4.9.2009
Brjálað að gera í sveitinni!
Nei! Ert þú hér? Spurði Bjarni Harðar þegar hann kom upp stigann á nýja vinnustaðnum mínum og ljómaði eins og sól í heiði um leið og hann kyssti mig á kinn. Hann er svo mikið krútt hann Bjarni. Ég flissaði eins og skólastelpa á óræðum aldri þegar hann hélt áfram og sagði að það væri ekki amalegt að eiga kærustu í hverju herbergi í þessu húsi....... enda stórt hús
Ég var á fyrstu kóræfingu vetrarins í gærkvöldi - frábært að standa í tvo tíma og syngja. Ég uppgötvaði að ég hef virkilega saknað þess - jafnvel þótt dóttir mín hafi strítt mér miskunnarlaust alla leið heim á því að kórstjórinn sagði við mig eftir æfingu að það gæti verið mjög erfitt fyrir aldraða að ná tökum á söngnum í byrjun....... Kemur sér að það er ekki langt á milli staða í sveitinni!
Ég ætla sossum ekkert að þylja upp allt sem henni datt í hug en ég man hún nefndi að það væri svo gott að ég væri í kór - það væri svo mikilvægt fyrir félagslíf aldraðra að hafa þó þetta.
Ég fór líka á opnun sýningar hjá Zordisi í Þorlákshöfn city í gær. Bauð mömmu með mér - sem var mjög hentugt því hún hefur umráð yfir bíl Mamma fann felumynd í einni myndinn hjá Zordisi og nú þurfa allir að fara í Hárnýjung Þorlákscity fá sér klippingu og athuga hvort þeir finni myndina í myndinni.
Svo eru réttir framundan! Ég stefni á að fara í amk einar. Alltaf gaman að heyra litlu lömbin jarma sáran og sjá þau stökkva í angist um allan almenning í leit að móður sinni - allsendis ómeðvituð um það að þau koma til með að enda sem léttir réttir í nánustu framtíð.........krydduð með salti og pipar hjá sauðsvörtum almúganum.
Svona er lífið á Suðurlandi......
Athugasemdir
Unglamb á kóræfingu og lambakjöt á grillið.
Íslenskt er´ða.
Anna Einarsdóttir, 4.9.2009 kl. 13:04
Hurrðu aldraða kórstelpan mín......er Zordís með flísar á sér núna á landinu?
Dúa, 4.9.2009 kl. 13:15
Þér er hér með boðið í réttir haustið 2009. Verða 12 og 13. sept. Tvennar þann 12. og einar þann 13. Mikið fjör mikil læti. Og túlega lamb á grillinu líka!!!!
Sigrún frænka (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 17:39
Íslenskt já takk!
Já Dúa! Zordis er með flísar á landinu - fer á sunnudag. En flísarnar eru til sölu í Þorlákshöfn city....
Hrönn Sigurðardóttir, 4.9.2009 kl. 17:56
Hey Sigrún! Hljómar vel! Aldraða kórstúlkan getur kannski tekið lagið í Skagfirskri sveiflu?
Hrönn Sigurðardóttir, 4.9.2009 kl. 17:57
Heyrðu ekki spurning!!!
Annars er Geiri sveiflukóngur ekki með ball þessa helgina heldur næstu á eftir, þá eru ríðingamannaréttir!!
Þú gætir svo kannski "sjékkað" á útvarpinu í leiðinni!!
Sigrún frænka (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 19:41
heheh hugsanlega gæti ég það...... En þú veist það náttúrulega Sigrún að ég þarf ekki á Geira að halda til að halda uppi sveiflu....
Hrönn Sigurðardóttir, 4.9.2009 kl. 19:45
Veit!! Þú ert svo "sveifluð"!!! Og góð kórkona!! Þarft enga óþarf aðstoð!
