20.5.2009
Þank god it´s frídagur!
Ég er að farast úr harðsperrum eftir Esjugöngu! Samt borðaði ég banana og hamaðist í sundleikfimi.... Ég get sagt ykkur það svona í trúnaði, ef þið látið það ekki fara lengra, að ég var svo þreytt í morgun að ég steinsvaf yfir mig.. Það hefur ekki skeð síðan..... tjah..... á síðustu öld? Allavega vegna þess að ég er svona.... hvað á ég að segja..... stirð....? þá einbeitti ég mér að því sem ég þarf bara að hugsa um í dag Það er svo einfalt að hugsa. Ég fór að pæla í Feng Shui! Eru þetta fræði fundin upp af karlmönnum til að fá konur til að þrífa betur eldhús og baðherbergi, eða eru þetta vísindaleg sannindi?
Ég hallast að hinu fyrrnefnda. Ég er með project í gangi. Dávnlódaði gögnum sem ég er að pæla mig í gegnum og allt......... Hugsanlega læt ég ykkur vita að hvaða niðurstöðu ég kemst... hugsanlega rukka ég ykkur fyrir þær upplýsingar
Á morgun er uppstigningardagur. Rauður dagur á almanaki. Það þýðir að ég fæ engar bætur fyrir að vera atvinnulaus þann dag og þar sem ég er algjörlega uppfull af mótþróaþrjózkuröskun allavega gagnvart vinnumálastofnun ákvað ég að vinna frítt fyrir þá ljúflinga sem ég vinn hjá og rukka þá ekki fyrir vikið Vinnumálastofnun tekur mig sko ekki í r.......ð heldur algjörlega omvent!!
Á morgun er líka vor í Árborg með tilheyrandi menningarviðburðum sem verða opnir alla helgina. Í fyrramálið opnar ljósmyndasýning hér handan götunnar sem ég ætla sko ekki að láta mig vanta á - enda menningarviti með afbrigðum... Á föstudaginn er mér síðan boðið á opnun skjálftasýningarinnar í Byggðasafni Árnesinga á Eyrarbakka, sem heitir: Hvar varst þú kl. 15:45 þann 29. maí 2008!
Ég sendi inn mína sögu byggða á bloggfærslum þessara daga - þið munið vonandi eftir þeim, nóg gátuð þið flissað að þeim....... - og var í kjölfarið spurð hvort ég hefði einhverjar athugasemdir við að brot af sögu minni yrði birt á sýningunni hún væri krassandi, skemmtileg og smellin.....
Æ am abát tú bí fræg og falleg
Athugasemdir
Fræg er nýyrðið -falleg vissum við...
farðu varlega í öllu þessu menningarsulli...eyþóraríþinnisveit hafa farið flatt á svoleis..eða orðið staurblindir en það var bara tímabundið
Ragnheiður , 20.5.2009 kl. 22:43
hahahha já ég reyni að sneiða hjá staurum!
Hrönn Sigurðardóttir, 20.5.2009 kl. 22:45
the blog mest feimus konan við árbakkann.
Marinó Már Marinósson, 21.5.2009 kl. 00:24
Vó, ég man að fimm mínútum eftir skjálftan hringdi ég í þig til að spyrja frétta (ég veit ekki í lagi) og síminn svaraði ekki. Ég var mjög hissa, hélt jafnvel að þú værir sofandi undir rúmi. Vissi ekkert hversu alvarlegt þetta var offkors vegna þess að þeir voru ekki að standa sig á fjölmiðlavaktinni.
Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2009 kl. 01:58
sjálftann með tveimur ennum skjúsmí.
Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2009 kl. 01:58
How cool is that?
Vilma Kristín , 21.5.2009 kl. 02:07
Ég man að ég reyndi að hringja í pabba minn sem var staddur í sumarbústaðnum sínum í Grímsnesinu, fljótlega eftir skjálftann. Hann svaraði ekki símanum og mér var órótt. Bústaðurinn hans skemmdist mikið í skjálftanum, og heiti potturinn og rotþróin líka. Pabbi var í heita pottinum þegar skjálftinn reið yfir, hann varð svo hræddur að hann klæddi sig og læsti bústaðinum og þaut í bæinn á methraða.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.5.2009 kl. 02:25
Góða skemmtun á menningardögum sveitarinnar.
Ía Jóhannsdóttir, 21.5.2009 kl. 07:08
Dú mí a feivör Hrönn.
Viltu fara í stjórnborð - stillingar - síðueiningar og setja inn nýjan fídus; Mánuðir með bloggfærslum ?
Þá get ég betur skoðað hvað þú varst einu sinni vitlaus. (lesið gamlar færslur)
Mörgum sinnum fyrirfram tökk.
.
Og frábært hjá þér að taka Vinnumálastofnun í ríkið !
Anna Einarsdóttir, 21.5.2009 kl. 10:09
Jú ar fræg og falleg......
Fanney Björg Karlsdóttir, 21.5.2009 kl. 10:32
O, hvað mig langar stundum til að sofa yfir mig... en Feng Shui leyfir mér það ekki...
Brattur, 21.5.2009 kl. 11:31
most adoring vúman on the riverbank :)
Segðu Vilma! Svo verða sögurnar gefnar út líka :Þ
Jenný! Ég man.... þú skammaðir mig fyrir að svara ekki í símann
Ég skil hann vel Jóna Kolbrún.
Takk Ía.
Anna - konsider itt dönn
þeinkjú Fanney
Brattur! Bíddu bara - það kemur færsla um akkúrat þetta málefni.... þarf bara smá undirbúning ;)
Hrönn Sigurðardóttir, 21.5.2009 kl. 13:33
jamm ég kíkti, mér til gamans, á gamlar færslur og sé að ég hef ekkert þroskast! Búin að blogga í tvö ár og engin breyting........? Gúdd gríf!
Hrönn Sigurðardóttir, 21.5.2009 kl. 13:41
Þessi dagur þarna í denn, mun alltaf vera tengdur Hrönn á Selfossi í mínum huga
Sigrún Jónsdóttir, 21.5.2009 kl. 14:53
noh... hugsanlega verður þetta enn einn dagur á almanaki framtíðarinnar sem við getum notað til hátíðarhalda?
Hrönn Sigurðardóttir, 21.5.2009 kl. 16:30
Hátíðardagar... 17. júní, 1. maí... uppstigningardagur... og Hrönnsludagur.... ekki slæmt kompaní þar.
Einar Indriðason, 21.5.2009 kl. 21:07
haha já Einar og sá dagur verður merktur með appelsínugulu í dagatalinu. Þá ruglast vinnumálastofnun alveg í ríminu......
Hrönn Sigurðardóttir, 22.5.2009 kl. 12:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.