20.9.2008
Hugleiðingar um afleiðingar ;)
Ég var sofnuð um níuleytið í gær! Algjörlega búin á því eftir langan og strangan dag........
...af því leiddi að ég var vöknuð óguðlega snemma í morgun! Sem aftur leiddi svo af sér að ég hef komið hrikalega miklu í verk og klukkan er ekki enn búin að slá morgunkaffi
Ég fór með hundana út í skóg - þar gengum við upp með á í morgunkyrðinni! Áin er komin óþægilega nærri veginum sem við göngum eftir - sem er sjálfsagt afleiðing allrar þessarar rigningar........ Allavega þurfti ég að hafa hemil á yngri vitleysingnum - eða ætti ég að segja yngsta í ferðinni! Hún var alltaf komin í vaðham um leið og ég leit af henni! Til þess að fyrirbyggja að ég þyrfti að sækja hana niður að ósum þurfti ég að vera svolítið höstug! -En..... hvernig skammar maður tík sem heitir Hlín og er svo hamingjusöm að hún hefur engan veginn hemil á gleðinni? Ég allavega enda alltaf í þessum tón..... Hlín mín.... ertu svona sæt og fín?
Nú er ég búin að setja í vélina og búa til hundanammi! Er á leiðinni á spennandi fund á eftir og þarf að sjæna mig soldið fyrir hann! Ekkert mikið samt - það er nú ekki eins og ég líti eitthvað illa út Bara svona þetta daglega viðhald - þið vitið..... sturta, blása hárið, ákveða hvaða pils ég fer í! Hey... kannski giftingarpilsið? Það er ferlega flott og langt síðan ég hef farið í það........ Góð hugmynd!
Önnur góð hugmynd sem ég fékk um daginn er að ég væri til í að eiga svona fjallahúsbíl.... ætli þeir séu til? Svona bíll sem kemst yfir fjöll og firnindi? Ár og læki? Sem ég gæti keyrt eitthvað út í buskann og numið staðar einhversstaðar fjarri mannabyggðum - vaknað svo morguninn eftir og stungið úfnum hausnum út um lúguna og horft á svartan sand eins langt og augað eygði........ Bara ég og Ljónshjartað.... ok - og kannski einhver sætur strákur ef hann endilega vildi koma með - en hann yrði þá líka fjandakornið að vera skemmtilegur! Annars mundi ég bara skilja hann eftir hinumegin við ána....
Hér er svo enn ein hugmynd sem ég er að gæla við og er reyndar búin að gera í mörg ár! Hún er sú að vera einhverstaðar í fjallakofa um jólin! Bara ég, Ljónshjartað og hangilæri! Mundi taka með mér skíði - þrátt fyrir þá staðreynd að ég geti engan veginn staðið á skíðum fyrr en eftir tvö til þrjú rauðvínsglös - ég hef þá bara flöskuna með líka
Finnst ykkur skorta eitthvað á félagslegan þroska minn?
Athugasemdir
Nei, ekki neitt. Fínn þroski þetta!
Markús frá Djúpalæk, 20.9.2008 kl. 09:13
Þú ert mannhatari. Djók. Maður er ekki endilega alltaf mannsgaman.
Einveran getur verið best.
Auli.
Jenný Anna Baldursdóttir, 20.9.2008 kl. 09:24
... í Guðanna bænum ekki gleyma grænu baununum til að hafa með hangiketinu...
... það væri hrikalegt að vera komin í fjallakofann með hangikjötslærið og engar grænar... þvílík martröð... ég bara svitna við tilhugsunina...
Brattur, 20.9.2008 kl. 09:47
Vá, kannski ætti ég að prófa að fara að sofa klukkan níu... það er svo margt sem þarf að gera á mínu "stóra" heimili... lýst vel á að vakna með með svona mikla orku og þú. Betra en að sitja enn á náttfötunum með stýrur í augum klukkan tíu.
Vilma Kristín , 20.9.2008 kl. 09:59
Þú gætir meira segja stofnað ferðaskrifstofu fyrir "eitt fólk um jólin", og dreift því niður á hálendið. Kannski færðu þér þyrlu, og hífir fólkið á rétta staði... þá geturðu verið með fleiri gesti á stærra landsvæði.
Einar Indriðason, 20.9.2008 kl. 10:10
Það er ómögulegt að álykta um félagslegan þroska þinn því þú ert svo allt öðruvísi en aðrir. Svona undarlega furðuleg. Mér finnst þú eins og engifer í kryddum tilverunnar, góð og holl.
Anna Einarsdóttir, 20.9.2008 kl. 10:26
Ég hef líka haft það í hausnum í nokkur ár að eyða áramótunum í litlum bústað fjarri flugeldum og slíku. Helst bústað með arni og helst snjó og brjálað veður úti fyrir svo einangrunartilfinningin verði enn meiri. Jamm get þá varla sagt að þú sért rugluð að hugsa svona eða hvað?? þá væri ég að segja það sama um mig haha
Dísa Dóra, 20.9.2008 kl. 11:03
Góður þroski.
Varla er til rómatískari ímynd af jólahaldi en í bjálkakofa í Noregi þar sem allt er á kafi í snjó allt í kring. Einvera eða ekki - skiptir ekki öllu ef manni líður vel með það sem maður hefur.
