8.11.2010
Gaurinn niðri...
... er ágætis náungi.
Hann flutti inn, ásamt fjölskyldunni, síðla sumars og síðan hefur hann staðið í stanslausum breytingum. Hann er búin að brjóta niður alla milliveggi og er að frá morgni til kvölds með heavy duty verkfæri. Við erum að tala um allskyns borvélar, steinsagir, brothamra og fleira og fleira sem ég hreinlega kann ekki að nefna, gott ef það leynast ekki steinsmugur þarna inni á milli....... Brotahaugurinn í garðinum stækkar jafnt og þétt í réttu samræmi við hvað veggjunum fækkar
Einu mínar áhyggjur eru þær að hann sé búinn að breyta svo rækilega þarna niðri að hann endi í loftvarnarbyrgi og ég á jarðhæðinni - en það er bara hans vandamál....
Ég meina hvursu miklu er hægt að breyta í ríflega sextíufermetra íbúð? En ég er staðráðin í að halda áfram að brosa til hans og heilsa honum fallega vegna þess að klukkan fimm á hverjum degi dettur allt í dúnalogn þarna niðri og heyrist ekki meir fyrr en dagur rís á ný. Svo spillir ekki fyrir honum að hann á krúttlegan fimm ára son sem kemur stundum að heimsækja mig
Annars er ég ennþá með stjörnur í skónum og ekki laust við að ég öfundi sjálfa mig að hafa komist á sjóvið hans Palla á föstudaginn var
Lifið í lukku
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.11.2010
Ókeypisdagurinn.....
.....var aldeilis ekki lagður upp sem slíkur. Ég meina ég fór í hraðbankann og allt og var virkilega tilbúin að borga fyrir allt sem á daga mína drifi........
....en margt fer öðruvísi en ætlað er.
Safnahelgi á Suðurlandi stendur yfir og við systurnar ásamt mömmu og Heiðdísi lögðum land undir fót og fórum á Eyrarbakka - hvar Heiðdís sýndi okkur hvar hún kom undir ásamt fleiri sögum m.a. að ef ekki hefði verið fyrir komu bretanna hefðu foreldrar hennar ekki haft efni á henni........ Við eigum bretum greinilega ýmislegt að þakka..... Spurning hvort ég fer ekki að skrifa þá með stóru béi?
Við byrjuðum á sightseeing tour í búgarðarbyggðinni og reyndum að skilja af hverju fólk vill búa þarna niðri í örbirgð. Ég áttaði mig þegar við snérum við og snæviþakin fjallasýnin blasti við. Væri nánast tilbúin að fórna öllu mínu sparifé í þetta útsýni............ ætti ég þá eitthvað
Héldum síðan sem leið lá niður á StokksEyrarbakka, fengum rúgbrauð í Húsinu á Eyrarbakka, kaffi og smákökur hjá Elvari í Hólmaröst ásamt minimálverkum og til að toppa ókeypisdaginn hringdi ákaflega almennileg kona frá blaðinu sem enginn vill viðurkenna að vera áskrifandi að og bauð mér ókeypis áskrift í mánuð. Svei mér þá....... ég var næstum búin að spyrja hana hvernig hún vissi að ókeypisdagurinn væri í dag......
Ókeypisdagurinn hófst annars ósköp venjulega. Ég skokkaði extra stóran hring á golfvellinum með Ljónshjartað mér við hlið - það er svo sjaldan sem maður finnur svona vel fyrir sjálfum sér. Mér fannst ég geta hlaupið nánast á heimsenda án þess að blása úr nös. Kattarósóminn stakk okkur af en við náðum honum aftur á bakaleiðinni.
Ég get alveg lofað ykkur því að ég var extra ókeypis flott - steingrá í framan - með maska made of Eyjafjallajökull á buxum og brjóstahalda einum fata áður en Ókeypisdagurinn hófst fyrir alvöru...................................
...hjá mér
Ef ég bara ætti mynd hand' ykkur
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.11.2010
Rautt er litur ástarinnar.
Ég komst, allsendis óvænt, á tónleika með mínum uppáhaldssöngvara í kvöld vegna þess að Heiðdís, vinkona mín, er gvöði sé lof meira fyrir eldri karlmenn en unga og valdi því þá eldri í kvöld
Ég hef sagt ykkur söguna af því þegar ég bjó með Palla? Ég er nánast viss um að ég er eina konan sem hefur búið með honum...... Ef ég hef ekki sagt ykkur söguna hikið þá ekki við að fylla út eyðublað í þríriti við útganginn og ég skal segja ykkur frá því næst þegar ég er í stuði
....og þegar ég spái í það er Palli líklega eini maðurinn sem ég hef getað búið með... Hvað segir það ykkur um mig?
