Ég mátti...

...taka á honum stóra mínum fyrr í kvöld. Ég skrapp nefnilega til Grundarfjarðar og þurfti að bruna í gegnum göngin undir Hvalfjörð tvisvar - spáið í það - tvisvar sama kvöldið... konan sem þolir ekki þessi göng! Og hvað er málið með þessa hlíð með rúllandi steinum þegar maður er rétt sloppinn lifandi úr göngunum? Var ekki bara hægt að hafa þessi göng aðeins lengri? Ég er bara svo aldeilis rasandi....

Ég skrapp sumsé á Grundarfjörð í kvöld - þið getið sett skrapp í gæsalappir ef þið viljið - það veit sá sem allt veit að ég nenni því ekki Tounge Svo er það nú eitt! Hafiði spáð i það þegar gæsalappir eru gefnar út í loftið? Af hverju beygir fólki löngutöng og vísifingur tvisvar? Það er ekki eins og það séu fjórar gæsalappir! Hvaða bull er þetta? En aftur að sögunni.... mikið rosalega er þetta falleg leið! Þrátt fyrir að flest bæjarnöfn séu stolin af Suðurlandinu nema einna helst Fáskrúðsbakki Tounge

Talandi um bull! Hver ákvað að hámarkshraði í Hvalfjarðargöngum yrði 70 km/klst? Ég sló ekki af fyrr en Mömmusinnardúlludúskur bentir mér á að það væru myndavélar við hverja öldu..... Væri ekki frekar málið að standa drusluna eins og hún dregur í gegn? Ég er að segja ykkur þið eruð undir SJÓNUM? Ég meina 70 km. pr. klst? Hvað haldið þið að sjórinn væri lengi að ná ykkur?

Bara svona cirka..... en þó gæsalappalaust?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta hefur nú ekki verið neinn smáskreppitúr Hrönn mín alla leið til Grundarfjarðar og til baka, svona fyrir utan göngin og rúllandi steina.  Svo hefðir þú auðvitað getað farið bara Hvalfjörðin eins og hann leggur sig og sleppt göngunum

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.6.2012 kl. 11:21

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nei.. þetta er enginn smá skreppitúr ;) En skemmtileg leið og falleg - nema göngin ;)

Ég íhuga Hvalfjörðinn í hvert skipti sem ég fer þarna um en hitt er tímasparandi og maður er alltaf að spara :P

Hrönn Sigurðardóttir, 19.6.2012 kl. 14:57

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það sparar bæði tíma og peninga.... eða þannig

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.6.2012 kl. 15:40

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jú víst gera þau það árans göngin....

Til hamingju með kallinn þinn um daginn :) Allt skemmtilega fólkið á afmæli í júní!

Hrönn Sigurðardóttir, 19.6.2012 kl. 19:06

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk ljúfan, ég á ekki afmæli í júní  'eg á afmæli 11 september kannastu nokkuð við þá dagsetningu

En gott ráð, hugsaðu um eitthvað skemmtilegt þegar þú ekur gönginn, til dæmis söguna hans Arnaldar og spáðu í hvar líkið fannst í göngunum

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.6.2012 kl. 19:15

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahah það er einmitt það sem ég geri!!

Hrönn Sigurðardóttir, 19.6.2012 kl. 20:43

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.6.2012 kl. 20:49

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Fáskrúðarbakki heitir bærinn.  Þarna ertu komin í mína gömlu sveit.  Þar finnur þú líka Straumfjarðartungu, Rauðkollsstaði, Stóru Þúfu og Litlu Þúfu.   

Anna Einarsdóttir, 22.6.2012 kl. 17:22

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Fáskrúðarbakki..... rétt ;) Svo var þarna líka Dalsmynni ef ég man rétt og Ytri Garðar, Mið Garðar og svo allt í einu Þúfa ;)

Frábær sveit sveitin þín.

Hrönn Sigurðardóttir, 22.6.2012 kl. 22:54

10 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Elsku Hrönn.:

Ef göngin springa meðan þú ert í þeim, þá átt þú ekki, frekar en við hin sem á eftir þér komum neinn sjéns. Allt vegna þess að þú ert á UNDIR löglegum hraða! Það er algert lágmark að allir aki á hámarkshraða. Tvisvar á dag....vaktavinna á Grundartanga. Píslarvættið þitt er gersamlega ......

Capiecce!?

Borgarfjörðurinn er hins vegar algert æði, ef tími er til að skoða hann og þar má sjá meðal annars bakka, tungur, staði, þúfur í ýmsum númerum og af flestum stærðum og síðast en ekki sýst....Önnu.

Gott ef ekki hefur sést Brattur þar annað veifið á köflóttum hesti, ættuðum úr Húnavatnssýslum, einhversstaðar í námunda við Svartá eða Húnaver, steinsofandi eftir ljúffenga samloku og velheppnaða flugustangarveiði með afla.... en aðalllega gaman.

Halldór Egill Guðnason, 27.6.2012 kl. 05:26

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já já.... ég skil, ég skil....

Ég var að koma þaðan akkúrat núna og ég gaf bara í - skítt með allar hraðamyndavélar!

Borgarfjörðurinn er frábær og Snæfellsnesið líka. Ég íhuga búferlaflutninga - og ekki spillir nú fyrir ef Brattur er þar á köflóttu hrossi og Anna í humátt ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 28.6.2012 kl. 04:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.