Marta B Helgadóttir, 20.9.2008 kl. 12:16
Nei Hrönn mín, þú ert frábær
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.9.2008 kl. 12:33
Soldið skrýtin skrúfa krúttið mitt...en mér líkar rosa vel við .þig....
Fjallakofinn er kannski ekki svo vitlaus hugmynd....bara eitthvað svo sorglegt að vera alein á jólunum....veldu frekar bara einhverja helgi...ha????
Bergljót Hreinsdóttir, 20.9.2008 kl. 17:01
Þú,ljónshjartað og ljónshjartað og þú,og svo hangilæri til tilbreytingar.Ekki ósvipað og heyrðist í Emil í kattholti,Du og jæ Alfred,du og jæ.Félagsþroskinn þin er frábær
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 20.9.2008 kl. 21:47
Jamm Birna Dís! Spurning hvort ég þarf að vera í smíðakofanum?
Ditta! Takk og sömuleiðis góða helgi
Bergljót! Ég skal íhuga það - en hvað segirðu mér af bókinni þinni?
Hallgerður! Ég er svolítið gefin fyrir jaðarsportið
Cesil! Það ert þú líka
Marta! Gott að einhver sér mann í heildarmyndinni
Dísa Dóra! Sækir sér um líkir......
Anna!
Einar! En þá verð ég ekki ein á fjöllum........... Ég er svo sjálfhverf - ég þarf alltaf að hafa hlutina útaf fyrir mig.....
Vilma! Þú ert góð eins og þú ert - með stýrur eða án þeirra
Brattur! Þá þarf ég rauðkál og hveiti til að útbúa uppstúf..... Ég ætlaði nú bara að ferðast létt!! Kannski ég skilji bara góða skapið eftir heima?
Jenný! Það er nefnilega málið! Einkum og sérílagi þegar fólk er jafnskemmtilegt og ég.........
Markús!
Hrönn Sigurðardóttir, 20.9.2008 kl. 22:12
Nei Hrönn mín, það skortir ekkert á hann, þú ert bara frábær!
Huld S. Ringsted, 20.9.2008 kl. 22:15
Hef lengi átt þann draum að vera í fjallakofa á Ítalíu yfir jólin...reyndar með fjölskyldunni. En þú ert örugglega sjálfri þér nóg, eins skemmtileg og þú ert :-)
M, 21.9.2008 kl. 00:28
Já, nei, sko.. ef þú ætlar að ferðast létt, þá ertu ekki að skilja góða skapið eftir heima.. það er sko ekki íþyngjandi! Frekar að skilja hamarinn eða jafnvel Svissarann eftir heima!
Einar Indriðason, 21.9.2008 kl. 02:12
nei, det synes jeg ikke
Kærleikskveðja
steinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 21.9.2008 kl. 13:07
Sæl. frábær hugmynd og maður á að láta drauma sína rætast. Maður lifir bara einu sini. So go girl
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 21.9.2008 kl. 14:22
Félagslegur þroski..... í hvaða samhengi???.......
Fanney Björg Karlsdóttir, 21.9.2008 kl. 14:36
Þú er svo frábær Hrönn mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 21.9.2008 kl. 16:48
ooooooooog aðeins kíló pipar!!!!!!!
Ólöf Anna , 21.9.2008 kl. 18:57
Þúrt 'ripe' í 'féló' ...
Mér finnzt þú ózköp 'normal', hvað er að ~hinum~ ?
Steingrímur Helgason, 21.9.2008 kl. 19:05
Þú ert yndisleg frænka mín - ég skemmti mér stórvel að lesa þig á hverjum degi...
Jólin og fjallakofinn - nahh - ég veit ekki. gæti verið notalegt í einn dag en ekki öll jólin er það annars?
Normal? Jú er það ekki - ég er náttúrulega í þessari fjölskyldu og þekki ekkert annað...þú ert yndisleg eins og þú ert óbreytt með öllu...
Inga frænka (IP-tala skráð) 21.9.2008 kl. 22:22
Takk Inga frænka Þú ert náttúrulega ekki dómbær á normalitet verandi í þessari fjölskyldu! Enda er það ekki nema fyrir hörðustu nagla Gaman að sjá sporin eftir þig
Steingrímur! Ekki nota svona erfið orð!
Ólöf Anna! Ertu að segja að ég sé piparjúnka!
Katla! Takk
Fanney! Algjörlega samhengislaust
Anna Sigríður! Rétt - ég vinn í þessu! Það eru ekki nema 94 dagar til jóla
Steinunn! Blessi þig
Einar! Ekki Svissarann - ég hef lagt mikið á mig að efla tilfinningaleg tengsl við hann......
M! Það er nefnilega málið! Ég fæ aldrei nóg af sjálfri mér! Sagði konan lítillætið uppmálað
Huld! Takk sömuleiðis
Hrönn Sigurðardóttir, 21.9.2008 kl. 22:36
Skil vel þetta með fjallakofann um jólin. Við systkinin leigðum einu sinni tvo fjallakofa fyrir okkur og okkar fjölskyldur um áramótin og það var æði. Flugeldasýningin var til dæmis algjörlega okkar og prívat.
Helga Magnúsdóttir, 22.9.2008 kl. 12:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.