Sigrún frænka (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 19:54
Svo er ég líka í uppsveiflu núna ;)
Hrönn Sigurðardóttir, 4.9.2009 kl. 20:51
Ég kvíði því svo...að komast á kóraldurinn. Er svo hrædd um að verða hafnað
Sigrún Jónsdóttir, 4.9.2009 kl. 23:51
Ég skil þig Sigrún! Ég hugsaði mig um í tvö ár....
....á meðan beið tíminn ;)
Hrönn Sigurðardóttir, 4.9.2009 kl. 23:53
Ég finn svo til með litlu lömbunum og öldruðum auðvitað líka.
Ía Jóhannsdóttir, 5.9.2009 kl. 07:41
Hljómar eins og lífið sé spennandi á Suðurlandi
Vilma Kristín , 5.9.2009 kl. 09:36
æj litlu sætu kótiletturnar ..
Ragnheiður , 5.9.2009 kl. 16:30
Ég hef aldrei skilið hvernig nokkur getur hugsað sér að gerast bóndi...ala önn fyrir litlu lömbunum, gefa þeim nöfn, gefa þeim að borða - og slátra þeim svo
Marta B Helgadóttir, 6.9.2009 kl. 16:01
hahaha ég er heiðurfélagi Léttsveit Reykjavíkur og er mikill kóraaðdáandi, fór t.d síðast þegar þær sungu sjómannalög í Háskólabíó og skemmti mér konunglega. Hvítir mávar, brenni þið vitar, í Rökkuró, og ýmisslegt annað. Æði æði. Láttu mig vita þegar þið syngið. Annars var ég að frétta að Léttsveitin er bráðum með tónleika í Grindavík og það er nú ekki langt frá Þorlákshöfn city ef maður á jeppabíl eins og mamma manns!!
Garún, 6.9.2009 kl. 20:46
Yndislegt að komast í heiðurskvennahóp og kyrja ... Yndislegt að hitta þig og knúsa þig. Við vorum að skríða frá ömmu um hálf fjögur í gær og dóttlan sá þig á tröppunum í svörtum freyjubúningi, mjög aðlaðandi klæðnaður fyrir konu á okkar aldri.
Er komin hjem igen, verulega toguð og trött eftir seinkun og þrengsli í fluginu. Ekki nóg með það að rúmmsentimeterinn hafi minnkað pr.sæti. heldur er það dobbelt præs á þessum loftköstum.
Lovjú girl!
www.zordis.com, 6.9.2009 kl. 20:57
Stundum geturðu alveg drepið mann Hrönn
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.9.2009 kl. 09:13
Já, það eru bara þeir hörðustu sem lifa þig af.
Anna Einarsdóttir, 7.9.2009 kl. 09:31
Ég er komin í kór.Ég fæ 3 lömb í haust.Þau verða þögnuð er þau koma til mín.Bið að heilsa einari í réttunum
Kaffi Amen er að verða svo vinsælt.Láttu mig vita þegar þú kemur og syngur kannski á okkur í kaffihúsinu.Allir (flestir) fá að syngja eða raula með lifandi tónlistinni á Kaffi Amen.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 7.9.2009 kl. 16:42
Knús á þig englaskott.
Heiða Þórðar, 7.9.2009 kl. 22:24
Hvernig líður þér krúttið mitt? Hopefully well og þú sért svona læf og kikking svo þú getir farið og sungið á Kaffi Amen. Ótrúlega snilldarlegt nafn !!!!
Setti inn nokkrar myndir á mína síðu en þú ert sennilega búin að sjá þær .... en segðu mér nú frá leynimyndinni góðu ?????
www.zordis.com, 8.9.2009 kl. 09:14
Er að kafna úr svínapest - en stefni á að syngja á kaffi Amen... bara ekki í dag.
Leynimyndin já..... varstu ekki búin að finna hana?
Hrönn Sigurðardóttir, 8.9.2009 kl. 16:13
Æj, elskan.
Láttu þér batna. Kjörorðið er BURT MEÐ BEIKONIÐ.
Anna Einarsdóttir, 8.9.2009 kl. 17:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.