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

 hugsanlega.....

....og takk

Hrönn Sigurðardóttir, 20.7.2007 kl. 23:42

7 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þetta er frábært, Hrönn.  Það kemur fyrir að það hleypur dáldill Lúkas í mig líka....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 21.7.2007 kl. 22:42

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

 Oft kemur Lúkas upp í mér.......

tíhíhíhíhí

Hrönn Sigurðardóttir, 21.7.2007 kl. 22:51

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég vissi bara ekki að það var Lúkas fyrr en allt í einu......

Hrönn Sigurðardóttir, 21.7.2007 kl. 22:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband