6.10.2008
Dónt vorrí beibíííííí
Frábær dagur er að kveldi kominn!
Elska svona daga þegar er brjálað að gera - ég stanslaust í símanum og fólk í biðröð fyrir utan..... og Bónus í næsta húsi
Skyggði samt örlítið á annars góðan dag þegar forsætisráðherra lýsti sig ráðþrota varðandi íslenzkt efnahagslíf og ég fékk aðeins í magann þegar hann ávarpaði mig sem Kæran Landsmann - hélt eitt augnablik að hann ætlaði að frysta spariféið mitt en létti aftur þegar ég áttaði mig á því að ég á ekkert sparifé til að frysta og Geir hefur alltaf verið ráðþrota....... þannig að beisiklí er staðan óbreytt! Nú bíð ég bara eftir því að mömmusinnardúlludúskur komi heim svo ég geti staðið þétt við bakið á honum..... Haldiði að hann verði orðinn soldið pirraður á mér um áttaleytið?
Ætli ég eigi nóg rafmagn niðri til að þvo eina vél?
Flokkur: Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:02 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Eldri færslur
2021
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Spurt er
Tenglar
Uppskriftir
- Bollur eða brauðlengjur
- Kærleiksbollur
- Gróft brauð
- Bananabrauð
- Kryddbrauðið hennar Jónínu
- Kryddbrauð
- Lífsins brauð
- Fyllt brauð
- Gömlu góðu kanelsnúðarnir hennar mömmu
- Hafrakex
- Skinkumyrjuhorn og pizzasnúðar
- Ostaskonsur
- Muffins
- Eplakaka Mörtu Smörtu ;)
- Rabbarbarapæ
- Epla og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka mótmælanda efnahagsástandsins ;)
- Vatnsdeigsbollurnar hennar ömmu
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Biluð hollusta Hjónabandssæla
- All bran kökur
- Brynhildur Delisíus
- Gillaður humar
- Salat númer eitt
- Gulrótarsalat með dassi af fortíðarþráhyggju
- Gúllassúpa
- skólastjórasúpa
- Grænmetissúpa Zordísar
- Fylltar kjúklingabringur Uppskrift að góðu kvöldi
- Fljúgandi Jakob með stílbragði
- Kjúklingaréttur Thai Pride
- Ungnauta - innra læri
- Fiskréttur í ofni
- Grænmeti í ofni
- Ratatoullie a la maison
Vefsíður
Færsluflokkar
- Afmæli og stórhátíðir
- allt annað
- amatörar
- Bloggar
- Bækur
- Draugasögur
- Dútl heima við
- Dægurmál
- fagmennska
- Ferðalög
- Fordómar og spéhræðsla
- Galdrar og töfrar
- Glæpamál
- Grill
- Grobb
- Gæludýr
- gæludýr og dýrafát
- hausti fagnað
- hugsanleg húsbönd
- Iðnaðarvinna og verkir
- Íþróttir
- íþróttir og útivist
- Kvikmyndir
- Launráð og fyrirsát
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- málningarvinna
- Menning og listir
- menn og málleysingjar
- mótorhjól og akstursíþróttir
- Óbyggðir Vestfjarða
- Sjónvarp
- Skordýr
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- svefn og síþreyta
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Veikindi
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- öfugir fordómar
- Ölæði og ólæti
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Marta B Helgadóttir
- www.zordis.com
- Anna Einarsdóttir
- Ragnheiður
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- SigrúnSveitó
- Guðný Anna Arnþórsdóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Solla Guðjóns
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Brattur
- Garún
- Sigrún Jónsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Halldór Egill Guðnason
- Þröstur Unnar
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Dúa
- Hagbarður
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Bullukolla
- Einar Indriðason
- Steingerður Steinarsdóttir
- Rebbý
- Vilma Kristín
- Dísa Dóra
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Ía Jóhannsdóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Hugarfluga
- Bergljót Hreinsdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Bjarni Harðarson
- Marinó Már Marinósson
- Sigurður Ingi Jóhannsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Steingrímur Helgason
- Þórbergur Torfason
- Ólöf Anna
- Brúðurin
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Víðir Ragnarsson
- Laufey Ólafsdóttir
- Róbert Tómasson
- Ólafur fannberg
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Gulli litli
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Linda litla
- Ágúst H Bjarnason
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Svala Erlendsdóttir
- Tína
- Markús frá Djúpalæk
- Gudrún Hauksdótttir
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
Athugasemdir
Jenný Anna Baldursdóttir, 6.10.2008 kl. 18:06
Afhverju ætlarðu að fara að trufla mömmusinnardúlludúsk ? Ég er alveg viss um að Haarde minntist ekki orði á mömmusinnardúlludúsk ?
Þetta verður undarlegur tími framundan, það er ljóst.....
Er pláss við bakið á mömmusinnardúlludúsk ? Sýnist það vera hugmynd dagsins
Ragnheiður , 6.10.2008 kl. 18:13
Mér fannst haarde tala um að nú ættu fjölskyldur að standa þétt saman.....
svo ætla ég að setja einn svona kall svo færsla einskorðist ekki við jarðskjálftakalla....
Hrönn Sigurðardóttir, 6.10.2008 kl. 18:31
hehe já ok...ég hef ekki tekið nógu vel eftir greinilega
Ragnheiður , 6.10.2008 kl. 18:54
Það er óþægilegt að standa þétt saman lengi.
Alveg satt, ég prufaði það í röðinni um helgina, oj.
Eru til jarðskjálftakellingar einhverstaðar?
Þröstur Unnar, 6.10.2008 kl. 19:06
Ég kom við hjá þér í lok vinnudags en kom nánast að tómum kofanum..... nema hvað að auðvita voru fjórfætlingarnir heima og gættu bús og bar.... já..allavega bús.... en hvar var frúin.....ég ætlaði að plata þig með mér í prjónakaffi.... ekki vanþörf á... allir þurfa nú að prjóna í kreppunni.....geri aðra tilraun síðar.... ég gefst ekki upp ...og eins og Marteinn Mosdal sagði hér um árið..."Ég kem aftur....Ég kem alltaf aftur..."
Fanney Björg Karlsdóttir, 6.10.2008 kl. 19:29
Ég hef fengið nýtt hlutverk. Nú mun ég ganga á milli áfallahjálpar miðstöðva og sína fyrrverandi hlutabréfa eigendum hvernig lifa skal sem öreigi. Það fyrsta sem ég mun kenna þessu fólki er þjóðsöngur öreiganna, alltaf svo mikill samhugur í samsöng.
Fram þjáðir menn í þúsund löndum......
Sigrún Jónsdóttir, 6.10.2008 kl. 19:30
Prjónakaffi Fanney! Hvad er det for noget? Hella þá allir kaffi yfir prjónana sína?
Ég hélt ég hefði verið heima í allan dag!!! Rétt skaust í búðina fyrir lokun..... Annars var ég bissý að reyna að ná í bankana!
Já Þröstur! Það er til nóg af jarðskjálftakellingum!! Þær eru hinsvegar allar hérna megin við göngin
Sigrún! Gott að þekking þín kemur að góðum notum
Hrönn Sigurðardóttir, 6.10.2008 kl. 19:53
Gulli litli, 6.10.2008 kl. 20:09
Ohhh... Hrönn.... prjónakaffi er þannig að allir mæta með prjónana sína.... drekka gott kaffi í góðum félagsskap og prjóna sér til hita....eða ánægju.... allt eftir því hvort kaffihúsið hafi átt fyrir hitanum eður ei.....
Fanney Björg Karlsdóttir, 6.10.2008 kl. 20:29
Taktu mig með næst!! Ég er alltaf að berjast við að klára þessa fargins peysu sem ég byrjaði á fyrir fleiri mánuðum en ég kæri mig um að muna.......
Hrönn Sigurðardóttir, 6.10.2008 kl. 20:39
Vonandi þurfum við ekki að standa lengi svona þétt saman............................á eitthvað svo erfitt með svona mikla nánd
Huld S. Ringsted, 6.10.2008 kl. 21:22
... ég ætla ekkert að bíða eftir því að Geirarar þessa lands frysti peningana mína... ég er búinn að gera það sjálfur... tók út 10 þúsund kallinn sem ég átti í bankanum og tróð honum ofan í frystikistuna á milli ýsubitana sem ég er búinn að vera að hamstra... nú þarf ég bara að kaupa mér hamstratólg til að skvetta á ýsuna... og þá er ég tilbúinn að berjast við Kreppuna...
Brattur, 6.10.2008 kl. 21:22
Þið lumið á yndislegum kreppuráðum, prójnakaffi og peningafrysting í félagsskap ýsu .... það er margt leiðinlegra.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 6.10.2008 kl. 21:40
Ég var smá stund að átta mig á sýn sem ég sá í dag um hálf sex leitið, fólk sem stóð í röð útá miðri gangstétt. Svo áttaði ég mig á þessu, þau stóðu í röð við hraðbankann. Sennilega allir að reyna að taka út. Ég hef aldrei áður allavega séð svona ös við þennan blessaða hraðbanka, vonandi var nóg til í honum fyrir alla. Ég trítlaði bara sæl framhjá, stundum er gott að vera fátækur... ég þarf allavega ekki að hafa áhyggjur af öllum peningunum sem ég er að tapa :)
Vilma Kristín , 6.10.2008 kl. 23:30
Já einmitt það sem ég hef velt fyrir mér í dag. . . . .staðan óbreitt. . . .ég er of lítið peð í þesu þjóðfélagi til að Geirsvarp snerti mig beint. . .allavega ef staðan er óbreitt.
Vona að þú hafir ekki átt of mikinn þvott fyrir rafmagnið.........
Solla Guðjóns, 6.10.2008 kl. 23:51
Þér eruð óborganleg.
Steingerður Steinarsdóttir, 7.10.2008 kl. 09:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.