Páll Óskar geislaði á tónleikunum í kvöld - bókstaflega - bæði útvortis og innvortis.
Í lok tónleika feyktust yfir mig litlu marglitu miðarnir - hvað heita þeir nú aftur.....? sumir voru meira að segja glimmer...... Ég sver það - þetta var eins og að vera stödd í ævintýri!
Ég fann einn í brjóstahaldaranum á leiðinni heim. Vitaskuld var hann rauður!
Fílgúd
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.10.2010
Tár og tenór
Takk fyrir frábært kvöld
Dægurmál | Breytt 16.10.2010 kl. 09:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.10.2010
Hamingjujöfnun!
Ég er stundum að velta því fyrir mér hvort fólk sé jafn hamingjusamt og ánægt með lífið eins og lesa má út úr facebookstatusum þess......
Einhvern veginn fyllist ég tortryggni þegar allt flóir í facebookarstatusum að hvað lífið sé dásamlegt, fólk svo hamingjusamt og allt eitthvað svo í lukkunnar velstandi. Það er nú meiri endalausa árans hamingjan.
Ég segi fyrir mig að hjá mér snýst lífið þessa dagana, vikurnar og mánuðina um að vakna, vinna, borða, borga skuldir og sofa og ég er orðin bara frekar leið á því!
Mig langar að fara til útlanda! Mig langar að liggja á ströndinni og heyra ölduna gjálfra við fjöruborðið. Fara til Köben, ganga Strikið og hlusta á dani tala saman. Fara út að borða stöku sinnum án þess að þurfa að naga skorpur í viku á eftir. Fara í bíó og jafnvel geta keypt mér skó!!
Og ekki segja mér að ég eigi að vera hamingjusöm með að geta þó borgað skuldir mínar! Ég er búin með þann pakka fyrir þó nokkru síðan!
Kannski ætti ég þó bara að vera þakklát fyrir að mínir vinir eru sælir og glaðir það má Guð vita að ég er orðin lafleið á samsæriskenningum og bölmóði annarra......
Hana nú - þá er það sagt og farið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
7.10.2010
Tónafljóð!
Fyrir rúmu ári síðan gekk ég í kór. Það var nú reyndar út af dottlu sem ég ætla ekki að fara að tjá mig um opinberlega. Þessi ákvörðun var átak fyrir mig því þó ég gangi um sísönglandi þá sagði við mig kórstjórnandi þegar ég var níu ára að ég gæti EKKERT sungið og það hefur setið dulítið í mér. Hef samt alveg sungið í kórum síðan þá en tók mér nokkurra ára pásu........
En sumsé... ég gekk í kórinn og hef sungið sleitulaust síðan - jafnt í svefni sem vöku Stundum hef ég jafnvel sungið alt sóló.....
Í kvöld ætla ég svo að syngja á tónleikum og er farin að hlakka talsvert til.
En þá að allt öðru...... eftir þrjá daga rennur upp 101010 sem er, eins og þið vitið öll, dagurinn sem ég ætla að gifta mig. Ég sá hjá Zordísi að hún og einhverjar kjéllingar voru að snakka um að 50 ára brúðkaupsafmæli væri gullbrauðkaup. Ég sá það strax í hendi mér að ég mundi aldrei ná þeim áfanga svo ég er að hugsa um að skippa brúðgumanum og halda bara veisluna.
Ég meina hver þarf karlmann þegar allar þessar græjur fást
Dægurmál | Breytt 14.10.2010 kl. 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.10.2010
Haust
Ég fór út að skokka í ljósaskiptunum. Ljónshjartað, Hrekkjusvínið og Grámann í Garðshorni komu með. Sá gæsir æfa oddaflug. Þær voru að vísu aðeins tvær og flugu því í hringi......
Það lá einhver spenna í loftinu. Hundarnir voru alltaf að stoppa, hnusa út í loftið og bofsa.... Grámann lét sig hverfa fljótlega enda fer hann algjörlega sínar eigin leiðir. Ég fikraði mig yfir skurðinn, það var talsvert vatn í honum, og skokkaði áfram út´á velli. Á ánni kvörtuðu endur og álftir sáran - ég áttaði mig ekki alveg á hverju, fyrr en ég heyrði skot í fjarzka og skildi snögglega af hverju spennan í umhverfinu stafaði.
Gæsaveiðitímabilið er líklega hafið.........
Sjúkkett að ég komst óveidd heim
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
28.9.2010
Loksins, loksins....
...get ég notað hugarorkuna eftir margra ára þjálfun!
