Drengurinn....

....í kjallaranum, eða þe boj in þe beisment eins og ég kýs að kalla hann, er mikill veiðimaður. Hann stendur á nóttum úti í ám og veiðir - og er afar fiskinn... Ég nýt góðs af því og í dag gaf hann mér bleikan fisk Smile Ég slægði hann og hreinsaði, setti inn í hann allt græna kryddið sem ég á, hvítlauk og sítrónu, setti hann í ofninn og bakaði hann. Svissaði svo grænmeti sem ég átti í ísskápnum og bakaði brauð með. Þetta var ótuktarlega gott. Nú sit ég södd og sæl, ætla að horfa á sjónvarpið í kvöld, prjóna og rifja upp hvað það var gaman í gær.

Fantastikk LoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Nammi  þetta hlýtur að vera gott . .. Hafðu það gott í kvöld.

Kristín Katla Árnadóttir, 9.6.2007 kl. 22:21

2 Smámynd: Hugarfluga

Ó mín góðvild! Hljómar syndsamlega girnilegt! *slef*

Hugarfluga, 9.6.2007 kl. 22:28

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Úff ég fæ vatn í munninn er samt búin að borða hátíðamat sem ég bjó til sjálf.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.6.2007 kl. 23:59

4 Smámynd: SigrúnSveitó

SigrúnSveitó, 10.6.2007 kl. 09:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband