Mána(ðar)mót

Haldiði ekki að kryddjurtirnar séu farnar að gægjast upp? Tómatarnir tóku sprett og rifu af sér plastið, oreganoinu fannst það þá ekki geta verið minna og kíkti líka upp en myntan er enn feimin og lætur ekki á sér bæra. Bezt ég syngi fyrir hana - eða ekki........ Tounge

Þarf að vinna í dag - það eru víst mánaðarmót og þá er gott að eiga laugardag upp á að hlaupa.

Fer svo í fermingarveislu á morgun, trúi því varla enn að litla barnið sé að fermast. Getur þetta verið? Skrýtið hvað allir aðrir en ég eldast............... Wink

Er að kafna úr kvefi, heilinn úti á túni - hugsa ekki heila hugsun, en ég er alveg viss um að ég ætlaði að segja eitthvað rosalega menningarlegt fyrir ykkur að velta vöngum yfir um helgina, svona svo þið væruð nú ekki verkefnalaus.

Vona að þið eigið góða helgi og að Hafnfirðingar kjósi nú ekki yfir sig stækkun álvers

PS verð að muna eftir að kaupa vikuna

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Til hamingju með kryddið. Ég ætla að apa eftir þér.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 31.3.2007 kl. 14:01

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Gerðu það, ég mæli með því að eiga kryddjurtir í eldhúsglugganum

Hrönn Sigurðardóttir, 31.3.2007 kl. 14:12

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hrönnsla gætir þú ekki gefið mér stuttan netkúrs í ræktun kryddjurta í eldhúsglugga. Það eina sem hefur lifað hjá mér er vatnakarsi en þá er allt upptalið.  Þarf að geta ræktað rósmarín (vegna mikillar notkunar á viðkomandi greinum) og tíðar ferðir í Hagkaup í Smáralind orðnar þreytandi. Sama gildir um Estragon en það er líka í uppáhaldi þessa dagana - mánuðina - árin - aldirnar.

Smútsj

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.3.2007 kl. 14:25

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ekkert mál Jenný litla - allt fyrir þig

Þú byrjar á því að rölta þér inn í næstu blómabúð og kaupa fræ að eigin vali. Síðan seturðu mold í litla leirpotta, stingur fræunum hæfilega langt niður, vökvar vel en þó ekki OF vel. Setur síðan matarfilmu yfir pottin svona eins og hún notaði í leikritinu forðum daga í Hafnarfjarðarleikhúsinu um konuna sem var hin fullkomna eiginkona, móðir og útivinnandi kona, man að vísu hvorki nafnið á leikriinu né leikkonunni - en bæði voru góð  Síðan dansa ég létt spor - oft í náttkjólnum á morgnan fyrir pottana þegar ég gæti að því að alltaf sé raki á moldinni og helli meira vatni í undirskálarnar, tek svo plastið af þegar jurtirnar fara að skjóta upp kollinum og horfi hreykin, ástúðlega á þær þangað til þær eru orðnar nógu stórar til að klippa þær niður í matseldinni.

Gefa hraustlegt og gott útlit  en það hefur kannski meira með morgundansinn að gera.......

Hrönn Sigurðardóttir, 31.3.2007 kl. 14:33

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Frábært, Jenný mín ég get bent þér á að í Bónus og Samkaupi eru oft bæði kryddjurtir og salöd seld í litlum svörtum pottum með rótum.  Það er jafnvel auðveldara að taka þær og stinga ofan í stærri pott, og þær eru tilbúnar til notkunar.  En það er bara takmarkað úrval. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.4.2007 kl. 10:26

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég ætla að taka þetta upp með dansinn hehehee.  En ég verð ekki á náttfötunum, því það er ennþá of kalt í gróðurhúsinu mínu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.4.2007 kl. 10:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband