Færsluflokkur: Bloggar
6.3.2007
Strandblak
Fór í sundleikfimi í morgun, hjá Betu, sem er helt fantastik, eins og ég mundi segja ef ég byggi í Svíaríki. En eníveis, laugin var 36 gráður - segi og skrifa þrjátíuogsexgráður - sem er næsti bær við heitan pott, þannig að af tillitssemi við gömlu konurnar í hópnum (ég hefði sko alveg þolað þetta) fórum við í blak.
Ég var valin fyrst í liðið sem vakti hjá mér sömu tilfinningu og í fyrsta - (takið eftir FYRSTA) - skiptið sem mitt lið vann bikarinn í blaki og ég svaf ekki alla nóttina fyrir sigurbríma
Næst ætla ég að leggja undir mig strandblakið - sjáiði mig ekki fyrir ykkur í búningnum?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.3.2007
Skjárinn minn!
Ég held ég sé að verða ástfangin.
Hann er hortugur, hranalegur, gengur við staf, rakar sig sjaldan og kemur öllum í kringum sig í uppnám. Ég er hins vegar sannfærð um að ef ég kafa nógu djúpt næ ég hinum sanna manni. Blámi augna hans er slíkur að það er sem mætist himinn og haf og engin skil á milli. Hann kemur í heimsókn til mín einu sinni í viku og ég bíð alltaf spennt eftir honum, nýgreidd og blíð......
Hann heitir dr. House og hann á eftir að koma til mín 15 sinnum í viðbót. Eftir það verð ég líklega að lifa á minningunum....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.3.2007
Pulsan og bjallan
Á árum mínum sem skvísa í Reykjavík, fór ég einu sinni sem oftar í bæjarins beztu og keypti mér pulsu eins og Clinton nema mín var með öllu og hann er ekki skvísa
Strunsaði svo, eins og skvísum einum er lagið. að rauðu bjöllunni minni, setti kókglasið á toppinn, settist inn og brunaði af stað og þóttist ekki taka eftir því þegar kókglasið þeyttist ofan af toppnum út í umferðina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2007
Syndaselir
Sá ég í fjarzka synda sel
synt´ann úr fjarlægð fjári vel
en er hann kom nær,
hann varð mér svo kær,
við giftumst í landi baska
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2007
Þegar ég var skvísa
Hef komist að því að ég er líklega bloggnörd, það svíður svolítið mitt litla hjarta, því ég taldi mig vera snilling jafnt á blogginu sem öðrum sviðum.
Kann ekkert á þessa bloggsíðu - en stefni að því að verða fær. Segi bara eins og konan forðum: " Minn tími mun koma!"
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.3.2007
Eru Íslendingar geðlausir?
Er að velta því fyrir mér að hafa fyrirsagnir algerlega úr takt við innihaldið.
En blogg eða ekki blogg! Veit ekki hvort þetta hentar mér. Mest vegna þess að þá þarf ég að hugsa áður en ég tala. Og það er nú ekki alveg minn stíll.....
Stofnaði upphaflega blogg til að geta skutlað athugasemdum beint inn á síður annarra bloggara. Því skoðunum hef ég nóg af.......
Ætla ekki að blogga um pólitík vegna þess að ég hef ekkert vit á henni nema helst útlitslega séð. Held ekki að pólitík snúist um útlit - og þó.........
Ætla ekki að blogga um fréttir vegna þess að þær eru alltaf slæmar.
Hver veit nema ég skrifi sögur úr æsku minni, þegar lífið var endalaust sumar og ég snéri mér kollhnísa í kringum snúrustaurinn og horfði á rabbabarann á hvolfi. Bjó til rabbabaramat úr rabbabara sem við stálum úr garðinum og sykri sem var hnuplað úr búrinu hjá mömmu.
Kannski skálda ég bara eitthvað............
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.2.2007
Fyrsta bloggfærsla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)