Þetta uppgötvaði ég í morgun þar sem ég sat frammi á biðstofu læknisins og stelpan sem var á undan mér kom fram aftur og sagði mér að ég væri næst inn. Ég horfði á hana smá stund og sagði svo - í anda uppáhaldsfrænku minnar - en ég vil það ekki.......
Í þeim orðum töluðum lokaðist hurðin inn ganginn aftur og ég komst ekki inn til læknisins. Segiði svo að máttur andans yfir efninu virki ekki.....
Nú er alls ekki eins og þetta sé eitthvað persónulegt gagnvart lækninum, sem er alls ekki svo slæmur - þetta segi ég bara ef vera skyldi að hann rækist hér inn heldur vegna þess að ég var á leið í sprautu inn til hans. Ég og sprautur erum engir sérstakir vinir og ég er ekki frá því að þessi hafi verið ein sú versta só far.
Hann sagði mér að ástæða þess að hann notaði allt of stóra sprautu og ryðgaða í þokkabót væri alls ekki sú að hann vildi það endilega heldur væri honum uppálagt að spara....
Ég spurði hann hvort þetta virkaði ekki örugglega. Hann vildi lítið gefa út á það en fullvissaði mig hinsvegar um að á morgun mundi ég vakna með ávísun á launahækkun, þriggja daga skeggrót og yrði flutt beint í bassann í kirkjukórnum. Hann væri nefnilega að sprauta mig með sterum!
Ég bað hann svo að hnykkja mig áður en ég færi og hann kallaði mig masókista á meðan það brakaði í öllum beinum í bakinu á mér.
Góður læknir - Ég er ánægð með hann
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.9.2010
Dömukvöld eru frábær kvöld
Ég fór með þá félagana, Ljónshjartað og kisustrák í félaginu kúkur og piss út að ganga í morgun, setti svo á mig maska gerðan úr ösku Eyjafjallajökuls á andlitinu, drakk engiferleyndarmál og hugsaði um hvað dömukvöldið í gær var gott.
Þessi dömukvöld urðu til fyrir algjöra tilviljun - ef maður vill trúa því að tilviljanir séu til.... Þannig var að ég ákvað - eitt föstudagskvöld í sumar að hafa kósíkvöld - þrátt fyrir að vera bara ein heima. Elda góðan mat og fá mér hvítvín með. Á meðan ég var að elda hringdi vinkona mín til að láta vita að hún væri komin heim úr langri útlegð og ég bauð henni að koma og borða með mér. Stuttu síðar hringdi önnur vinkona mín - sem svo skemmtilega vill til að er einnig systir mín og ég bauð henni líka í mat. Einhver - ég nefni engin nöfn, en fyrsti stafurinn er Heiðdís :) - kom svo með þessa snilldarhugmynd seinna um kvöldið - að við mundum endurtaka þetta einu sinni í mánuði og ég er ekki frá því að þetta sé einhver bezta hugmynd sem sú kjéddling hefur fengið.
Magga eldaði frábært grænmetislasagne í gær og svo sátum við lengi frameftir og spjölluðum þrjár saman.
Takk fyrir frábært kvöld
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
18.9.2010
Við skulum róa sjóinn á....
Eins og þið vitið - allavega þið ykkar sem fylgist með - fór ég til læknis fyrir um það bil viku síðan. Hann kenndi mér að teygja á hendinni og öxlinni og sagði mér að hafa samband við sig eftir viku - tíu daga ef ég ekki yrði orðin góð, þá yrði hann að sprauta mig... ég er ekki frá því að ég hafi séð tilhlökkunarglampa í augum....
Allavega þá hef ég teygt samviskusamlega svo vel á hægri hendinni að ég er ekki frá því að vinstri fóturinn sé orðinn ívíð lengri en sá hægri - enda sjáðu til, hentar það ágætlega sem future Frú House að ég stingi við - en hendin lagast hægt. Ég hef ákveðið að gefa henni viku í viðbót áður en ég meila á hann sprautu sos.
Fj.... fjarri mér að ég láti það eftir honum baráttulaust að sprauta mig... ég væri hinsvegar til viðræðu um meira hnykk á bak ef hann endilega vill
Annars var ég að koma úr frábæru dömuboði í kvöld. Heiðdís vinkona mín fékk nefnilega alveg frábæra hugmynd í júlí sl. sem ég nenni nú ekkert sérstaklega að segja ykkur frá en hefur þær ánægjulegu afleiðingar að við hittumst þrjár saman einu sinni í mánuði og eigum ánægjulega kvöldstund yfir mat og drykk. Ég get sagt ykkur það svona í trúnaði að þar kvikna ýmsar hugmyndir....
Ójá
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)